»  off record  »  EF BRÉFIÐ ER KOMIÐ Í SKIL ÞÁ...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
EF BRÉFIÐ ER KOMIÐ Í SKIL ÞÁ...
Miðvikudagur, 12. mars 2003

Ég asnaðist til þess í gær að ljóstra upp um áform mín um að sjá tvær bíómyndir í Háskólabíói sama kvöldið. Gleymdi því auðvitað, rétt á meðan, hversu gamall og lúinn ég er orðinn. Hvernig dettur manni sem getur ekki gert kynlíf tvisvar í röð lengur í hug að hann geti séð tvær bíómyndir á sama kvöldi?
Jæja, frægasti og besti bloggari í heimi bíður eftir því að ég segi eitthvað um Lilya 4-Ever en ég get það ekki þar sem ég guggnaði á planinu og nú er hún farin úr bíó. Ég ætla samt að senda nokkra meila og hringja símtöl á morgun, lýsa vanþóknun minni á þessu og heimta hana aftur á tjaldið.
Ætlaði að hvíla mig á milli mynda og fór upp í rúm með 2 Hulk blöð, 1 Tarzan blað og 1 Sonur Tarzans blað (gerði góða pakkadíla á Bókamarkaðnum) og Hina feigu skepnu. Komst að því að ég er hin feiga skepna, rétt komst í gegnum blöðin og sofnaði eftir 1 og 1/2 síðu í bókinni. Hún lofar samt góðu og því ekki við Roth að sakast.
Það var því böggaður Tóti sem þrammaði niður Suðurgötuna klukkan átta í morgun. Þetta skánaði þó allt upp úr hádeginu þegar ég fór í klippingu til hinnar einstaklega ljúfu Jóhönnu á Effect. Hún getur breytt manni í ýmist Hugh Grant eða Beckham á innan við 40 mín. Þá fékk ég besta kaffið so far þessa vikuna á Effect og böns af slúðri. Fyrir utan það að Hrafn hringdi í miðri klippingu með meira slúður. Það kom þó á daginn að allt eðalstöff dagsins var ekki birtingarhæft, að minnsta kosti ekki í bili. Svona er lífið hjá blaðamönnum með sómatilfinningu. Dull.
Kom svo heim, seint og illa eins og alltaf, og fann hrúgu af pósti til mín. Allt leiðindi; 4 skuldabréf í vanskilum og jafn margir gulir miðar, Glitnir í vanskilum, Euro alveg að snappa og öll "frekari notkun kortsins er bönnuð þar til skuldin hefur verið greidd". Er ekki mál til komið að Ábyrgðasjóður launa og aðrir sem skulda mér peninga fari nú að taka sig saman í andlitinu og redda málunum?

Já, bara svona for the record þá kíkti ég við á thorworks og sá þar interessant próf sem sýndi það og sannaði að ég er suddalega fyrirsjáanlegur. Fannst spurningar vera of margar, nennti ekki að taka prófið og skilaði auðu. Fékk það út að ég væri einhver Kolbeinn. Þá vaknaði forvitnin Þór sjálfur er Ármann. Skyldi bærast Ármann í mér? Svaraði eftir bestu samvisku og getu og það er engum blöðum um það að fletta að...




Ég er Kolbeinn latínukennari!
Þú ert rólegur, sanngjarn en talar
jafnframt lágt. Þú kannt vel að meta klassískar bókmenntir. Gull af manni.



Taktu "Hvaða kennari 4.B ert þú?" prófið





| 22:16 |
komment

"Þú ert Kristín Kötterheinrich. Þér er ekki sama hvað aðrir kennarar segja um bekkinn og ert mikill aðdáandi þýsks aga. Ágætis manneskja."

Magnað...

Nr. 1 | anna.is | 13.03.2003 | 10:21:52 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff