Ég skal mála allan heiminn...
Þriðjudagur, 25. mars 2003
Gamlir vinnufélagar mínir hafna því alfarið að ég hafi verið með krónískan fýlusvip í áraraðir. Jónas dregur þetta í efa í kommentunum og Laugurin sjálfur hefur gert vísindalega úttekt á þessu. Þar hafiði það. Hvernig getur maður svo verið í fýlu þegar maður er lesinn meira en Mogginn. Verst að maður verður lílkega að fara að vanda sig.
Skattskýrslan er ekki heldur að bögga mig. Aldrei verið einfaldari. Tekjur á árinu = 0 kr. Hlaut að koma að því að maður fyndi eitthvað jákvætt við sviknar launagreiðslur.