»  off record  »  Five to One beibí
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Five to One beibí
Fimmtudagur, 20. mars 2003

Hafði ekki geð í mér til þess að sitja og skrifa opnu um Óskarsverðlaunin í skugga stríðs á meðan sómakært fólk stóð, í hávaðaroki, úti á Lækjartorgi og mótmælti stríði í Írak með þátttöku Íslendinga. Við Guðmundur Steingrímsson Hermannssonar drifum okkur því í mótmælin og máttum dúsa í vinnunni langt fram á kvöld fyrir vikið (ekki það að það hafi ekki verið þess virði). Það fer örugglega um Halldór Ásgrímsson þegar hann fréttir að tveir genasýktir framsóknarmenn, sem hefðu getað orðið helstu vonarpeningar þessa guðsvolaða flokks, hafi gert sér ferð til að mótmæla stefnu hans í utanríkismálum. he he.

Ég hef nú aldrei haft mikla trú á (friðsamlegum) mótmælum en hún fer stigvaxandi með hverjum degi sem líður. Skondið að sjá Villtu vilja milljón kallinn í kommahamnum. Klæðir hann betur en kapítalísk sviðsljósin á Stöð 2. Tillaga að nýju slagorði: "Engin svör fyrir peninga! Engin svör fyrir peninga. Hafðu það Þorsteinn J."
Held að séra Örn Bárður sé aðeins að missa sig í þessu öllu saman. Ræðan hans breyttist amk í hálgert stand up á la Guðni Ágústsson. Skil líka ekkert í klerki að hreinsa hendur sínar og mótmælenda af rauðri málningu þeirra manna sem skvettu á stjórnarráðið. Það var bráðsniðugt. Fíla heldur ekki að vera sagt að biðja fyrir hermönnum beggja liða, hundheiðinn maðurinn. Auk þess sem menn sem eru reiðubúnir til þess að herja á aðra með vopnum í þeim tilgangi að drepa þá verða bara að gjöra svo vel að sætta sig við það að stríð er banvænn bransi og þeir geti sjálfir drepist.

Við Guðmundur erum eitthvað komplexaðir og gátum bara ekki tekið þátt í hrópunum. Þá birtist sem betur fer hann Biggi í Maus og hélt uppi heiðri blaðamannatöffara Fréttablaðsins: "Ekkert blóð fyrir olíu!" Töffið lak svo af mótmælunum þegar byrjað var að kyrja we will prevail eða eitthvað í þá áttina. Það er lame mótmælasöngur. Mæli með að fólk öskri frekar Doorslög. The End, Five to One og Unknown Soldier steinliggja.

Já og bara svona for the record og fyrir Stefán Pálsson, Sverri Jakobsson og aðra sem verða stöðugt fyrir barðinu á teljarafötlun lögreglu og fjölmiðla þá er Billi ljósmyndari klár á að fjöldinn hafi verið nærri 5000. Það er víst ekkert mál að telja þetta, taka bara nokkrar myndir yfir fjöldann, skipta niður í reiti og telja hausa. No big deal. Five thousand. Gott mál.

Five to One

Yeah, c'mon, Love my girl
She lookin' good, C'mon, One more
Five to one, baby
One in five
No one here gets out alive, now
You get yours, baby
I'll get mine
Gonna make it, baby
If we try
The old get old
And the young get stronger
May take a week
And it may take longer
They got the guns
But we got the numbers
Gonna win, yeah
We're takin' over
Come on!
Yeah!
Your ballroom days are over, baby
Night is drawing near
Shadows of the evening crawl across the years
Ya walk across the floor with a flower in your hand
Trying to tell me no one understands
Trade in your hours for a handful dimes
Gonna' make it, baby, in our prime
Come together one more time
Get together one more time
Get together one more time
Get together, aha
Get together one more time!
Get together one more time!
Get together one more time
Get together one more time
Get together, gotta, get together
Ohhhhhhhh!
Hey, c'mon, honey
You won't have along wait for me, baby
I'll be there in just a little while
You see, I gotta go out in this car with these people and...
Get together one more time
Get together one more time
Get together, got to
Get together, got to
Get together, got to
Take you up in my room and...
Hah-hah-hah-hah-hah
Love my girl
She lookin' good, lookin' real good
Love ya, c'mon

The Unknown Soldier

Wait until the war is over
And we're both a little older
The unknown soldier
Breakfast where the news is read
Television children fed
Unborn living, living, dead
Bullet strikes the helmet's head
And it's all over
For the unknown soldier
It's all over
For the unknown soldier
Hut
Hut
Hut ho hee up
Hut
Hut
Hut ho hee up
Hut
Hut
Hut ho hee up
Comp'nee
Halt
Preeee-zent!
Arms!
Make a grave for the unknown soldier
Nestled in your hollow shoulder
The unknown soldier
Breakfast where the news is read
Television children fed
Bullet strikes the helmet's head
And, it's all over
The war is over
It's all over
The war is over
Well, all over, baby
All over, baby
Oh, over, yeah
All over, baby
Wooooo, hah-hah
All over
All over, baby
Oh, woa-yeah
All over
All over
Heeeeyyyy


| 21:47 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff