Föstudagur, 21. mars 2003
Djöfull er mikið til af heimsku og leiðinlegu fólki í heiminum. Þetta er spurning um að kála sér eða drepa alla aðra. Við Bush hugsum voðalega svipað þessa dagana enda er það oft á vorin sem vér hinir þunglyndu gefumst endanlega upp. Óþolandi þegar allt þetta helvítis skítapakk fer að brosa allan hringinn með hækkandi sól. Þá verður manni oft hugsað til bláu dráttartaugarinnar í skottinu eða Tomahawk eldflauganna sinna.
Biggi situr andspænis mér í vinnunni. Hann spurði mig í dag hvað við værum búnir að þekkjast lengi. Tæpt ár gerði ég ráð fyrir. "Þannig að við erum komnir á það stig að ég get spurt þig persónulegrar spurningar án þess að þú móðgist"
Sjúr. Ekkert mál.
"Nú er ég búinn að sitja á móti þér í dálítinn tíma. Getur verið að þú sért með krónískan fýlusvip? Nú held ég að þú sért ekkert í vondu skapi núna en samt ertu með þennan svip." Þetta samtal var eitthvað á þessa leið og ég get nú ekki sagt annað en að mér þyki svolítið vænt um að Biggi skuli veita þessu athygli en þetta er alveg rétt. Þessi athugasemd Bigga vakti enn meiri gleði hjá Önnu sem er búinn að vera að skamma mig fyrir þetta, ja sjálfsagt í einhver ár. En hvað getur maður gert þegar maður er generally pissed?
Hef alltaf ætlað að stela grafskriftinni frá Blackadder og það stendur enn: Here lies Thorarinn Thorarinsson - and he´s bloddy annoyed.
Líklega getur ekkert breytt þessum króníska fýlusvip nema brennivín eða skurðaðgerð en þá á ég á hættu að verða eins og gamla goðið mitt hann Mickey Rourke. Ég hef bara ekki á mér heilum tekið síðan ég sá þetta á Sky. Feisið á einum mesta töffara the nineties er engu betur á sig komið en smettið á Wacko Jacko. Eina huggunin er auðvitað að Mikki var boxari. Það er heimskur guð sem stjórnar heimi sem leyfir Tom Cruise að verða að stórstjörnu og lætur menn eins og Mikka verða dópista, aumingja og fífl.
Einhver Óli hefur lög að mæla. Duran Duran ER vanmetnasta hljómsveit í heimi. Þetta liggur auðvitað í augum uppi ef fólk er ekki þeim mun heimskara, yngra eða ömurlegra.
| 21:56 |