Þriðjudagur, 11. mars 2003
Í dag var leiðinlegt, eins og alltaf. Og þó? en who the fuck cares, anyway. Ég mátti gjöra svo vel að labba beina leið úr vinnunni í Háskólabíó þar sem það er tími til kominn að birta umsögn um Adaption. Það var svo sem ágætt enda þrusugóð mynd á ferðinni. Öllu verra er að þessir apaheilar í Háskólabíói ætla að hætta að sýna Lilya 4-Everí kvöld, þannig að ég verð að fara aftur í bíó á eftir. Það er mikið á mann lagt. En hvernig í veröldinni dettur þeim í hug að hætta að sýna myndinna þó einhverri Skandínavaleppalúðakvikmyndahátíð sé lokið?
Myndin er að raka inn stjörnunum og það orð sem fer af henni er að allir verða að sjá hana. Þá er nú best að taka hana úr sýningu. Vita mógúlarnir ekki að þetta er Moodyson mynd og þeir hafa sýnt bæði Fucking Amal og Tilsammans á almennum/eða Filmundar(RIP) sýningum vikum saman?
Það er alltaf sorglegt þegar menn láta undan þrýstingi þjóðfélagsins, markaðsaflanna og klukkunnar og byrja að læra á bíl á gamals aldri. Dr. Gunnni er víst búinn með nokkra tíma og þar með er síðasta vígi Hulla fallið og hann er að hugsa um að byrja líka að læra á bíl.
Ístöðuleysið hefur alltaf verið mín mesta dyggð og því byrjaði ég að læra á bíl strax og ég hafði aldur til, þó ég kynni ekki muninn á hægri og vinstri.
Ökukennarinn var geðstirt skoffín sem öskraði alltaf upp í eyrað á manni þegar maður tók vitlausa beygju. Þess vegna gleymi ég því seint þegar hinn magnaði Illugi Jökulsson tók næsta tíma á eftir mér, þá 28 ára. Hann hafði ekki ekið lengi þegar hann fékk skipun um að beygja í aðra áttina en gerði sig líklegan til að fara í hina. Kallinn ætlaði að eipa og byrja að garga eitthvað um hvað það ætti að þýða að kunna ekki hægri og vinstri. Illugi var bara ekki rétti maðurinn til þess að dissa fyrir slíkt og gerði honum það ljóst á sinn yfirvegaða hátt í örfáum setningum að einhverra hluta vegna hefði hann komist í gegnum lífið, hingað til, án þess nokkurn tíma að þurfa að kunna hægri og vinstri.
Þetta var stór dagur og ég er enn þann dag í dag að rembast við að kunna ekki hægri og vinstri. Til hvers? Er einhver munur?