»  off record  »  Jón Ásgeir bar á mig fé í dag
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Jón Ásgeir bar á mig fé í dag
Mánudagur, 03. mars 2003

Ég fékk útborgað á hádegi í dag þannig að Jón Ásgeir hefur sennilega verið að bera á mig fé. Veit það samt ekki og er nokk sama. Það er bara svo magnað að fá yfirleitt greitt fyrir vinnu sína.
Tengdamamma hringdi í kvöld. Hún er góð og grandvör sjálfstæðiskona sem á bláa gúmmíhanska. Hún fór fram á, í ljósi síðustu atburða, að ég segði tafarlaust upp störfum á Fréttablaðinu. Þegar ég þráaðist við gaf hún mér það heillræði, í mestu vinsemd, að ég ætti að minnsta kosti að fara að leita að annarri vinnu þar sem það verði bráðum ekkert Fréttablað til. Vildi meira að segja ekki skjóta loku fyrir það að Mogginn tæki við mér þó Davíð hafi veist að starfsheiðri mínum í dag þegar hann lýsti því yfir að blaðamenn Fréttablaðsins séu handbendi Baugs og Samfylkingarinnar og séu drifnir áfram af annarlegum hvötum.
Ég er nú svo afslöppuð týpa að ég nenni ekki að fara á bömmer og í meiðyrðamál við Davíð þó ég telji mig nú almennt ekkert verri blaðamann en gengur og gerist á Íslandi.
Tengdó skilur ekki hvernig ég get sofið á næturnar en ég hef einfaldlega gaman af hasar og ætla ekki að halda þessum orðum gegn Davíð. Hann hefur sennilega verið soldið reiður í morgun og ekkert verið að meina innblaðsmenn sem skrifa um bækur og taka viðtöl við afmælisbörn. Fannst hann líka bara standa sig vel í sjónvarpinu í kvöld. Veit ekki hvað í þessu er Hreinn Uppspuni en kvitta undir allt fyrir 300 millur.


| 19:58 |
komment

Helló Tótallý

Á hvaða reikning viltu fá millurnar?

Jón Aus Gehr úr Bonus & the Beautiful

Nr. 1 | Jón Ásgeir | 4.03.2003 | 14:42:47 | [+] |

Í brúnu umslagi í ruslatunnuna fyrir utan Vesturbæjarlaugina á slaginu 22 í kvöld.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 4.03.2003 | 17:34:47 | [+] |

Ekki bögga mig meira um þessar milljónir, plíss!! Þær áttu að vera hreinar en ekki að koma úr loftinu. Annars er þetta bara skrifað í hálfkæringi svo allir viti það!!

kærleikskveðjur,
Mr. Clean Airbourne

Nr. 3 | Hreinn | 5.03.2003 | 1:49:04 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff