»  off record  »  Mission: Impossible
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Mission: Impossible
Sunnudagur, 02. mars 2003

Það er full hart að þurfa að fara í Smáborgaralind tvisvar á sama árinu, hvað þá sömu helgina. Það mátti ég nú samt gera í gær og í dag. Allt vegna þess að einhverjum hálvita datt í hug að færa bókamarkaðinn þarna lengst upp í Kópavog. Well, þetta var engu að síður nauðsynlegt. Sleppti því nefnilega að kaupa pakka með Hulk blöðum frá Siglufjarðarprentsmiðju í fyrra og hitt eð fyrra. Var áskrifandi að þessum blöðum 1984 og kynntist þá fyrst fyrir alvöru flottustu Comix hetju ever, Daredevil. Aftast í Hulk blöðunum var nefnilega sagan hans snillings Frank Miller um Daredevil og Elektru. Týndi þessu auðvitað í gegnum árin, saknaði blaðanna gífurlega þar til ég eignaðist þetta allt saman á bókum á frummálinu (keyptum í Nexus að sjálfsögðu). Fannst samt eitthvað sentimental við að eignast þetta aftur á íslensku prentað á ruslpappír. Líka gott að starta krökkunum á þessu á íslensku.
Keypti einnig bókina hans Jóns Óttars um Stöðvar 2 ævintýrið á 298 kr. Keypti einu sinni Fimmtándu fjölskylduna á 250 kall, þannig að þetta er að verða hefð að kaupa alltaf Jón Óttar. Strengjabrúður næst og svo Næringu og heilsu.
Fór svo aftur í dag og náði mér í árgang af Tarzanblöðum. Eðalrusl fyrir late night read.

Sá vitaskuld Daredevilmyndina um helgina. Þarf aðeins að melta vonbrigðin áður en ég geri upp við hana. Affleck er ekki það versta við hana og Elektra er ok hjá Alias gellunni.


| 23:38 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff