Mr. ASS, may I call you JACK?
Fimmtudagur, 13. mars 2003
Klukkan er 21:15 og ég er enn í vinnunni og þó það sé voða gaman ætti ég auðvitað að vera löngu kominn heim en þannig er mál með vexti að ég fékk bókað viðtal viðeinhvern vitleysing sem heitir Steve-O og er leiðtogi Jackass gengisins klukkan 20.00. Fluginu þeirra seinkaði og ég er enn að bíða. Þetta heldur greinilega að þetta sé eitthvert seleb.
Ég bjargaði deginum hans Jónasar í dag. Það var alveg sjálfsagt mál, sem sagt ekkert að þakka Jónas minn. Vissi ekki að fólk skoðaði úrklippurnar en hef samt verið að leita að nýju gömlu stöffi til að setja þarna inn. Bíðiði bara.
Laugurinn er dr. Ármann en veit ekkert hversu merkinagþrungið það er. Jónasi Svanfríðarsyni þykir það hins vegar soldið sniðugt en hlýtur samt að hafa nokkrar áhyggjur af þessum góða félaga sínum:
hehe, Gulli er Ármann Jakobsson ofur græningi.. Ég er með þá lífsskoðun að ef maður finnur sig í þeirri aðstöðu að vera sammála þeim bræðrum eða Stefáni Pálssyni, þá eigi maður að endurskoða afstöðu sína mjög rækilega, því það sé mjög líklegt að maður hafi vitlaust fyrir sér :)
Það er að frétta af Lilyu 4 Ever að printið er sennilega farið úr landi vegna heimsku manna. Nánar um það síðar en það er verið að vinna í því að redda mér henni á myndbandi.