»  off record  »  Organistinn fer á kostum
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Organistinn fer á kostum
Mánudagur, 17. mars 2003

Einn ágætur fastagestur hér á BadaBing!, Organistinn, fer á kostum í kommenti hér fyrir neðan og ég sé mig tilneyddan til að birta innlegg hans. Hann er þá fyrsti gestapenninn sem birtist á BadaBing! ef frá er talinn Laugurinn sjálfur, en bíórýni hans var birt unbdir liðnum "aðrir" á gamla BadaBing! anna.is á eftir að importa það hingað.
Námskeiðslýsig Organistans á umdeildu bloggnámskeiði sem kenna í íslenskuskor heimspekideildar HÍ í vetur hittir beint í mark.

Annars tók ég eftir því að fólk er að auglýsa eftir námskeiðislýsingu og slíku fyrir Blogg, blogg, blogg! Organistinn var svo heppinn að komast yfir frumdrög að fyrirlestraskránni á ónefndri skrifstofu á Árnagarði. Hér er þetta:

Blogg, blogg, blogg! (5e)

Vormisseri 2004. Árnagarður.

I. BLOGG OG BÓKMENNTIR:


Ástráður Eysteinsson, prófessor. Blogg sem nútímabókmenntir.

Guðrún Norðdal, dósent. Rannsókn á stafsetninga- og málvillum á fimmtíu íslenskum bloggsíðum.

Mörður Árnson, íslenskufræðingur. Málfar á bloggara.

Stefán Snævarr, dósent í heimspeki við háskólann í Lillehammer í Noregi. Blogglenska sem ógnun við sjálfstæði og menningu Íslands.

Matthías Viðar Sæmundsson, dósent. Þjóðfélags- og menningargagnrýni á bloggsíðum.


II. FÉLAGSFRÆÐI BLOGGS:

Stefán Friðrik Stefánsson, pizzusendill. Bloggsíða sem tæki til að kyssa rassinn á ráðandi öflum.

Dr. Gunni, radio personality. Blogg as an instrument to pick up young chicks for sex, and to connect with your drug dealer.


III. BLOGGTÆKNI:

Björn Bjarnason, alþingismaður. Bloggað með zetum og prik í rassinum -- hvernig hægt er að halda úti nákvæmri dagbók á vefnum um áraskeið án þess að segja skapaðan hlut um líf sitt.

Anna-punktur-ís, skrifstofustjóri. Bloggað á klósettinu -- hvernig hægt er að blogga einu sinni í mánuði og segja allt um líf sitt.

Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður. Hvernig hægt er að rækta hriðfífl við bloggsíðu -- Refurinn Loki og Organistinn: a case study.

Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor. Ódýrt blogg í svörtum römmum: Mogginn sem bloggmiðill og Styrmir sem webmaster.


IV. SÁLFRÆÐI BLOGGS:


Þórarinn Leifsson, grafískur hönnuður. Blogg sem tæki til að lina sársaukann og bæta ímyndina þegar maður er að breytast úr kúl hippster í feitan sköllóttann smáborgara með eigin atvinnurekstur.

Ármann Jakobsson, menntaskólakennari. Stalking bloggara og sálræn vandamál í kjölfarið.

Jónas Kristjánsson, ritstjóri og Ágúst Flygenring, nemi. Blogg til að aflétta kynferðislega spennu. Tvær kynslóðir íslenskra
intlelligenta rúnka sér við súpergelluna Moreen Dowd.

Ég verð að viðurkenna að ég hélt bara að þetta væri the real thing þar til ég sá að ég og Stebbifr. vorum ásamt eiginkonu minni í hópi fyrirlesara.
Organistinn er dularfullur mjög og virðist oft vita meira en eðlilegt getur talist. Stebbifr hefur meira að segja lagt orð í belg í kommentunum og þvertekur fyrir það að hann sé pizzusendill. Þá spyr hann Organistann hvort hann eigi eitthvað heimili á vefnum.
Organistinn hefur engu svarað umn það enn en stundum finnst mér hann grunsamlega nálægur, ekki síst á Öskudaginn.


| 23:24 |
komment

Heilir og sælir Tóti og Stebbi:

Ég þakka heiðurinn að vera publisheraður á Badabing!

Eins og þú manst Stebbi, þá bað ég um CV-ið á Innherjum og þar sem það kom aldrei varð ég bara að giska.

Organistinn er á vefnum en ekki sem bloggari. En til að forðast misskilning þá er Organistinn að jafnaði nær heimaslóðum Raymond Chandler en Reykjavík. Ef ég gæti flutt mig aftur í tímanum þá værum við Chandler nágrannar.

Nr. 1 | Organistinn | 18.03.2003 | 2:33:54 | [+] |

Hádí,

Passaðu þig á smjörhnífunum næst þegar Santa Ana blæs. Lesendur BBing eru byrjaðir að eltast við þig á grundvelli LA setunnar. Þú ert núna ýmist Jón Óttar eða Jonni Sighvats. Viltu velja?

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 18.03.2003 | 21:26:27 | [+] |

He, he...best að hafa engin komment.

Eins og StebbiFr mundi orða það: "játa þessu hvorki né neita, það er alveg ljóst. Það hefur komið fram áður hjá mér. Mín afstaða er alveg klár. Ég hef ekki farið leynt með þá ákvörðun mína að játa hvorki eða neita, hvort sem menn hafa rétt eða rangt fyrir sér. Ég hef sagt það áður til að gera það alveg ljóst".

Með Santa Ana kveðjum,

Organistinn

Nr. 3 | Organistinn | 19.03.2003 | 3:36:23 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff