»  off record  »  Tale of an Ordinary Madness
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tale of an Ordinary Madness
Laugardagur, 08. mars 2003

Eins og allir vita er Fréttablaðið flutt á Suðurgötuna. Það er gott enda var margur óhreinn andinn í Þverholti 9. Staffið fagnaði þessu í gær á Vínbarnum sem á sér stutta og örlagaríka sögu.
Það fátt skemmtilegra en að drekka bjór með blaðamönnum og -ljósmyndurum. Upp til hópa leiftrandi skemmtilegt fólk. Allt svolítið beyglað á sálinni auðvitað, enda varla annað hægt þegar maður veltir sér eins og fiskur í raspi upp úr viðbjóði, slysum, dauða, undirferlum, prettum, mútum, lygum og hálfkæringi alla daga.
Þar sem ég er orðinn hófdrykkjumaður og neyti einungis þriggja bjóra í senn tókst mér ekki að móðga neinn svo orð sé á gerandi. Það fylgir því dálítil tómleikatilfinning en maður hlýtur að læra að lifa með þessu.
Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það að það er heilmikil kúnst að halda sig innan þriggja bjóra múrsins, sérstaklega þegar maður er búinn með þessa þrjá. Við EIR vorum að stúdera þetta vandamál um daginn. Það er auðvitað ljóst að það tekur því ekki að drekka einn bjór. Fullkomlega tilgangslaust. Tveir eru æskilegastir en þá kemur þetta með sjálfstjórnina inn. EIR leggur til að þetta verði haft í pilluformi til að minnka hættuna á of stórum skömmtum. Mér líst vel á það.
Eins og alþjóð veit er Eiríkur Jónsson með næmt auga fyrir því spaugilega í tilverunni og hann skemmti sér konunglega þegar ég mætti í vinnuna á föstudaginn í A Beautiful Mind flíspeysunni sem hann Christof markaðsmógúll hjá Sam/Háskólabíói gaf mér fyrir margt löngu. Það er víst svo kómíkst að "svona snargeðveikur maður" gangi um merktur A Beautiful Mind. Ég er kominn með allt í fullan gang að reyna að redda EIR svona peysu líka. Þetta eru flottar og gáfumannalegar flíkur.


| 19:58 |
komment

Segðu Gunnari Smára að setja þetta á forsíðu Fréttablaðsins.
http://www.guardian.co.uk/Print/0,3858,4620076,00.html

Djöfulsins BÚSS helvítis argh ég er að missa mig í anti-usa pakkanum og Jónas er orðinn hræddur við mig.

Nr. 1 | Laugurinn sjálfur | 9.03.2003 | 6:36:58 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff