Mánudagur, 10. mars 2003
Eitt það skemmtilegasta sem maður gerði í bókmenntafræðinni var að greina allskonar drasl í textum. Það dásamlegasta við þetta var að höfundurinn þurfti alls ekki að hafa hugmynd um að þetta væri endilega í textanum hans. Ég var búinn að gleyma hvað þetta gat verið skemmtilegt þangað til ég álpaðist inn á Kistuna og las það að Auga Saurons í LOTR myndunum sé píka. Magnað að jafn pervertískur maður og ég skyldi ekki sjá þetta (sé sköp allstaðar. Sat á Vínbarnum, eins og frægt er orðið um daginn, og á öðrum bjór fékk ég ekki betur séð en að sköp í ramma skreyttu vegginn fyrir framan mig) en það er hætt við að antiklæmaxinn í The Return of the King verði all svakalegur þegar litlu hobbitatyppin tvö komast að því að Sauron er bara tussa. Það má svo sprengja þetta út með því að gefa sér að LOTR snúist um piercing þar sem það má öllum vera ljóst að sköpin þrá það að fá hring. Right?
Þessi hressilega femíníska greining á LOTR og þeim (væntanlega) skapadægrum sem bíða Frodo og geðklofa sáðfrumunar Gollums býður upp á ný og stórskemmtileg sk(r)authvörf fyrir menn sem eru beittir þeirri tegund andlegs ofbeldis heima fyrir að fá ekki að ríða nema þegar þeir eru góðir. Hugtakið yfir þetta hefur hingað til verið pussywhipped eða eitthvað þvíumlíkt. Það er hins vegar miklu flottara að koma hokinn í vinnuna, hrista hausinn yfir fyrsta morgunkaffibollanum og segja við félagana "æi, Auga Saurons er bara alltaf lokað þessa dagana".
Andrew Dice Clay er hins vegar ekki femínisti og segir bara:
Georgy, Porgy, pudding and pie.
Jerked off in his girlfriends eye.
When her eye was trying shut.
Georgy fucked that one eyed slut.
Svo mörg voru þau orð. En það eru fleiri sköp á kreiki í öðrum nördamyndum. Kíkjum til dæmis á Star Wars. Það dylst auðvitað engum að Freud ríður þar húsum, en eru sköp í bakgrunninum?
Fyrir lifandis langa löngu,
í sköpum langt, langt í burtu.....
Var drengur sem fór með geislafallusinn sinn gegn vonda föður sínum and the rest is history.
Sjáiði þessa mynd úr The Empire Strikes Back. Var einu sinni með svona mynd uppi á vegg hjá mér og á einu fylleríinu fékk ég það sem alkakvikindi kalla a moment of clarity og fattaði að þeir feðgar standa þarna og slá saman geislafallusunum sínum (I see your Schwarz is as big as mine) með gríðarstór sköp í bakgrunninum. Þetta sexkantaða gluggamynstur er auðvitað op (þó lokað sé. Sauron sefur í SW) og þarna takast þeir sem sagt á Ödipus og Laius þó Jókasta sé hins vegar fjarri góðu gamni enda tilheyra sköpin Natalie Portman þó það kæmi ekki á daginn fyrr en mörgum árum seinna.
Jamms. Þær vita hvað þær syngja í Kistunni, enda eru sköpin alls staðar ef vel er að gáð. Á veggnum á Vínbarnum, Í LOTR, Star Wars og út um allt í hryllingsmyndum. Munnurinn á Drakúla er t.d. bara tennt vagína á túr. Svona er þetta nú magnað. Þeir sem halda að Star Wars sé fyrir börn og hafi engar skýrskotanir til hvatalífsins og skapa ættu að skoða þetta. "There's an awful lot of moisture in here." o.s.frv.
| 22:22 |