Þriðjudagur, 29. apríl 2003
Rosalega fékk BadaBing! góða auglýsingu í Sópranós í gær. Hvað gerir maður eftir að maður er búinn að slátra skítalabba eins og Ralphie, brytja hann niður, sökkva skrokknum og jarða hausinn?
Maður fer í sturtu í búningsklefa fatafellnanna á BadaBing! og klæðir sig í svartan BadaBing! dyravarða bol og sofnar á sóffanum.
Kúl þáttur. Maður er auðvitað búinn að bíða lengi eftir að Ralphie yrði lógað en samt á maður eftir að sakna skepnunnar. Merkilegur náungi. Þeir sem vorkenndu honum vegna þess að sonur hans var í tómu tjóni á spítala skal bent á að hann lét kála stjúpsyni sínum án þess að blikka auga og barði fatafellu í hel. What goes around comes around. Hann hefði að vísu komist upp með þetta and then some ef hann hefði ekki farið í fýlu og kveikt í blessuðu veðhlaupahrossinu af því Tóný var að taka í kærustuna hans. Það eru takmörk.