»  off record  »  Bílslys í Írak
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bílslys í Írak
Miðvikudagur, 02. apríl 2003

Skil ekkert í því að enginn kommabloggarinn sé búinn að býsnast yfir geggjuðum ummælum forsætisráðherra, í Kastljósinu í vikunni, um mannfall í Íraksstríðinu. Samkvæmt bókhaldi hans virðist enginn Íraki hafa fallið. Að minnsta kosti enginn sem tók því að nefna sérstaklega og þar sem telja má fjölda þeirra Bler og Bússmanna sem fallið hafa fyrir hendi samherja sinna á fingrum beggja handa og tám beggja fóta þá er það nú bara "eins og bílslys".
Ákaflega ósmekkleg samlíking og í ljósi þess að þrír Íslendingar höfðu beðið bana í bílslysum nokkrum dögum áður er maður enn að velta fyrir sér hvaða geðveiki PR-maður bjó þennan frasa til. Það er útilokað, skyldi maður ætla, að þrautreyndur og klókur stjórnmálamaður misstígi sig svona hrottalega.
Það skilur þó líklega enginn stríð og þannig er kannski bara allt í lagi að bera það saman við einhvern allt annan og óskyldan raunveruleika.
Dóttir mín var til dæmis að glíma við ljóðið Slysaskot í Palestínu um daginn. Það hreyfði við henni (rétt eins og það gerði í mínu tilfelli í gamla daga). Það eina sem hún skyldi ekki var að dáðadrengurinn breski skyldi afsaka sig með því að hann ætlaði að drepa pabba litlu stúlkunnar en ekki hana sjálfa. Einhverra hluta vegna virtist hún ekki sjá hvað væri betra við það. Ég átti ekki gott með að verja þessa lógík heldur en greip nú samt ekki til þess að segja. "Sko, Jóhanna mín, það er nú bara þannig í bílslysum að þá spyr dauðinn ekki um aldur og bla, bla,bla....."


| 21:01 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff