»  off record  »  Coke is it
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Coke is it
Mánudagur, 21. apríl 2003

Jæja, þarna gekk hún loksins of langt:

ohh eina vonda við að drekka pepsi er að írafár drekkur pepsi.. ég veðja samt að þau drekka kók þegar enginn sér til.. því tjokkóar drekka kók.. töffarar drekka pepsi..

Selfyssingar drekka sjálfsagt helst Sprite og tjokkóar vatn með e-inu en að halda því fram að ómenntað, grunnhyggið plebbahyski hafi það fyrir eitthvert lífsmottó að drekka Kók er í besta falli far out.
Pepsi er auðvitað drykkur tölvunördana og Jónas (skoðið snilldina sem Laugurinn sjálfur setti inn á síðuna hans. Brilljant stöff) drakk alltaf Pepsi á Strikinu og það er alveg gegnumgangandi með tölvunörda in general að þeir drekka Pepsi sem er of sætt,hallærislegt og vont.

En það er líka til fólk sem drekkur Captain Morgan og heldur að það sé romm. Bacardi er rommið og Kók er kóladrykkurinn. Hitt er ónýtt drasl. Tölvunördarnir átta sig ekki að þeir hafa verð co-optaðir ef markaðshyski Pepsímafíunnar sem kynnti sullið sem valkost nýrrar kynslóðar (það þarf sterk bein til að standast þetta og vera fylltrúi hverfandi kynslóðar, right?) þegar Birgitta í Írafári og Katrín.is voru enn með bleyju. Þeir sem drekka Pepsi eru í tilvistarkreppu og eipa þegar þeir verða þrítugir af því það er svo hræðilegt að eldast og nýja kynslóðin þarf að fara að tékka sig út.
Við hin sem höfum séð þetta, allt og gert þetta allt drekkum Kók einfaldlega af því að það er betra. Pespi er lélegt ljósrit af fullkomnu listaverki apótekarans Johns Pempertons.
Þetta er ekkert flóknara og Pepsi bítur ekki fílinn.


| 23:06 |
komment

ójá,, og til frekari staðfestingar má benda á að engin heilvita maður mindi blanda áfengið sitt með pepsí.

Nr. 1 | Billi | 22.04.2003 | 0:41:30 | [+] |

Pepsi gerði sitt til að losa heiminn undan áþján Michael Jackson. Þess vegna drekk ég Pepsi. Light.

Nr. 2 | AlanHudson | 22.04.2003 | 3:23:29 | [+] |

Organisti og Loki, í hvaða ZIPpum eruði? Westurströndin?

Ég skulda ykkur sjúss.

Nr. 3 | AlanHudson | 22.04.2003 | 4:14:52 | [+] |

"Teik mí hóm köntrí ród..." Ég verð bara alltaf svona þegar ég sé mynd af Guðna Ágústssyni eða fæ geisladisk með karlakórnum Heimi. Organistinn er víst að skrifa einhverja bók um geimfara. Um daginn var hann tala um eitthvað "point of no return" í sögunni. Geimfarinn svífur víst þarna þúsund kílómetra yfir jörðinni og kvelst af spurningunni "Mundi ég að slökkva á eldavélarhellunum heima?". Bókin á víst að heita "Charles Manson lifir", eða eitthvað í þeim dúr. Alan Hudson stakk uppá "Ég brosi í gegnum tárin".

Nr. 4 | Refurinn Loki | 22.04.2003 | 6:06:20 | [+] |

Alan:

Til hamingju með snilldarinnleggið um biskupinn á Innherjum! Ég var á leið inn þarna til að setja texta við bænina þar sem biskup bað fyrir geðheilsu BB, en sá að ég gat engu við bætt.

Organistinn er nágranni Raymond Chandler. Hins vegar hefur félagsráðgjafinn Loki ekki gefið upp sína staðsetningu. En manni virðist Loki ganga um í sandölum og búa annaðhvort á Norðurlöndum eða í Þýskalandi.

Ok, Loki, gefðu okkur hint.

Nr. 5 | organistinn | 22.04.2003 | 6:55:07 | [+] |

BTW Allan, í hvaða ZIPi ert þú?

Nr. 6 | organistinn | 22.04.2003 | 7:15:05 | [+] |

Býr við hliðina á Raymond Chandler? Er ekki þröngt þarna á kirkjugarðinum? Er organistinn kannski Indriði miðill og rekur ferðaskrifstofuna "One way ticket to the Big Sleep"? Organistinn er alltaf eins og góður draumur, sem maður reynir að framlengja eftir bestu getu. En eins og allir vita, verður erfiðara að vakna eftir því sem við sofum lengur.

Annars fer Hudson á kostum þarna á visir.is

Nr. 7 | Refurinn Loki | 22.04.2003 | 7:36:01 | [+] |

Já sælinú.

Skil ekki alveg hvað þú ert að meina með að tölvunördar drekki pepsí. Þeir drekka held ég frekar kók og bryðja kaffibaunir meððí (allavega gerði ég og Grétar það á meðan við vorum professional nördar). Annars hef ég ekki hugmynd um þetta. Veit hinsvegar að í amríku fokkins amríku drekka nördarnir að sjálfsögðu "the world's most powerful cola!" Ég er að tala um Jolt Cola, sem inniheldur 2x meira magn koffeins en fyrirfinnst í Coca Cola. "JOLT is popular with entertainers, musicians, computer programmer or just about anybody who burns the midnight oil. Often these are Americas hardest working people. Occational exhaustion is part of a demanding lifestile" - www.joltcola.com

Hmmm, er þetta ekki ég sem þeir eru að tala um?

Og afhverju er ég ekki að mökkgræða á því að flytja inn þetta baneitraða stöff?

Nr. 8 | Laugurinn sjálfur | 22.04.2003 | 10:13:55 | [+] |

Ég gleymdi að segja þér að ég varð fyrir magnaðri reynslu um daginn. Er búinn að sjá ljósið. Halógenljósið í ríkinu.

Fór á Tequila fyllerí fyrir 2 vikum og fannst það magnað. Fékk mér 19 ára visskí í síðustu viku og fannst það hresst. Maður er allur að koma til drykku-wize. Búinn að finna mér trademark drykk og allt - White Russian. The Dude kynnti mig fyrir þeim snilldadrykk - hann drakk ekki annað og það er nógu gott fyrir mig.

Hvenær eigum við svo að detta í það?

Nr. 9 | Laugurinn sjálfur | 22.04.2003 | 10:46:56 | [+] |

Laugurinn minn það er auðvitað forgangsverkefni að detta í það með yður. Sem sagt sem fyrst enda allt of langt síðan síðast.Fíla samt ekki milk and alcohol, nema með Dr.Feelgood þannig að þú sérð um Hvíta Rússann og ég skal sjá um þann Svarta.

Nr. 10 | Tóti sjálfur | 22.04.2003 | 20:35:31 | [+] |

Í hitasóttinni birtust þeir mér allir - tóti, organistin og alan hudson.

Mig dreymdi að ég hljóp á Pan American Highway. Á hælum mér kom bleikur Coupe de Ville. Bak við stýrið sat maður í þotuskóm með áskrift að 3 túpum af brilljantíni á viku. Maðurinn við hlið hans drakk bjór bjór og kvartaði yfir að hafa lent í vitlausri skáldsögu. Bílstjórinn reyndi að hugga hann. "Þú hefði getað endað í Sjálfstæðu fólki, kalt og saggaríkt baðstofulíf, eilíf vosbúð, engin blöð og ekkert sjónvarp."
Sá i baksætinu var umvafinn KR-treflum þrátt fyrir hitann. Hann söng eina lagið sem hann kunni "Drinkin' rum and Coca-Cola. Go down Point Koomahnah.....Oh, beat it man, beat it"

Ég hljóp og hljóp en það var til einskis. Brilljantínmaðurinn gaf í og allt varð svart....

Nr. 11 | Refurinn Loki | 23.04.2003 | 6:27:46 | [+] |

He, he, og bílstjórinn var edrú?

The pressure is on Tóti. Tveir úr hirðinni þinni, FélagsráðgjafinnLoki og Alan, fara á kostum og skuggi fellur á kónginn. Enginn nennir í Cola stríð á Íslandi; það vantar allan menningarlegan grundvöll fyrir það.

En Sínalkó, þar er drykkur sem ekki fæst í Ralphs og Organistann dreymir um í hvert skipti sem hann verður þyrstur.

Nr. 12 | organistinn | 23.04.2003 | 17:21:13 | [+] |

Sinalco er þýskur svaladrykkur. Minnir að -etta sæe samsett orð, sin + alco = án alkóhols.

Nr. 13 | Refurinn Loki | 23.04.2003 | 17:46:49 | [+] |

Sómakært fólk drekkur ekki slíkt glundur. Ólyginn sagði mér auk þess að liturinn væri ættaður frá þvagefni.

Nr. 14 | AlanHudson | 23.04.2003 | 18:22:28 | [+] |

Miðvallarspilarinn úr Chelsea má sæta hörðum ásökunum söngfugls þeirra Gaflara. Næturgalinn hvíslaði því að mér að TC framfleytti sér á kráarsöng þarna vestra. "They dont make Jews like Jesus anymore" er þó ekki á prógramminu.

Nr. 15 | Refurinn Loki | 23.04.2003 | 18:39:19 | [+] |

Færðu aldrei nostalgíuköst rebbi? Danski bjórinn er nú betri en budsullið.

Nr. 16 | AlanHudson | 23.04.2003 | 20:02:15 | [+] |

Ég vaknaði, en draumurinn hélt áfram. Núna var í Austur-Berlín anno 1966. Svartur Coupe de Ville rennir upp að hlið mér og út stígur Eric Honecker með Bud í annari hendinni. Allt er kalt og grátt. Bauhaus meets Bud. Sá fyrir mér 99 ár í Síberíu með Solzhenitsyn. Kannski yrði ég látinn laus í skiptum fyrir 600 tonn af Siglósíld? Nei, líklega ekki.

Hvers vegna þessi nostalgía, mein freund? Gerðu bara eins organistinn, be happy in La Jolla.

Nr. 17 | Refurinn Loki | 24.04.2003 | 6:02:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff