»  off record  »  Ég lýsi hér með yfir
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ég lýsi hér með yfir
Laugardagur, 26. apríl 2003

fullum stuðningi við Framsóknarflokkinn... eða þannig sko.

Það kom framsóknarkona upp á ritstjórn um daginn og var að safna undirskriftum. Vantaði 400 hausa til að lýsa yfir fullum stuðningi við framsókn. Undirskriftarlistunum þarf svo að skila niður í dómsmálaráðuneyti fyrir tilskilinn tíma (sem er útrunninn) annars fá flokkarnir ekki að vera memm. Skilst að Sjálfstæðismenn hafi verið að klúðra þessu og fengið frest (það er meira en sumir hafa fengið í gegnum tíðina, ha, Ástþór?).

Skítt með það, ekki gekk henni vel að safna undirskriftum og þetta blaðamannager sem hún var að reyna við vildi bara vita hvort X-B hefði gleymt sér og allt væri í volli og hvort þarna leyndist frétt (sbr. fréttin hér fyrir ofan). Ekki vildi maddaman kannast við það en var þá bent á að tala við mig þar sem það væri aldrei að vita nema mér rynni framsóknarblóðið til skyldunnar. Og viti menn! Ég lét undan og hef hér með lýst yfir fullum stuðningi við Framsóknarflokkinn. Mér dettur þó ekki til hugar að spandera atkvæðinu mínu á helvítis draslið (framsóknarkonan sagði líka að ég þyrfti þess ekki neitt, bara skrifa undir). Flokkinn mun ég aldrei kjósa en hef friðað framsóknargenið með því að gera honum kleift að bjóða fram í mínu kjördæmi, Reykjavík, norður, suður eða whatever...

Annað....
Fólk hefur verið að stöðva mig úti á götu og víðar til að hrósa mér fyrir þessi skrif...

Helvíti er Ísland í bítið annars slappur þáttur. Eða er ég svo vitlaus að fatta það fyrst núna? Óli Björn "Ég-er-DV-tussa-með-gjaldþrota-framtíð", var þarna í morgun og tókst einhvernveginn að koma bílnum sínum inn í umræðuna eins og alltaf þegar hann er í sjónvarpinu. Af hverju er hann svona æstur að láta skatttinn vita af bílnum? Sjálfstortímingarhvöt?

... og þannig þykir mönnum sem mér sjálfum þykir mikið til koma ég vera áræðinn og djarfur maður fyrir að láta þessi orð falla um eina aðalritstjórann sem starfar á íslensku blaði. Bömmerinn er bara sá að hér er fólk að fara Tótavillt. Við Tóti Leifs erum sjálfsagt báðir snillingar og töffarar, hvor á okkar hátt. Hann er aftur á móti þessi sem er alveg eins og Tóný Sópranó en ég er þessi sem er eins og aukapersóna í skáldsögu eftir Ole Lund Kirkegaard.


| 23:01 |
komment

"Fólk hefur verið að stöðva mig úti á götu og víðar til að hrósa mér fyrir þessi skrif..."

Hvernig er að vera svona frægur Tóti? Eitthvað sem þú mælir með? Fylgir ekki þessu rosalegt áreiti að fást við æsta aðdáendur?

Nr. 1 | Refurinn Loki | 27.04.2003 | 16:35:49 | [+] |

Blessaður vertu Loki minn þetta er alveg svakalega óþægilegt, sérstaklega þar sem þetta eru oftar hatursmenn en aðdáendur. Annars þarf ég ekki að kvarta eins og sést best á því að ég er ekki frægari en svo að mér er ruglað saman við allt aðra Tóta.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 27.04.2003 | 17:37:25 | [+] |

Hvernig er það refur, vizkubrunnurinn óháður segir að þú gangir ennþá ljósum logum á innherjum. Varstu ekki búinn að lofa Bigga að hætta þar?

Nr. 3 | AlanHudson | 29.04.2003 | 2:48:58 | [+] |

Hver er Biggi?

Nr. 4 | organistinn | 30.04.2003 | 6:32:29 | [+] |

Hver er Biggi? ertu þá að spyrja um sessunaut minn í vinnunni. Hinn magnaða tónlistarmann og eðaldreng Bigga í Maus? Við drottnum saman yfir poppkúltúrumfjöllun Fréttablaðsins. Drengir góðir báðir en Biggi er fallegri.

Nr. 5 | Tóti sjálfur | 30.04.2003 | 10:04:32 | [+] |

Biggi er Trúleysinginn sobbeggi aka birgir.com sem herjar á innherjana Kristmann, prest og félaga.

Nr. 6 | AlanHudson | 30.04.2003 | 16:31:24 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff