Þriðjudagur, 22. apríl 2003
Sýnist á öllu að ég verði að skipta um símafyrirtæki. Þetta Og Vodafone dæmi er svo skelfilega uncool að ég er enn að ná upp í það. Sjálfsagt hefur einhverju markaðsviðundrinu fundist þetta bjóða upp á ótal skemmtilega möguleika á orðaleikjum og margræðni í auglýsingum. Ég sé þetta nú samt ekki og fæ ekki betur séð en að þetta muni helst koma af stað sögusögnum um að forstjórinn sé með mikilmennskubrjálæði: Góðan daginn ég er Óskar Magnússon forstjóri og Vodafone. Svo fékk ég SMS frá þessu og Vódafón um helgina: Gleðilega páska Og Vodafone. Páskarnir voru ekki rassgat gleðilegir og aldrei hef ég upplifað neitt gleðilegt Vodafone.
Þetta er rotið.
Ég þráaðist lengi við og vildi ekki fá mér svona GSM síma en gafst að lokum upp enda er þetta helvítis drasl atvinnutæki og jafn mikilvægt blaðamanninum og tjöruborin lungun. Byrjaði með númer hjá Tali (enda alltaf þótt ljóti skámeistarinn Tal flottur) þó Þórólfur hafi gert mér lífið leitt þegar ég var á bensínstöðinni og hann markaðsstýrði Esso og var með þá amerísku flugu á heilanum að kúnninn hefði alltaf rétt fyrir sér og klósettin ættu að vera hrein. Það skipti ekki máli. Prinsippið var auðvitað bara að skipta ekki við viðbjóðslegan Landssímann.
Þegar ég fór að vinna á Strikinu (sem Íslandssími RIP) átti fékk ég flott Íslandssímaforstjóranúmer og gat talað út í hið óendanlega án þess að borga og því ekkert annað að gera en að skilja við Tal. Svo rann allt draslið saman og nú hef ég bara tvo valkosti; Satans Landssímann eða hallærislegan Vódafóninn. Þetta væri krísa ef ég væri ekki þessi yfirvegaða týpa.
Nenneggi í bíó og veit ekki hvort ég eigi að leggja það á mig að lesa meira í Stupid White Men í bili. Pirrandi gaur þessi George W. Bush.
Hvernig er það annars með þessa tónlistarmenn. Ég vann með Gulla í Brain Police í tæp 2 ár og held ég hafi aldrei heyrt lag með sveitinni og nú sit ég á móti Bigga í Maus og hef ekkert heyrt af nýju plötunni. Eru menn ekki að standa sig í plögginu eða liggur rót vandans hjá mér? Ha, Laugurinn minn, svaraðu nú?
| 20:58 |