»  off record  »  Laugurinn mælir
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Laugurinn mælir
Mánudagur, 28. apríl 2003

Gulli er að sjálfsögðu The Dude á Lebowski prófinu. hefði getað sagt honum það strax. Honum leist ekkert á að ég væri nihilisti og eiginlega fannst mér það ekki nógu gott sjálfum þó Adrian Mole sé ágætis náungi. Gulli fletti orðinu upp og fann þetta:

Mér líst samt ekkert á að Tóti sé snargeðveikur níhilisti skv prófinu... Hvað er níhilisti annars? Research....
Fann hérna skilgreiningu rithöfundarins Turgeniefs á níhilista:

A Nihilist is a man who does not bow before any authority whatever, who does not accept a single principle on faith, with whatever respect that principle may be environed.


Jú annars þetta stemmir allt.-

og við erum báðir sáttir.

Laugurinn er skarpur (hefur það ekki komið fram fyrir löngu að hann er snilli?) og gerir athugasemd við það að vefurinn Ungfrú Ísland.is er frekar morkinn með tilliti til þess að keppnin er nýafstaðin. Það er merkilegt með marga sem halda úti vefjum að þeir virðast ekki hafa neinn skilning á því að reglulegar uppfærslur eru eiginlega það eina sem gefur helvítis draslinu gildi. En það græðir auðvitað engin á því að uppfæra vefi á þessu skítaskeri. Það er málið elsku Organistinn minn. Annaðhvort gerir fólk þetta í sjálfboðavinnu eða lætur svíkja sig um launin.

Þeim sem eru spenntir fyrir fegurðarsamkeppnum og dauðum vefjum bendi ég á þessa síðu sem ég pússlaði saman fyrir Skó drekans á sínum tíma (mörgum mánuðum áður en að þessi ágæta mynd fékkst loks sýnd opinberlega. Þá var vefurinn löngu úldinn, rétt eins og Ungfrú Ísland.is núna) Lífið er sniðugt.


| 23:47 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff