»  off record  »  Mr. Mojo Risin´
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Mr. Mojo Risin´
Sunnudagur, 06. apríl 2003

Ég er í brjáluðu skapi og búinn að viða að mér ársbyrgðum af áfengi.
Vei þeim sem verða á vegi mínum.
Birni Bjarnasyni og öðrum verður svarað betur síðar.
Alanhudson þú átt að tala beint við mig, ekki konunamína.
Organisti, hvar ertu?
Fann skúbb aldarinnar á fylleríinu. Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera þegar BadaBing! hefur upp raust sína næst.
Við tökum að sjálfsögðu við mútufé og erum að leita að launaðri vinnu. Áhugasamir láti í sér heyra á kommenntunum.

Laugurinn lengi lifi!!


| 4:12 |
komment

Úff maður er bara spenntur. Get ekki lofað þér neinni vinnu samt. Getur þú ekki bara reddað mér illa launaðri vinnu frekar?

Ahh, ég væri nú til í að eiga ársbirgðir af áfengi. Á mínum bæ er það nú reyndar ekki nema tvær kippur eða eitthvað álíka. Djöfull, ég dett alltof sjaldan í það. Ætti að gera meira af því þar sem þetta er allt saman löglegt og til svona mikið af þessu.

Já ég ætla bara að fara að drífa í þessu. Takk Tóti fyrir að vekja mig til umhugsunar.

Nr. 1 | Laugurinn sjálfur | 6.04.2003 | 13:04:54 | [+] |

Þetta kemur ekki fyrir aftur. Þú hefur bara verið svo syfjaður undanfarið!! Mér líst heldur ekkert á spjallið á anna.is. Hvað gerist t.d. ef ég smelli á hnappinn "eyða persónuupplýsingum"? Skerí... og hvaða persónuupplýsingar eru þetta sem konan hefur? Ég fer ekki aftur þangað inn. Promiss.

Ársbirgðir af áfengi... þú drekkur minna á ársgrundvelli en ég hélt.

Nr. 2 | AlanHudson | 6.04.2003 | 16:06:36 | [+] |

Heill og sæll Tóti:

Ég bíð spenntur eftir skúbbinu! (ég vona samt að það sé runnið af þér?)

Organistinn hefur verið á kafi í vinnu og lítið getað ræktað garða sína, hvorki heima við né á internetinu.

Var um síðust helgi á fundi hátt uppí fjöllunum í San Berndadino National Forest. Fjallaði þar um uppáhalds viðfangsefnið hans Loka: hvað er faglegt, hvað er rétt? Kom inná Citizen Styrmi, ritstjórann sem storknaði fyrir mörgum árum og missti af öllum helstu straumum í blaðamennsku.

Hafði þó tíma til að fara í göngutúr þar sem sást yfir Mojave eyðimörkina og San Andreas fault. Allt annað útsýni en frá Ártúnsbrekkunni.

En hvað er annars að ske hjá þér? Anna-punktur-ís er andvaka allar nætur. And btw, þú hefðir amk getað fengið páskaegg fyrir krakkana!

Nr. 3 | organistinn | 7.04.2003 | 8:39:14 | [+] |

Ekki vissi ég að aðdáun þín á Ske og Röskvukynslóðinni væri svo mikil að þú dyttir í það þegar BB kallar GS réttilega vitleysing...

Nr. 4 | Hansons | 7.04.2003 | 13:06:50 | [+] |

Fokk off,

ég þarf ekki tilefni til að dettaíða og var orðinn fullur þegar ég fékk póstinn frá BB. Verð að vísu alltaf voða emotional í bjórnum og fannst Björn þarna vera að leggja lykkju á leið sína til að gera hlut GS og ÞE sem tortryggilegastan og fór líka á bömmer yfir því að vera blaðamaður á Fbl sem getur ekki brugðið sér í neinna kvikinda líki eins og þessir ágætu menn. Í þynnkunni var þetta svo bara fyndið.

Nr. 5 | Tóti sjálfur | 7.04.2003 | 13:40:17 | [+] |

Ég skil gæskur.

Nr. 6 | Hanson | 7.04.2003 | 14:04:54 | [+] |

Alan:

Þetta með persónuupplýsingarnar er bein léleg þýðing á upprunalegu ensku útgáfunni. En ég er samt stórhættuleg þegar kemur að persónuupplýsingum. Enda hef ég oft verið spurð, úti á götu, hvort ég sé starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar.

Nr. 7 | anna.is | 7.04.2003 | 17:37:19 | [+] |

Tóti:

Organistinn finnur sig í kunnulegu hlutverki: algerlega utangátta. Hvaða póst fékkstu frá BB?

Björn Bjarnason finnur Guðmundi Steingrímssyni það til foráttu að hafa kallað Donald Rumsfeld "einskonar brjálæðing", sem bendir til þess að BB sé "einskonar húmorlaus fáviti".

Furðulegt hvað Björn Bjarnason hefur hreiðrað um sig djúpt inní rassinum á bandarískum hægri repúblikönum.

Davíð vann þarfaverk þegar hann sendi BB í oblivion í ráðhúsið við Tjörnina.

Nr. 8 | organistinn | 8.04.2003 | 6:33:03 | [+] |

Sælir Organisti:

Þú ert nú ekki svo lost þegar allt kemur til alls en mig langar bara svo mikið að vera vinur BB að ég er á póstlitanum hans og tala jafnan um það að hann hafi sent mér póst þegar hann birtir nýja snilld á vefnum sínum.

Annars er Guðmundur Steingrímsson furðulegur náungi sem bregður sér í allra kvikinda líki, meira að segja blaðamanna, og sniglast um með diktófón á landsfundum Sjálfstæðismanna. Mér skilst að þetta sé fettish hjá honum og að hann eigi mikrókassettur með efni frá öllum landsfundum flokksins frá 199 og eitthvað.

Nr. 9 | Tóti sjálfur | 8.04.2003 | 10:13:38 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff