Sunnudagur, 06. apríl 2003
Ben Affleck og J.Lo ætla að endurgera Casablanca með sjálfum sér í aðalhlutverkum. Djöfulsins skítapakk. Það var nógu sæmt að Robert Redford skydi reyna að vera Bogart í Havana en maður kippti sér minna upp við það að Pamela Anderson skyldi reyna að vera Bogart í Barb Wire, en Affleck? Það má aldrei verða. Þá hefðu þeir alveg eins getað látið Ronald Reagan leika Rick eins og til stóð á sínum tíma.
Hér þarf greinilega að grípa til ofbeldis. Þið eruð annað hvort með okkur í þessu máli eða á móti.