»  off record  »  Skvísan stígur í vænginn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Skvísan stígur í vænginn
Sunnudagur, 13. apríl 2003

Það er allt að gerast á Innherjunum (les.Kleppi). Stebbifr. er búinn að fletta ofan af femínskvísunni sem var í kjölfarið lögð í einelti af Soffíu og Írisi (les. Jóni Ásgeiri) og hún hefur því leitað á náðir BadaBing! með nýjustu ritsmíð sína. (Skoðið kommenntin við Armagedon....).
Feminskvísa (les. thornsteen skv. stebbafr.) sýnir einnig sóma sinn með því að biðjast afsökunar á meintum ritstuldi og barnsráni. Ég kann að meta slíkt og fyrirgef henni med det samme enda þekki ég sjálfur enga betri afsökun en "ég var fulllur".
Annars var ég nú hættur að blogga hérna (þetta er orðið svo smáborgaralegt eftir Moggaumfjöllunina og við Steppenwolf viljum ekki vera smáborgarar). Þar fyrir utan er Anna.is á djamminu að táldraga halanegra fyrir vinkonur sínar og ég ætlaði því að nota tímann vel; byrgur af bjór, með Suspiria og klám á DVD en þá er ég dreginn inn í þetta Innherjashowdown.

Vek samt athygli á framsýni minni þegar ég baðst undan því að slátra feminskvísu - stebbi byrjaði strax að plokka í augu:
Þorsteinn Vestfirðingur orðin skvísa
Svo einkennilegt er að nú hefur komist upp um fröken Femínskvísu sem skrifað hefur á Innherjavef visir.is seinustu vikurnar. Er svo merkilegt að á bakvið frökenina stendur fjandvinur minn og dyggur lesandi síðunnar, Þorsteinn á Ísafirði, en eins og flestir vita varð thornsteen hans bráðkvaddur fyrr á þessu ári. Síðan hefur hann reynt að komast aftur inn á spjallið með ýmsum hætti, en sá nýlega góða leið til þess að snúa aftur. Hann ákvað að bregða sér í gervi skvísunnar, gott er að vita nú hver er að baki þessu.

Ég hef haft gaman af skrifum skvísunnar og var alltaf ákveðinn í því að hún væri kollegi minn (les. blaðamaður) þar til hún stal frá mér skrifum án þess að geta heimilda. Vilhjálmur H. er löglærður en hann er ekki blaðamaður, þeir síðarnefndu vita nefnilega að menn eru HENGDIR fyrir ritstuld. Feminskvísu er fyrirgefið en stebbifr. hefur samt gengið úr skugga um að hún er ekki blaðamaður - engir svoleiðis á Ísafirði eftir því sem ég best veit.

Skemmtið ykkur vel Kleppararnir mínir. Ég er farinn að sulla í BBB (les. blóð, brundur, bjór).

Fokk off.


| 2:09 |
komment

Feminskvisa er merkileg kona. Svo sannarlega ekki við eina fjölina felld. Ég hef fylgt skrifum hennar eftir síðan í haust og það er greinilegt að minnst sex einstaklingar skrifa hana. Smásagnahöfundurinn er sá nýjasti. Ég held að hann sé ekki barnsræninginn. Sumir þeirra eru sannir skíthælar sem leggja Rex innherjosus í einelti. Aðrir eru húmoristar. Þriðji hópurinn eru aularnir. Stebbifr hefur meira að segja skrifað sjálfur undir nafni feminskvisunnar, en það er önnur saga og verður alltaf neitað. Ég er ekki viss um hvort organistinn hefur komið þarna nærri. Væri samt ekki hissa, þetta liggur nærri karakternum hans. Refurinn og organistinn eru samt skuggalega líkir, svo og nokkrir aðrir sem hafa dúkkað þarna upp nýverið. En skuggarnir sjást ekki í myrkrinu svo þetta er ekki auðvelt að greina. En organistinn er eiturpenni. Ef ég vissi ekki betur, þá teldi myndi ég telja hann í ætt við þig. Þú ert vel ritfær svo og þínir frændur og forfeður. Penninn er beitt vopn. Þú veldur því vel.

Annars var þetta ekki það sem ég ætlaði að tala um. Þú ert þó ekki að hætta blogginu? Þetta er bezta bloggið. Hæfilega afsúrt og beiskt með léttmarineruðum heilasellum inn á milli. Kryddað með kræsingum konunnar. Þú getur ekki hætt að blogga. No way!

Nr. 1 | AlanHudson | 13.04.2003 | 4:11:48 | [+] |

Jú, eitt enn, thornsteen er chicken ;)

Nr. 2 | AlanHudson | 13.04.2003 | 4:12:53 | [+] |

Alan:

Á bls. 11 í Arts and Leisure section New York Times í dag er fín grein eftir Rick Lyman sem upplýsir hver er höfundur Loka og segir okkur heilmikið um lífsviðhorf Tóta. Byrjaðu á myndinni og myndtextanum ef það er hægt í vefútgáfunni. Það sannast hér sem Organistinn hefur marg sannreynt, að hundar líkjast oft eigendum sínum.

"He slips the sunglasses back over his eyes and calls to Loki, who scampers over a small bush and then seems to fly into his arms, licking wildly at his face".

Organistinn á líka hund sem heitir Loki, en sá er gulur Labrador -- og líkist eigenda sínum!

Nr. 3 | organistinn | 13.04.2003 | 22:15:27 | [+] |

Tóti:

Á maður að taka þessa hótun alvarlega? Ertu búinn að dömpa hirðinni? Djöfull ertu óvæginn.

Hvað var í þessari Morgunblaðsgrein? Varla hafa þeir vísað til www.badabing.is?

Nr. 4 | Organistinn | 14.04.2003 | 23:37:27 | [+] |

Nú á feminskvisa bágt. Allt sem hún skrifar á visir.is hverfur. Jafnvel þó á engan sé hallað. En skvisan er að spá í bloggið.

Nr. 5 | feminskvisa | 14.04.2003 | 23:45:19 | [+] |

Ég hafði svarað þér og í svarinu kom fyrir nafnið "Tóti". Ég tel að þeir séu komnir með sjálfvirkan búnað þarna, þannig að þegar einhver segir "Tóti" þá hreinsast þráðurinn út.

Nr. 6 | Organistinn | 14.04.2003 | 23:50:33 | [+] |

Alan alltaf slyngur. Hún er farin að blogga! Sjáum til hvað Organistinn er skarpur.

Nr. 7 | AlanHudson | 15.04.2003 | 0:14:00 | [+] |

Organisti og Alan. Ég er alveg að missa þráðinn hérna. Hvað eruði að steypa? Hver er þinn þáttur í þessu plotti Alan og hvernig fáum við að sjá hversu slyngur Organistinn er? Ég er alveg hættur að botna, sennilega búinn að velta mér of lengi upp úr samsæriskenningum. Eruð þið kannski allir, skívsan meðtalin, með reglulega sellufundi í dimmum kjallara á Ísafirði og bruggið stebbafr. launráð?

Organisti. Við skulum ekki ganga svo langt að segja að ég ætli að dömpa ykkur en ég er latur og undir óhóflegu álagi þessa dagana. Ætli ég hafi ekki verið fullur líka þegar ég hótaði þessu. Þetta með Moggan er nú bara venjulegt tuð. Einhverjir bloggarar vildu meina að nú væri þetta hallærissport orðið mainstream af því að Mogginn fjallaði um það. Líklega er ég bara pissed yfir því að það hækkaði ekki í tign þegar ég fjallaði um það í Fbl. En það liggur auðvitað í hlutarins eðli að þeir sem láta Moggann segja sér hvað er hipp og kúl eru viðbjóðslegir smáborgarar.

Nr. 8 | Tóti sjálfur | 15.04.2003 | 0:57:31 | [+] |

Alan:

Organistinn er heimskur. Gefðu okkur link yfir á blogg feminskvísunnar.

Organistinn situr óstöðugur uppá girðingunni sem aðskilur geðheilbrigði frá geðveiki. Hann er því líka fullur af samsæriskenningum og alls ekki viss hver er hvað á netinu. Í upphafi Innherjavefsins birtist Organistinn sjálfur sem hinir ýmsu karakterar úr bíómyndinni Boiler Room og skrifaði heilu leikritin um hlutabréfin í deCODE.

Það kæmi því Organistanum ekkert á óvart ef Tóti sjálfur er helmingurinn af karakterunum á Innherjum. Hann hefur jú viðurkennt að hafa undirbúið jarðveginn fyrir þessa aumingjaræktunina.

Tóti:

hvernig fannst þér myndin af ídólinu þín með Loka í NYT?

Nr. 9 | Organistinn | 15.04.2003 | 2:40:16 | [+] |

stebbifr.blogspot.com
feminskvisa...

Hún hefur ekki skrifað mikið.

Ps, Tóti, af hverju kallarðu þennan glugga "Álit"? Ég hef ekkert álit og kann ekki við að skrifa svoleiðis.

Nr. 10 | AlanHudson | 15.04.2003 | 3:11:21 | [+] |

Morgunblaðið hvað? Þú ert þó á forsíðu Fbl. í gær. Nú er bara að finna fleiri ketti á Suðurgötunni.

Einn þarna í númer 4 sem heitir Máni og er rófulaus. Held að hann geti kveikt sér í sígarettu sjálfur. Rannsóknarefni.

Nr. 11 | Hanson | 15.04.2003 | 9:13:11 | [+] |

Organisti: Ég fann þetta ekki í NYT sendu mér tengil.

Alan: Ég veit ekkert afhverju þetta heitir álit. Ég kann ekkert á þetta drasl þú verður að eiga þetta við Önnu en ég skal setja málið í nefnd.

Hanson: Kettir eru viðbjóður. Tala ekki við svoleiðis skepnur ekki einu sinni þó þeir reyki. Ertu enn hjá 10-11?

Nr. 12 | Tóti sjálfur | 15.04.2003 | 9:50:07 | [+] |

Sæll Tóti:

Linkurinn er: http://www.nytimes.com/2003/04/13/movies/13LYMA.html

Hvað finnst þér?

Ég tók líka eftir þessu á forsíðunni. Eir má fara að vara sig. Hann verður að bæta við eins og tveimur greinum í seríuna um lambaspörðin í Helgafelli. Mjög átakanlega fréttasería sem var gott móstspil Frb við greinum Agnesar. Eir kemur inná margt, m.a. spillingu í valdakerfinu og dapurleg örlög utanbæjarmanna í Vestmannaeyjum.

Kveðjur,
Organistinn

Nr. 13 | organistinn | 15.04.2003 | 14:43:52 | [+] |

Tóti: Sammála með kettina. Orðinn verslunarstjóri hjá KHB hérna fyrir austan. Alltaf á uppleið.

Nr. 14 | Hanson | 15.04.2003 | 16:31:44 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff