»  off record  »  maí 2003
off record
maí 2003

a long time ago...
Nýja lúkkið
Þriðjudagur, 27. maí 2003

bing.gif

Konanmín hefur gert róttækar breytingar á BadaBing! Allar til bóta if U ask me en samt er best að staðhaldarinn fylgi þeim úr hlaði með nokkrum orðum.

Bloggið er allt orðið off record og er nú það eina sem birtist á forsíðu. Fjölmiðlapistla og Kvikmyndadóma þarf því að velja sérstaklega eða lesa í styttri útgáfum í Fréttablaðinu.
Hvað bíóumfjöllun varðar notaði ég þetta ágæta tækifæri til þess að taka upp FIMM stjörnu kerfi að hætti breskra vina minna. Fjögurra stjörnu kerfi er nefnilega morkið.
Liðurinn Aðrir er kominn aftur en hann var til staðar á fyrstu BadaBing! síðunni (þessari með kaffiblettunum). Þar fá góðir gestir að ganga lausir en so far er enginn inni nema Laugurinn sjálfur (leiðandi gítarleikari Brain Police) sem skrifaði þrusubíódóma fyrir mig á meðan ég stjórnaði kvikmyndasíðunni á Strik.is.
Undir liðnum Eldra er saman komið allt gamallt stöff, mest af Strik.is (en þar tók ég stundum góða spretti ekki síst á meðan minn góði vinur Hrafn Jökulsson hafði auga með mér), Prósakkpistlar, Hulduhersgreinar og sitt lítið af hverju.
Úrklippurnar eru enn á staðnum þó ekkert nýtt hafi bæst við þar, hvað sem síðar verður.
Eðalbloggarar hafa verið teknir út úr tenglasafninu og fluttir yfir í skjallbandalagið ásamt nokkrum nýliðum; Palla Svans, Ingó, Þórunni Hrefnu og thorworkssem ætti auðvitað að vera löngu kominn í þetta púkk.
Þá birtast nýjustu kommentin sérstaklega úti í kanti enda full ástæða til að trana þeim fram þar sem rjóminn af Innherjum Vísis.is (Organistinn, Loki, AlanHudson, Tony Clifton) eiga það til að fara á kostum á þessum slóðum.
Anna var mikið að spá í að hafa mynd í film noir stílnum í hausnum enda hét badabing.is einu sinni noir.is af ástæðum sem allir sem þekkja mig skilja. Niðurstaðan varð þó þessi eyðimerkurstemning við bensíndæluna sem á líka vel við mig og vísar beint í uppruna minn og árin 11 sem ég dældi bensíni hjá Esso á meðan ég þróaði þunglyndið, mannhatrið og drykkjusýkina.

Ég er einhverfur og vanafastur og er því enn að venjast breytingunni en hef ekki fengið neitt nema jákvæð viðbrögð við þessu og er hæstánægður með nýja lúkkið.


Evrópa er hóra
Sunnudagur, 25. maí 2003

....sagði Billi ljósmyndari í sms sem hann sendi mér eftir að það var ljóst að Tatú myndi ekki vinna Júrótrasskeppnina. Það er greinilega ekkert því til fyrirstöðu að sameina alla andskotans álfuna og gyðingakvikindin líka fyrst íbúar allra þessara landa kveða upp þennan einróma dóm og afhjúpa sig sem smekklausa tónlistarsóða og hálvita.
Ég er nú samt nokkuð sáttur þar sem Austurríkismaðurinn minn stóð sig þrusuvel og komst mjög ofarega á stigatöfluna. There´s hope yet.

Tatú stelpurnar voru sætar og stilltar. Lagið kannski ekkert spes en þær áttu að vinna. Af því bara. Ættu ekki femínistar að fara að beina sjónum sínum að þessarri fokkings keppni?
Öll löndin gerðu meira og minna út á bert hold kvenna. Sú gríska var æði; hausinn á Barböru Streisand skrúfaður á skrokkinn á Pamelu Anderson. Beið eftir að reimin sem hélt brjóstunum í skefjum slitnaði, tæknimenninrir hefðu örugglega verið lengi að skipta yfir á teipið þar sem ekkert lessuaction var í aðsigi.
Þetta Belgíska lag var viðbjóður í sinni tærustu mynd og sigurlagið frá Tyrklandi sökkaði big time. Vann það ekki bara út af þessari fáklæddu tryknesku haremstemningu?
Fokk it ég hef aldrei séð svona mikið Júróvision í einu og ætla aldrei að gera það aftur. Tilvonandi Borgarstjóri Reykjavíkur stóð sig að vísu frábærlega sem þulur. Kætin og einlægin alltaf sú sama og gullkornin hrundu af vörum hans: "Má þetta?", "koma svo, koma svo".
Gísli Marteinn: 12 stig.

Heyrði íslenska lagið í fyrsta sinn í gær. Það var alls ekki versta lagið í keppninni og ég fékk ekki betur séð en Birgitta (bláa stúlkan í hellinum, nei það var fimleikakonan hjá Ungverjunum. Algerlega misheppnuð og greinilega fengin til að glenna sig þarna til að draga athyglina frá því hversu ömurlegt lagið var) væri að gera þetta býsna vel.

Mitt gamla góða Bretland átti botninn skilið. Aldrei séð neitt jafn hræðilegt ever. UK hlýtur að hafa stefnt markivisst á tap.

Fór svo í bæinn. Það var leiðinlegt. Drakk mikið en fann lítið á mér. Það er hræðilegt. Vinna á morgun. Best að detta í´ða eða drepa sig....


Hvað er að SKE?
Laugardagur, 24. maí 2003

The Lizard King var í fríi í gær og ég fór stilltur og prúður (The Lion King can´t do anything) á SKE tónleikana á Grandaranum með Siggs, Ingó og fleira góðu fólki. Sils kom og var líka edrú og fín. Það fer okkur Sils betur að vera full.

Anyway mátti til með að mæta þarna þar sem Gumms, hljómborðsleikari, er auðvitað í krúinu. Félagi Jakob var á staðnum og við komumst loksins að því hverjir eru tveir bestu blaðamenn (stílistar) landsins. Say no more.
Palli Svans er hugrakkur maður og mætti með Þórunni Hrefnu. Það var sniðugt. Hún er flott. Má til með að hitta hana aftur. Veit meira að segja að ég get sparað mér að leita að henni á 22.

Hitti því miður ekki Pallahsem hafði hótað því á blogginu sínu að vera þarna. Þekki kauða að vísu ekki í sjón og skimaðist því um eftir Stefáni Pálssyni (hann var pottþétt ekki þarna- örugglega enn í sveitinni). Það hefði verið gaman að setjast yfir viskýglasi með Jakob og tveimur Múrverjum . Bömmer.

Heavý Tatú action á miðju gólfi Grandarans lamaði Ingó og Magga próförk. Slísíblaðamaðurinn hagaðist ekki og gaf Þórunni Hrefnu góð ráð í brennivínskaupum á barnum. Kúba Líbre!

Var það eitthvað fleira? Já, bara for the record I´ve still got it. Þrjár (ein með hvítan koll - mér leiðast nýstúdentar á fylliríum niðri í bæ) huggulegar (beinlínis sætar) og sauðdrukknar stúlkur gáfu sig á tal við mig á leiðinni út í bíl og vildu draga mig á Felix. Ég var með Billa í símanum sem fékk að fylgjast með fádæma orðsnilli gamla flagarans í beinni. Ég fór heim en egóið var ekki dældað að þessu sinni.

Árni og Krissi Ra eru being pumped thoroughly in the de-briefing room. Djúpa laugin var víst alltaf í boði Landssímans. Báðir eru afskaplega huggulegir í viðkynningu og frekar þykir mér því fallið from grace hátt. Krissi var samt flottur í sjónvarpsfréttunum þar sem hann gekk hnarresitur án þess að hylja andlit sitt til yfirheyrslu. Það hefur alltaf verið eitthvað töff í drengnum.

Held að þetta geti orðið hið safaríkasta mál og við séum bara að sjá byrjunina. Blaðamanna gut instinctið mitt fór á fleygiferð með tengingar og samsæriskeningar sem eru það heavý að það borgar sig að þegja. En eins og Össur sagði: You ain´t seen nothing yet. Sýnist félagi Tony vera að slá á rétta strengi á innherjum vísis hvað þetta mál snertir. Tímasetningin hlýtur að vekja spurningar.

Shit. Náði nýjum og áður óþekktum hæðum í forsetafrúargreinini í Fbl. í dag. Reyndi að komast hjá því að kvitta fyrir rómönsunni og stakk m.a. upp á að signaturið yrði tota@frettabladid.is. Hafliði huggaði mig og benti á að það væri flott að sýna breidd í skrifum og það væri göfugt verk að skrifa fyrir gamlar konur. Trúlega. Amma er búin að hringja og er að fíla þetta.


Skítapakk
Fimmtudagur, 22. maí 2003

Einhver drulludeli, leyndur aðdáandi eða Daffy Duck fanatic hefur stolið precious Daffymuginu mínu af skrifborðinu mínu.
Eins og alþjóð veit hefur þessi kaffikanna fylgt mér allan blaðamannsferilinn og í gegnum svona eins og rekstrarþrot a.m.k. þriggja fjölmiðla. Það hefur að vísu bara verið pennastatíf eftir að það byrjaði að leka í vetur en ég gat ekki hugsað mér að segja skilið við það þó það héldi ekki lengur kaffi. Og nú er það farið. Ég kem til með að segja starfi mínu lausu ef bollinn skilar sér ekki aftur á borðið mitt enda vitagalið að vera blaðamaður ef maður er ekki með Daffybolla.

Til að bíta höfuðið af skömminni var X-B Framsókn með réttu áherslurnar áherslutússinu mínu stolið um leið (enda var það í bollanum). Ekki það að ég sé með eitthvert framsóknarfetish en mér fannst þetta fyndið (in a sick way) og þar fyrir utan gaf Guðmundur Steingrímsson Hermannsonar mér þetta túss sem gerir það auðvitað enn merkingarhlaðnara. Viljiði ekki bara stela Lord Byron paperweightinu mínu líka? Skítapakk.

AA náði engan veginn að læsa klónum í krúmemberinn. Fynnst alltaf jafn gaman að tala við drykkjufólk um þessi "þakka þér fyrir fundinn" faðmlög. Þetta er nú ljótu kellingarnar alltaf hreint.

Hitti Hugleik myndasöguvitring á Austurvelli í dag. Hann er enn að melta Matrix Reloaded en eins og þegar hefur komið fram er hún eitthvað boginn. Vorum sammála um að þetta sé þó bara í raun hálf mynd og ekki sé rétt að dæma hana fyrr en sagan er öll.

Prósakkið kláraðist fyrir tveimur dögum og ég hef ekki efni á meiru. Það er einn bjór eftir í ísskapnum og ég hef ekki efni á meiru. Ætlaði þessi fokking ríkisstjórn ekki að redda þessu öllu. Fuck it. Áfram með þunglyndið....


nennesseggi
Miðvikudagur, 21. maí 2003

snillingur-jón telur sig fallinn í gleymskunnar dá þar sem hann var ekki á Thorvaldsen með hinum vísis.is rottunum á laugardaginn. Held samt að ég sé ekkert að delera og hafi örugglega verið á e.k. reunioni? Er amk ekki búinn að gleyma snilldartökktum jóns á vísi gamla og get huggað hann með því að okkur Binna, blaðamanninum gula, var ekki boðið fyrr en á elleftu stundu (og samt erum við aðal) eftir að hafa hótað mótshöldurum öllu illu. Minnir að einhver hafi verið að tala um það að hringt hafi verið í snilling-jón en Óskar Aðalsteinn hafi svarað og lofað að koma skilaboðum á snillinginn.

but what the fuck do I know?

Lykilmanneskja í krúinu mínu fór á AA-fund í kvöld. All is lost og ég er lagstur í þunglyndi fyrir framan TV.

get off my cloud


long live the lizard king!
Mánudagur, 19. maí 2003

daffyHélt endilega að ég hefði dottiðíða á föstudaginn en eftir að hafa borið saman drykkjubækur mínar og Gúnda í dag komst ég að því að ég var að drekka á laugardaginn. Það kemur heim og saman við frásögn Jakobs af því að ég hafi verið býsna tætingslegur í vinnunni á sunnudag.
Jamms. Það var reunion hjá (fyrrverandi)starfsfólki vísis.is. Við Binni mættum með Auði sem var löngu tímabært að hitta aftur. Hól, bestastabesta vinkona mín frá mögrum vísismánuðunum var í banastuði og Ásgeir Friðgeirsson, nýbakaður varaþingmaður, splæsti á mig bjórum sem kom sér vel þar sem ég fór peningalaus út. Er að ná að mastera þetta Þórbergs Þórðarsonar eliment og tekst endalaust að láta fólk bjóða mér í glas í skiptum fyrir kjaftforan og yfirgegnilegan félagsskap minn. Ég er snjall.

Talandi um Þórberg. Það mikla séní. Þórunn Hrefna er byrjuð að blogga af miklum móð. Hún les BadaBing! vegna þess að "það er eitthvað við hann". Ég er rígmontinn af þessu enda Þórunn úberkúl kvensa sem hefur stúderað Þórberg. Það er alltaf kostur í fari kvenna, sko. Sjálf veit hún örugglega minnst um það að við lentum saman í hópvinnu í Miðaldabókmenntum hjá Helgu Kress fyrir margt löngu. Ég komst í gegnum 4 ár í án þess að kynnast kjafti þannig að ég get ekki sagt að ég þekki Þórunni en ég veit að hún er kúl.

Mér tókst ekki mikið að spjalla við gömlu vinnufélagana mína (engin stórskaði svo sem Tóti Leifs var ekki þarna og Hól get ég hitt hvenær sem er). Eiríkur Hjálmarsson reykti pípu virðulegur mjög og við rifjuðum upp þá góðu páska þegar við unnum Spurningakeppni fjölmiðlanna. Græddum Mont Blanc penna (Eiríkur er nýbúinnn að týna sínum penna en ég var að finna minn) og tvö fyrstu bindin af Blikktrommunni.

Kata Júl. kastaði kveðju á liðið. Líklega sætasti þingmaðurinn á næsta þingi.

Annars lenti ég í klónum á stelpunum sem ég tók viðtal við á Te&Kaffi á föstudaginn. Þeim lá mikið á hjarta og vildu að ég næði í ljósmyndarann minn (Billa) veit ekki hvort þær voru heitar fyrir honum en held frekar að þær hafi viljað að hann keypti handa þeim bjór. Þeim fannst ölið fáránlega dýrt hérna og tölðu um að bjórinn væri dýrari en budgetið á heimildarmyndinni um álfana sem þær voru að taka upp.
Ég þvertók fyrir að kaupa handa þeim í glas enda upptekinn við að drekka frá öðrum en fékk samt tækifæri til að slá um mig með Lorelei (benefits of a classical education) eins og ég geri alltaf þegar ég er fullur og hitti Þjóðverja.
Fékk póst frá annarri þeirra í dag (sem þýðir að þær hafa komist heilar á höldnu heim, en vélin þeirra var alveg að fara þegar ég hitti þær) þar sem hún rekur á eftir mér að senda sér heil 3 eintök af Fréttablaði dagsins:

My dear best-of journalist,

this is your German elf with the impatiently awaited, highly valuable and
precious datas:

I hope that you, as a poor artist, will be able to afford a stamp for the delivery of one (2,3,...) copies of the article you wrote on the film "Fairies and other Tales". Well, I am sure that, once I will have put this article on the filmacademy's wall of fame, your name will be spread around and cause you to finally get rich and famous.
So Katinka and me are curious and very much looking forward to getting your article in our hands.

Have a nice and sober beginning of the week and hopefully hear from you soon

Dörthe + Katinka (who I am quoting in realtime: "We had much fun with you that last evening before our departure")
(I agree)

Svo mörg voru þau orð. Ég er þreyttur, svangur, blankur, í vondu skapi og það er næstsíðasti Sópranós þátturinn í kvöld só fokk off.


SÓPRANOS ÍSLANDS PART I
Laugardagur, 17. maí 2003

Minn gamli góði mentor Hrafn Jökulsson heimsótti okkur Jakob í vinnuna í gær. Alltaf gaman að heyra í Krummanum. Hann var að reka á eftir mér að skrifa skáldsögu. Hugsaði málið í 5 mínútur. Jamm best að láta reka sig af fokkings þrælakistunni, fara aftur á bæturnar og hrista fram eitt masterpísið. Get örugglega dobblað JPV til að gefa út. Las póst Organistans og hætti við. Best að láta hann um þetta. Hann fær að vera gestapenni aftur þetta er stök snilld:

Sópranós Íslands: Part I Testósterón


We cut to Suðurgata. It is an overcast and quiet May morning, with light dirzzle in Reykjavík. A group of people are taking a smoking break in the backyard of Fréttablaðið. Tóti Soprano, the boss, is holding court with his crew and associates: Sils, Gumms, Biggs, Mamms and Eirs. The group is huddled around Tóti Soprano who is smoking a big cigar. The others are smoking cigarettes, except for Biggs who is seen dropping crank. It´s been five months since Tóti Soprano was diagnosed with prostate cancer and he has recovered from bilateral orchiectomy performed at FSA in the north of Iceland.

TÓTI SOPRANO: We have a fucking problem at my webpage. Some shithead is impersonating me.

MAMMS: Yeah, I heard, he was saying you gay boss…

TÓTI SOPRANO: Shut up, you idiot, no reason to go into details here. We got to take care of the situation.

SILS: Boss, want us to whack the guy? You have his IP address?

TÓTI SOPRANO: Of course I have his IP address. I know every fucking creep that shows up on my web page. But we can´t whack the guy; the Jakobsson family will find out and announce it right there on www.murinn.is. I don´t need any trouble from that outfit right now. The administration´s not going to like it if I give don Ármann the opportunity to have me pinched. We got to find other ways to scare the little fucker.

GUMMS: What about clipping the guy by having Jakob Bjarnar write a libelous story about him?

TÓTI SOPRANO: You little pussy…scare a guy with a story! Are you gay or something? Even my wife had a better idea than that; send the guy to some support group or something.

BIGGS: Well, I have an idea for a mock execution…

TÓTI SOPRANO: Yeah, how…

BIGGS: Let´s take the jerk out to the edge of Reykjanes peninsula and have Gumms play the accordion for him. That should scare cock sucker shitless for sure.

TÓTI SOPRANO (laughing nervously): Good idea, but I want to go short of killing the guy.

EIRs: Boss, but I could screw the guy´s wife. That will teach him a lesson.

TÓTI SOPRANO: You idiot, the guy is gay. You wanna put your snake up his boyfriend´s sewer system?

(There is uncomfortable silence when everyone seems to run out of ideas)

TÓTI SOPRANO: Oh, I know, why didn´t I think of this before. I am going to threaten the guy; he is never impersonating me again. This is fucking brilliant.

GUMMS AND SILS (in unison): What you going to do, boss?

TÓTI SOPRANO (smiling menacingly, as he walks towards his computer to post his message): I am going to threaten the guy with suicide!!

SILS, GUMMS, BIGGS, MAMMS AND EIRS (in unison): What? Threaten the guy with a suicide?

BIGGS (to himself): Either the boss´ gone soft or stupid.


Meanwhile we cut to an apartment on the West side of Reykjavík. Anna Soprano is staying home for the day to clean the apartment, work on her web page and to take a long shower. The Soprano children, Doddi and Jóhanna, have been sent off to school and Anna Soprano is alone at home. Romanza with Andrea Bocelli is on the disc player and Bocelli´s sound is filling the whole apartment. Anna Soprano is doing the dishes and singing along at the top of her voice:

“Time to say goodbye.
Paesi che non ho mai
veduto e vissuto con te,
adesso si li vivrò,
Con te partirò
su navi per mari
che, io lo so,
no, no, non esistono più.
It’s time to say goodbye…”

The phone rings and Anna lowers the music and starts speaking on the phone.

ANNA SOPRANO: Hi mom. It is so nice to hear your voice.

ANNA SOPRANO: Oh, yeah, Tóti is very upset about it. The guy is impersonating him and making it look like he has been with another guy.

ANNA SOPRANO: You know, this Stebbi guy from Akureyri. He is one of Blöndal´s foot soldiers. It´s real disrespect for Tóti.

ANNA SOPRANO: Yeah, that is the strange thing. He said he is going to threaten the guy with a suicide.

ANNA SOPRANO: I totally agree mom, the guy is just going to laugh.

ANNA SOPRANO: Well, I don’t know what has happened to him. It all started after his orchiectomy. Maybe it has started to affect his mind. He has become so soft.

ANNA SOPRANO: But, mom, please, you cannot mention this to anyone. Tóti will divorce me so fast if he finds out I told you, but it is true he is just not getting it up anymore.

ANNA SOPRANO: Yeah, he has an appointment with Dr. Ruth tomorrow morning. I am going to ask her putting Tóti on testosterone shots. Prostate cancer or no prostate cancer – I don´t care. This situation is driving me crazy.


I am the Lizard king...
Miðvikudagur, 14. maí 2003

Ingó viðrar kenningu um bros Halldórs Ásgrímssonar . Hann virðist byggja á rannsóknum Pavlovs og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð fræðimanna götunnar. Annars hættum við Ingó við að fara í afmæli forsetans þar sem við töldum okkur ekki geta reiknað með miklu búsi.
Umbrotsmenn Fréttablaðsins ryðjast nú fram á bloggvöllinn; fyrst Ingó og nú Palli Svans. Skora á Siggu Liv (Siggs) að vera næst. Hún er nefnilega í með Tóts, Sils, Gumms, Biggs, Mamms, og fleirum í hinu gasalega lekkera reykkrúi, algjört mo fo dæmi. (Biggi er samt reyklaus en alveg ómissandi enda lang frægastur; eini meðlimurinn sem spurt er um í Trivial Pursuit).

BadaBing! gengið (ekki Silvio, Paulie, Chris og co. heldur Rebbi, Organistinn, TC, Alan (fjórar ólíkar IP tölur) er eitthvað að ókyrrast á kommentunum þannig að það er best að blanda sér í málið.

Tony: Takk fyrir að rifja upp dásamlega tíma læknanna í Svartaskógi og Verslókvikindanna í Golfunum sínum með sogskála Garfielda í öllum hliðargluggum. Þetta var blómaskeið sem kemur ekki aftur og RÚV er ekkert að toppa þetta núna. Blessaður vertu alveg róelgur í útlegðinni.

Hvað geislaspilarann varðar þá hefur tónlistarneysla mín verið afar ómarkviss og takmörkuð síðustu mánuði. Á góðum stundum í bílnum fer mest fyrir The Doors, Guns n´Roses, Rammstein og Duran Duran (Seven and the Ragged Tiger).
Var með 80´s partý fyrir blaðamenn um daginn og þá var tekið þétt á þessu allt frá Falco til hinna þýskættuðu Söndru og Nenu og í tilefni af útkomu CD Box með öllum 12" Duran Duran frá 1982 - 1985 gróf ég upp allt þetta dót á vinýl og er að stúdera öll remixin og B-hliðalögin fyrir væntanlega umfjöllun um þessa vanmetnustu sveit allra tíma.

Organistinn: Hvað fréttir af Buschemi og Sopranos varðar þá er þetta mikið fagnaðarefni. Las þetta á einhverjum vefnum fyrir all nokkrum vikum. skilst að hann eigi að leika Mr. Pink úr Res. Dogs. Það væri kúl. Vek annars athygli á því að hann hefur leikstýrt frábærum Sopranos þáttum á borð við þann þar sem Chris og Paulie týndust úti í skógi.

Var eitthvað fleira að angra ykkur morðhundarnir mínir?

Félagi Jakob sagði Perlusögu af sér og Stefáni Pálssyni í kommentunum og hefur fengið einhverjar sneiðar til baka. Þetta er með því skemmtilegasta sem gerst hefur hér á BadaBing! lengi enda engir sauðir á ferð. Verð samt bara svona for the record að vekja athygli á því að Jakob er góður félagsskapur á fyllirýi og því engin ástæða til að drekka sig dauðann þegar hann er með í för, allra síst ef hann skartar smóking eða kjólfötum.


Passaðig á friðarsinnanum
Sunnudagur, 11. maí 2003

Páll Hilmarsson, félagi Stefáns Pálssonar á Múrnum, varar mig við friðarpostulanum enda sá greinilega hraðlyginn:

Það er best að benda leðurjakkaklædda blaðamanninum á að taka ekki trúanlega orð af því sem Stefán Pálsson segir.
Nú tjáði til að mynda Stefán þessi mér að blaðamaðurinn væri óttalega rindilslegur í útliti

Nú þekkir Páll Stefán mun betur en ég en ég verð að hryggja hann með því að hér er engu upp á mig logið og ég er allur hinn væskilslegasti í útliti enda oft nefndur Tóti Tittur og á bensínstöðinni í gamla daga gekk ég undir nikkinu 55 kílóa maðurinn.
Stefán fer hins vegar með tóma þvælu þegar hann gerir grein fyrir fundum okkar á kosningafylliríinu:

Úttekt leðurjakkablaðamannsins á kosningaskrifstofum er bráðsmellin - en afhjúpar líka þrælslund Fréttablaðsblaðamanna. Eða hvað er það annað en þrælslund að gefa þeim flokki hæsta einkunn sem hendir manni út áfengislausum og með skömmum og formælingum? En líklega er svona mentalitet nauðsynlegt fyrir menn sem ráðast í blaðamennsku - enda fá blaðamenn ekki greitt nema með höppum og glöððum og það þá helst í bjór eins og allir vita

Kærleiksheimili þeirra í VG fékk þrjár stjörnur fyrir þær sakir einar að þar var boðið upp á skemmtilegustu (engar formælingar, held ég) og líflegustu samræðurnar (met slíkt meira en ölið) og auðvitað Atla Gísla með tékkheftið. Þar fyrir utan var ég leystur út með forláta blýanti sem mér tókst sjálfsögðu að glata áður en ég rataði heim.


Ömurleg þjóð
Sunnudagur, 11. maí 2003

Sverrir Stormsker draugfylllti rithöfundinn Sigurð A. Magnússon einu sinni í útvarpsviðtali fyrir stöð sem er örugglega farin á hausinn eða búin að skipta um nafn - Steríó, kannski?
Nóg um það Sigurður argaðist út í Davíð Oddsson, frjálshyggjuna og Hannes Hólmstein og hrópaði reglulega upp yfir sig MAMMA MÍA! Hann rakti langvarandi stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins til þess eins að íslenska þjóðin sé ömurleg og eigi það skilið sem hún kýs yfir sig. Það sannaðist eina ferðina enn í nótt að hin íslenska þjóð er ömurleg og á það vissulega skilið sem hún kýs yfir sig þó ýmis þroskamerki hafi komið í ljós. MAMMA MÍA!

Jónas Kristjánsson er með þetta allt á hreinu:
Ekkert gerðist í alþingiskosningunum í gær.Allt verður eins og áður var. Flestir bjöllusauðir skiluðu sér heim á stekk. Niðurstöður kosninganna voru í fyrsta lagi, að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði, en ríkisstjórn hans hélt velli, og í öðru lagi að Samfylkingin vann, en náði ekki að velta ríkisstjórninni. Flestir fengu eitthvað út úr kosningunum, en ekki það, sem þeir vildu helzt. Stjórnarflokkarnir halda áfram samstarfinu og munu stjórna með svipuðum hætti og verið hefur. Kjósendur fá þá ríkisstjórn, sem þeir eiga skilið.


Önnu fannst að Páll Magnússon, gamall skólafélagi okkar hefði átt að komast á þing. Hann er hins vegar úti og mér finnst það gott. Hefur ekkert með hann persónulega að gera en framsóknarmenn eiga ekkert erindi inn á Alþingi Íslendinga.


té té té té
Laugardagur, 10. maí 2003

kpalsTaparinn Kristján Pálsson sem er í sínum eigin flokki T-listanum verður væntanlega gestur á karókíkvöldi Frjálslynda flokksins í nótt. Hann er amk óumdeildur kóngur í söngnum og rúllar bæði Halldóri Ásgrímssyni og Guðjóni Arnari upp í þessu magnaða lagi.
Það er menningarleg skylda okkar á BadaBing! að birta snildina. Hlustið og heillist. Ó je...
T-listinn


Dreggjar kosningabaráttunnar
Laugardagur, 10. maí 2003

Súperblaðamennirnir Gúndi, Binni og Tóti gerðu úttekkt á kosningafylliríi ungliða flokkanna í gær. Byrjuðum hjá Framsókn í gamla Kuffélaginu þar sem heimildir okkar hermdu að þar dældu fremskridspartidýrin bjór í gesti og gangandi, óháð stjórnmálaskoðunum og aldri.
Þetta var undarleg samkoma mikið af stelpum undir aldri að hamstra bjór, tvær meintar framsóknargellur stigu villtan dans. Voru svo sem ekkert spes en flottari en Siv og Valgerður.
Þessir framsóknarkettlingar vita auðvitað ekki rassgat og ekki þótti okkur Gúnda þeir sýna okkur tilhlýðilega virðingu. Björn Ingi var þarna og gaf sig á tal við mína menn, Slaufu-Guðjón var einnig á staðnum slaufulaus. Ekkert bólaði á Halldóri Ásgrímssyni.
Fyrir utan ókeypis bjórinn var þetta morkið. djamm. Mikið af leiðinlegu fólki, hiti og ótrúlegur hellingur af skinheads sem töluðu mikið um að sprengja og skjóta allt í tættlur.

Næst á dagskrá var Samfylkingin á einhverju sem heitir Felix eða eitthvað í þá veruna. Það er skemmst frá því að segja að Samfylkingin kolfellur algjörlega á sukkprófinu. Bjórinn seldur fullu verði! Djöfulsins aumingjar (eða alkapatar) ekki kýs ég svona nánasir. Eiríkur Bergmann var á staðnum sáttur við að kaupa ölið á ekki Evrópuverði auk þess sem efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, Jakob Frímann, var í góðum gír. Gúndi og Helgi Hjörvar plottuðu eitthvað á meðan við Binni tékkuðum á VG með Shogun sem er að hætta sem blaðamaður á fyrrum fréttamiðlinum vísi.is. Samfó fær að vísu eina stjörnu í plús og mer framsókn með fyrir það að Ingibjörg Sólrún var á staðnum ásamt betri helmingnum. Unga fólkið umkringdi hana til að fá að faðma hana og snerta klæði hennar. Hún var hin spakasta og slúðurblaðamurinn fékk því ekkert fyrir sinn snúð.

Vinstri grænir voru að lepja Thule í kosningamiðstöð sinni við hliðina á Ara í Ögri. Ekki fengu blaðamennirnir hlýjar móttökur þar. Jú og þó Ármann, Sverrir og Stefán Pálsson voru til í að þrasa við mig og Binna. Þeir hefðu líklega splæst á okkur bjór líka ef Álfheiður Ingadóttir og Katrín systir þeirra bræðra hefðu ekki hent okkur út. Og þá á ég ekki bara við mig og Binna heldur allt heila klappið. Þær leyfðu Múrverjunum þó að halda áfram á Ara en minntu á að vinna við kosningasigurinn átti að hefjast árla morguns.
Leðurjakkaklædda karlremban ræddi við Múrarana um gæði Fréttablaðsins og hinn dyggðum prýdda Pál Hilmarsson sem átti afmæli um daginn. Sverrir gaf mér blýant. Það var gaman.
Lítill, feitur íhaldsbolti í gamla Versló jakkanum sínum með x-D merki í velmegunarbarminum vildi endilega ræða við Ármann um heimsku sósíalismans og survival of the fittest. Það óð á manninum sem var greinilega óþolandi og aumingja frambjóðandinn kom varla orði að. Félagar hans sögðu það að vísu ekki koma að sök þar sem Ármann væri svo gáfaður að hann væri örugglega að reyna að hugsa manninn burt. Það tókst ekki og ég stakk því upp á þvi að maðurinn yrði barinn (hélt að það væri rík hefð fyrir því að kommar lemdu heimdellinga) en VG menninrir sögðu slíkt ganga þvert á grundvallarhugsjónir þeirra. Binni nennti ekki að hlusta á Friedman litla lengur og við ákváðum að kíkja á íhaldsbörnin á Hverfisbarnum (rökrétt?). Hittum mann á leiðinni sem var íhald og hann tilkynnti að bjórinn væri búinn hjá bláu höndinni (já á meðan ég man Sjálfstæðismenn bjóða upp á fordrykk á kosningavökunni sinni í kvöld. Hann er blár og heitir..... you said it baby, Bláa höndin.) Ja há, svo bregðast krosstré sem önnur enginn bjór á íhaldinu sem fær því 0 stjörnur enda fórum við ekki til þeirra. Á dauða mínum átti ég von en að framsókn sé eini flokkurinn sem gæfi mér bús. Er ekki allt í lagi?

Við rákumst á smælingjavininn, VG frambjóðandann og Matlockinn Atla Gíslason og nú verður GAR ánægður með mig þar sem ég las yfir þessum lögfræðingi Blaðamannafélagsins og skammaði hann fyrir dugleysi hvað vangoldnu launin okkar snertir. Hann tók það ekki í mál að sér væri sama um blaðamenn, tók upp veskið og spurði hvað mig vantaði mikið. Sjöhundruð og fjörutíu þúsund sirkabát. "Ekkert mál. Ég skrifa bara tékka." Kom þá ekki kona (væntanlega hans) og stoppaði hann. Enginn tékki skrifaður. Ég blankur og kosningabaráttan búin og hreðjatakið á frambjóðendum losnað. Rats.

Kosningavökurnar hristust saman á Ölstofunni. Hitti þar hinn ágæta vinstribloggara Þór Steinarsson sem er stórfínn í viðkynningu. Hann var með the upper hand þar sem hann þekkti mig í sjón en nú þekki ég hann og kíki eftir honum á djamminu næst þegar hann leggur leið sína í bæinn. Ofurframbjóðandinn Kolbeinn Proppé var á staðnum. Ég reyndi samviskusamlega að vera leiðinlegur við hann en held það hafi ekki tekist. Sagði honum að kenna hinum strákunum á Múrnum að slást fyrir hugsjónir sínar en hann tók það ekki í mál. Töffarinn á Múrnum er einnig einlægur í friðarboðskapnum. Che, hvar ertu maður?
James Bond og Steingríms Hermannssonar blandan og stórvinur Gúnda blaðamanns Dagur Eggertsson var þarna, kynþokkafullur í grænni peysu. Hann var með frúna með sér og ég fékk ekki betur heyrt en kvenfólkinu á staðnum þætti það miður.
Billi ljósmyndari lét sjá sig og lyfti þessu á æðra plan. Hann er eðalkommi að norðan, alinn upp í byltingarskóla alþýðunnar og laðaði því að sér fleiri komma sem gaman var að spjalla við.
Markaðströllið Tómas Ragnarsson dúkkaði upp og ég öskraði á hann ca. eitt og hálft Doors lag. Hann varð kjaftstopp. Aldrei séð það áður.

Þetta er orðið fáránlega langt og ég nennessieggi þannig að eitthvað krassandi stöff verður látið liggja milli hluta. Mun þó bæta við þetta ef einhverjir bömmerar ungpólitíkusa rifjast upp fyrir mér.

Anna fékk þetta SMS frá Agli bróður mínum sem tekur uppruna sinn mjög hátíðlega: Framsókn er flokkur fyrir þig. Framsókn er flokkur fyrir mig. Framsókn er besti kosturinn, svo setjið X við B á kjördaginn.

Sjálfur fékk ég þetta frá höfuðsnillingnum Jakobi Bjarnari: Góðir landsmenn. Förum að dæmi The Colorado Climber og sörgum af okkur Bláu höndina. It´s gonna be painful as hell, but it´s our only hope.

Er þetta þá ekki allt á hreinu?

Lesið Duran Duran opnuna sem ég og Biggi tróðum í Fréttablaðið í dag og bíðið spennt eftir umfjöllun minni um smáskífuboxið hér á BadaBing! Þarf auðvitað ekki að taka það fram að ég á allar þessar plötur á 12" sem ég keypti samviskusamlega hjá Halldóri í Plötubúðinni á þeim dásamlegu árum þegar karlmenn notuðu maskara og voru með sítt að aftan og kjarnorkusprengjan hékk ógnandi yfir höfðum okkar og Símaskráin sagði okkur að fara ofan í kjallara ef það spryngi atómsprengja í garðinum hjá okkur. Those were the days.


Letters from Hell
Fimmtudagur, 08. maí 2003

Hékk eins og fífl yfir Silfri Egils fram eftir nóttu. Björn Ingi á greinilega framtíðina fyrir sér innan Framsóknarflokksins en flestir sem ég hef heyrt í í dag fannst hann yfirmáta leiðinlegur.
Sjálfur tók ég ekkert sérstaklega eftir því þar sem einhver Eyjólfur Ármannsson, lögfræðingur og fulltrúi Frjálslynda flokksins , yfirskyggði alla aðra með bjánalegri framkomu sinni. Þreytandi og barnaleg klöguskjóðutýpa, sí gargandi og gjammandi. Alveg ekta svona náungi sem var í málfundafélagi í grunnskóla, ræðuliðinu í framhaldsskóla og ákvað að fara í framboð eftir að hann komst ekki að í hússtjórn. Maður verður bara ofbeldishneigður af því að horfa á svona fólk í sjónvarpinu.

Bjarni Benediktsson, lögfræðingur og frambjóðandi Sjálfstæðisfloksins var kurteis og dannaður og mat stöðuna hárrétt og gerði mest af því að þegja. Ekki það að menn eigi að þegja þegar þeir mæta til Egils en stundum getur það verið betra en að tala. Ég myndi samt frekar vilja láta Bjarna verja mig ef ég verð kærður fyrir óspektir á almannafæri en frálslynda löffann sem yrði örugglega ákærður fyrir óspektir í hérðasdómi.

Atli Gíslason, lögfræðingur (hvaða lögfræðinga geðveiki er þetta. Satan sjálfur hafði þetta um þá að segja í Angel Heart sem er mögulega besta bíómynd ever: Don´t worry no one will mourn one less lawyer in the world. Sama gildir um Alþingi Íslendinga) og frambjóðandi VG, kom nokkuð sterkur inn sem nýr vinur litla mannsins. Hann mætti samt ganga vasklegar fram sem lögmaður Blaðamannafélagsins og ná þessum vangoldnu launum mínum út fyrir mig. Verð ekki mikið var við smælingjasamúðina þar.

Álitsgjafarnir hans Egils á kaffihúsinu voru miklu skemmtilegri en liðið
sem mætti og þusaði. Félagi EIR átti skemmtilegustu og flottustu pælinguna þegar hann varpaði ljósi á hræðsluna sem einkennir þjóðina. Glöggur mannlífsrýnir hann EIR.
Illugi hafði mikið til síns máls þegar hann kvartaði yfir of mikilli kurteisi íslenskra fjölmiðla og Siggi pönk átti kollgátuna þegar hann benti á að það skiptir engu máli hvaða flokkur kemst til valda þar sem þeir lagi sig allir að bákninu. (Framsókn er þó auðvitað alltaf verst - eins og njálgur sem hefur borað sig að kjötkötlunum eins og einn góður félagi minn orðar það alltaf.

Hallur Hallsson fór á kostum en var svo djúppældur að það var ekki nokkur leið að skilja hvað hann var að fara. Þusaði eitthvað um einhverja stórkostlega tilraun og ég hélt að hann ætlaði að fara að tala um Keikó, konur frá Venusi eða hver færði ostinn hans. En
hann er víst farinn að hafa skoðanir á öllu og var að tala um einhverja EB tilraun.

Ritstjórinn tilkynnti mér og Guðmundi Steingrímssyni það í dag að okkur bæri að kjósa Framsóknarflokkinn. Rökin eru tilfinningaleg en hann telur ljóst að okkar bíði 60 ára sálarangist ef við svíkjum feðraveldið og mennina sem komu okkur hingað. Hmmmmmmmmmmmmm... X-B? Shit maður.

Nældi mér í rauðan Che J. Sigfússon bol á hinni stórundarlegu kosningaskrifstofu VG við hliðina á Ara í Ögri. Þar voru eðalkverúlantar og nánast allur dómstóll götunnar mættur í vöflur og kaffi með Jón frá Pálmholti í broddi fylkingar. Þar var líka flottur róni í ullarsokkum sem er vonandi ekki málefnalegasti stuðningsmaður VG þar sem hann gargaði það á hörundsdökka íslenska stúlku í Bankastrætinu að Ísland væri fyrir Íslendinga og hananú!!! Óvenju illskeyttur miðað við að hann var nýbúinn í vöflukaffi með skáldinu frá Pálmholti. Vona að stelpugreyið hafi verið kanamella. Annars hefur blessaður maðurinn verið að éta vöflur frá vitlausum flokki.
En bolurinn er flottur þó Che sé einhvern veginn rómatískara íkon en
Sigfússon.

Lifi byltingin!

Já og bara svona for the record þá er Ingó líka vinur minn. Alveg pottþétt, þannig að þeir eru þá orðnir þrír vinir mínir.


Vinir Tóta
Fimmtudagur, 08. maí 2003

Það bregst ekki að þegar maður hallar á blessaða Innherjana þá ætlar allt um koll að keyra. Stebbifr. orðinn vinur minn og bólfélagi og ég veit ekki hvað. Aumingja Stebbi á þetta ekki skilið enda gæti það hindrað frama hans innan Sjálfstæðisflokksins ef hann er bendlaður við mig. Svo er verið að dusta rykið af grunni allrar minnar beiskju og þunglyndis - sjálfu framsóknargeninu. Þetta er nú ljóti skríllinn.

Við hjónin erum með mjög háa threesome standarda og ég treysti mér til þess að fullyrða að Stebbifr. er ekki líklegur til að kveikja í okkur.
Þar fyrir utan á ég bara tvo vini. Er giftur öðrum þeirra og hinn er ekki Stebbifr. þó maðurinn sé Heimdellingur í húð og hár. Stebbifr. er búinn að senda mér póst og áréttar enn og einu sinni að hann beri engan kala til mín - but that don´t make us friends enda er ég ekki mikið fyrir að sanka svoleiðis dóti að mér. Vinir eru yfirleitt til óþurftar og leiðinda. Hitt er svo annað mál að sem blaðamaður tala ég við aragrúa af fólki en að það þýðir ekki átómatískt að það verði allt vinir mínir. Slíkt væri alger firra og óásættanlegt af minni hálfu og ég myndi ekki afkasta miklu í vinnunni ef allir viðmælendur mínir ættu að vera vinir mínir.


Annar í þunglyndi
Miðvikudagur, 07. maí 2003

UngfrúrFemin.is eru að selja hinn heillum horfna netmiðil www.visir.is, ekkert um það að segja annað en ef það er rétt að Eyjólfur hafi selt þeim ruslið á 50 milljónir þá ættu femínskvísur að snúa sér að einhverju öðru en bissniss. Vísir er handónýtur fréttamiðill og www.mbl.is er kominn með yfirburðastöðu sem hann mun halda svo lengi sem Árvakur tímir að borga með honum eða einhver annar vellauðugur aðili ákveður að fjárfesta í framtíðinni og moka hressilega peningum í netmiðil.

Flettingar eru hinn óáþreifanelgi verðmiði netmiðlanna og það hefur lengi verið dapurleg staðreynd að Vísir er líkega að taka inn flestar flettingar á kverúlantarotþrónni Innherjum. Einhver klepparinn kom þeirri grillu inn hjá félögum sínum að nýju eigendurnir ætli að loka spjallanu á laugardaginn vegna áhugaleysis og álags hjá ISNIC. Skemmtileg móðursýki greip um sig í kjölfarið, ekki ósvipað og þegar Stefán Jón stundaði það í Þjóðarsálinni að skella á geðveikar fyllibyttur sem bruddu flatkökur með blóðmör og Fánavindlum í húsgagnalausum blokkaríbúðum í Kópavoginum. Innherjum verður vonandi aldrei lokað og félagsmálayfirvöld ættu að íhuga það að hlaupa undir bagga með Vísi svo fríkin haldi sig öll á sama stað. Hitt er sama firran og að loka Keisaranum.
Annars gerir, Totil, minn gamli vinnufélagi á Vísi upp við fyrirbærið í dag. Litlu við það að bæta.

Já. Ingó, sá góði drengur, er byrjaður að blogga.

Var of þreyttur í kvöld til að fara á frumsýninguna á þessari ofsalega erótísku munkaklámmynd. Djöfus bömmer. Fleira var það ekki. Fokk off.


Helvítis, djöfulsins, andskotans
Þriðjudagur, 06. maí 2003

Dyggir lesendur hafa verið að hafa samband og kvarta yfir litlu fjöri hér á BadaBing! Hinn eiturskarpi blaðamaður Binni kom með þá fáránlegu kenningu að ég væri orðinn svo hamingjusamur að ég hefði ekkert til þess að pirrast út í. Þetta er alrangt. Ég hef sjaldan verið í verra skapi enda vorið komið og nokkrir dagar í að ég kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Það eru kaldir dagar í helvíti.
Ingó alhliðasnillingur kvartaði yfir þögninni hérna en henni fylgir að hans sögn skortur á almennilegu entertainmenti á Netinu.
Hér er ekkert entertainment bara óstuð en ég neita algerlega að viðurkenna að það sé í einhverju samhengi við óhóflega drykkju síðustu vikuna.

Hélt ágætis 80´s partí fyrir blaðamenn Fbl. í höfðuðstöðvum BadaBing! á föstudaginn. Þetta er alltaf drullugóð tónlist. Einn nágranni kvartaði. Það er gott. Hafði fyrir því að tengja plötuspilarann og sótti allar DuranDuran 12" mínar niður í geymslu. Spilaði enga vegna tímaskorts.
Búinn að sjá X2. Hún er smart og flott. Wolverine er töff, Storm er sæt og Jean Gray líka. Magneto og Mystique eru ferlega skemmtileg og Nightcrawler er velkomin viðbót í fríksjóið. Byrjunaratriðið með Nightcrawler er snilld. Annars skrifar Biggi ágæta umsögn um myndina í Fbl. í dag þannig að ég nenni ekki að tjá mig frekar um hana. Hulli er líka hress með hana, þannig að þetta er allt í gúddí.

Þetta próf er greinilega ramgallað. Dró ekkert úr perranum í mér og fæ þessa niðurstöðu. Hvernig getur Xavier fílað Dude Where´s My Car??? Djöfulsins bull.

professor x
You are Professor X!

You are a very effective teacher, and you are very
committed to those who learn from you. You put
your all into everything you do, to some extent
because you fear failure more than anything
else. You are always seeking self-improvement,
even in areas where there is nothing you can do
to improve.


Which X-Men character are you most like?
brought to you by Quizilla


Öreigar Íslands? veriði heima hjá ykkur!
Fimmtudagur, 01. maí 2003

(Skriafði þennan pistill að beiðni snillingsins og yfirhróksins Hrafns Jökulssonar á Pressuna á Strikinu fyrir 1-2 árum. Hann er klassískur og því endurbirtur í tilefni dagsins).

Ég var einu sinni verkamaður og hafði lítið annað upp úr því en þunglyndi og drykkjusýki. Eitt þykir mér þó vænt um og einhvers virði þegar ég rifja upp Dagsbrúnarárin mín, en það er að ég fékk að kynnast harðsvíruðum "alvöru verkamönnum". Mönnum sem hafa lagt vegi og brýr út um allt land og puðað fyrir skítakaupi allt sitt líf, nánast án þess að njóta lágmarks mannréttinda, og þeir sem tóra eru sjálfsagt enn að éta skrínukost á hlaupum, þar sem reglulegur matartími er víða enn fjarlægur draumur.

Þessir menn kenndu mér að drekka bleksvart, rótsterkt kaffi og drekka seigan landa ef illa áraði og með lífsreglunum fékk ég innblásna fyrirlestra um það sem máli skiptir í lífinu og eitt er víst að það hefur ekkert með markaðssetningu og þjónustu að gera. "Bindishnútar" og "jakkafatagufur" áttu ekki upp á pallborðið hjá mínum mönnum, sem þótti sér mörgum hverjum stafa ógn að menntuðu fólki, "því lærðara, þeim mun heimskara".

Fordómar? Svo sannarlega, enda hafði drakta- og jakkafataliðið fengið tækifæri til menntunar, sem gáfust ekki þegar strákar urðu menn við fermingu og neyddust til að byrja að vinna fyrir sér. Fordómarnir beindust þó ekki gegn menntun sem slíkri, heldur hrokanum í uppskrúfuðu pakkinu, sem er með eilífan belging og burðast með undarlegar hugmyndir um eigið mikilvægi. Verkamennirnir mínir voru nefnilega með hjörtu úr gulli og ráku mig áfram í námi og hreinlega bönnuðu mér að hanga í "skítnum" með sér.

Fátt fór meira í taugarnar á þessum vinum mínum en fyrsti maí. Merkingarlaus dagur þar sem "spilltir" verkalýðsforkólfarnir börðu sér á brjóst og sögðu okkur að nú væri komið nóg, við gætum ekki endalaust axlað byrgðar þjóðfélagsins með breiðu bökunum okkar. "Nú skal það gerast félagar! Við ætlum að sýna þessum kónum í stjórnarráðinu hvers við erum megnugir og knýja fram launahækkanir." Ár eftir ár, eftir ár. Og ekkert breytist.

Dagsbrún var versti óvinur okkar. Vegna þess að hún þóttist vera að gera eitthvað fyrir okkur. Flaumur innantómra loforðanna var endalaus og síst af öllu höfðum við geð í okkur að taka þátt í skrípaleik verkalýðsforystunnar þann 1. maí. Við eftirlétum það tilgerðarlegum iðnemum og stúdentafígúrum, sem fíluðu að "snobba niður á við", að taka þátt í karnivalinu. Á meðan það duglausa hyski marseraði með rauða fána og Che Guevara húfurnar sínar niður Laugaveginn. Notuðm við frídaginn til að jafna okkur á þynnkunni og fylirísröflinu um aumingjana í Dagsbrún.

Þynnka, sígó og svart kaffi; þannig halda alvöru verkamenn upp á daginn og bíða rólegir eftir byltingunni. Ykkur hinum er velkomið að hengslast niður í bæ og stuðla að því að grútmáttlausir verkalýðsleiðtogarnir geti haldið í þá tálsýn að þeir hafi einhverju hlutverki að gegna. Hvernig sem nokkrum manni getur dottið í hug að þjóð sem kallar funda og þrætur "sjálfstæðisbaráttu" eigi til snefil af baráttuvilja, samstöðu og getu til að breyta einhverju.

Gleðilegan 1. maí!


Shit maður...
Fimmtudagur, 01. maí 2003

bara allir að lesa Fréttablaðið. Spurning um að fara að vanda sig í vinnunni. Það var haldið upp á sigurinn á Mogganum með stæl á Einari Ben. í gær. Guðmundur sló eina ferðina enn í gegn með nikkunni, sem hann er að fara með á Hróarskeldu, og spilaði m.a. Lick it up fyrir Moggann. Það var fallegt.
Eigendur Fréttablaðsins ætla víst að stíga fram í dagsljósið á þessum tímamótum. Sé ekki ástæðu til þess að upplýsa það hér hverjir þeir eru enda vita það allir. Annars hefur það sýnt sig að það er alveg hægt að gefa út blað með eigendur í skápnum, enda hefur eignarhaldið ekkert með fréttaflutninginn að gera eins og sjálfur Björn Bjarnason bendir réttilega á:

Í stjórnmálaumræðum í áratugi hefur aldrei verið sótt að mér vegna fyrirsagnar á frétt í Morgunblaðinu með vísan til þess, að ég eigi hlut í Árvakri hf., sem gefur út blaðið. Á að skilja þetta á þann veg, að borgarstjóri telji hluthafa blaðsins ákveða fyrirsagnir þess? Hvaða álit hefur hann á ritstjórnarlegu sjálfstæði innan Morgunblaðsins? Borgarstjóri virðist telja sig hafa stöðu til að segja okkur borgarfulltrúum fyrir verkum og til að vanda um við okkur, ef við tölum ekki eins og honum líkar. Allt er þetta mikill misskilningur og virðingarleysi við störf og umboð kjörinna fulltrúa eins og ummæli hans um Morgunblaðið eru óvirðing við ritstjórn þess.

Gott að vita þetta.

Frétti það á Einari Ben. að 15 manns, ég endurtek 15 manns, lesi BadaBing! reglulega. Þetta er gríðarleg aukning frá síðustu óformlegu könnun en þá lásu aðeins þrír vefinn einu sinni í viku eða oftar, þeir AlanHudson, Organistinn og RefurinnLoki. Þessi tíðindi eru okkur mikil hvatning til að gera betur og vegna fjölda áskoranna (1) ætlum við að endurtaka grunnskólanám okkar í íslensku til að misbjóða lesendum ekki frekar með óþarfa beygingar- og stafsetningarvillum.

Eitthvað bögg var að sjálfsögðu í gangi en það er ástæðulaust að fara út í það hér en mafíósinn Þórir Steingrímsson ætti þó að hafa hægt um sig ef hann verður á vegi okkar Billa ljósmyndara á næstunni. Skondnir menn sem rífa kjaft og hafa í hótunum og láta mann svo fá nafnspjaldið sitt.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff