»  off record  »  Annar í þunglyndi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Annar í þunglyndi
Miðvikudagur, 07. maí 2003

UngfrúrFemin.is eru að selja hinn heillum horfna netmiðil www.visir.is, ekkert um það að segja annað en ef það er rétt að Eyjólfur hafi selt þeim ruslið á 50 milljónir þá ættu femínskvísur að snúa sér að einhverju öðru en bissniss. Vísir er handónýtur fréttamiðill og www.mbl.is er kominn með yfirburðastöðu sem hann mun halda svo lengi sem Árvakur tímir að borga með honum eða einhver annar vellauðugur aðili ákveður að fjárfesta í framtíðinni og moka hressilega peningum í netmiðil.

Flettingar eru hinn óáþreifanelgi verðmiði netmiðlanna og það hefur lengi verið dapurleg staðreynd að Vísir er líkega að taka inn flestar flettingar á kverúlantarotþrónni Innherjum. Einhver klepparinn kom þeirri grillu inn hjá félögum sínum að nýju eigendurnir ætli að loka spjallanu á laugardaginn vegna áhugaleysis og álags hjá ISNIC. Skemmtileg móðursýki greip um sig í kjölfarið, ekki ósvipað og þegar Stefán Jón stundaði það í Þjóðarsálinni að skella á geðveikar fyllibyttur sem bruddu flatkökur með blóðmör og Fánavindlum í húsgagnalausum blokkaríbúðum í Kópavoginum. Innherjum verður vonandi aldrei lokað og félagsmálayfirvöld ættu að íhuga það að hlaupa undir bagga með Vísi svo fríkin haldi sig öll á sama stað. Hitt er sama firran og að loka Keisaranum.
Annars gerir, Totil, minn gamli vinnufélagi á Vísi upp við fyrirbærið í dag. Litlu við það að bæta.

Já. Ingó, sá góði drengur, er byrjaður að blogga.

Var of þreyttur í kvöld til að fara á frumsýninguna á þessari ofsalega erótísku munkaklámmynd. Djöfus bömmer. Fleira var það ekki. Fokk off.


| 22:57 |
komment

Þessi Árvakursjókur var klár óþverraskapur. Gegnheilum innherjum á borð við xtrax, kommann og stebbifr svelgdist á morgunkókópuffsinu þar til einhver fullorðinn benti þeim á jókið. Það ætti auðvitað að kjöldraga svona húmorista sem hafa trúgjarnt fólk að fífli.

Nr. 1 | AlanHudson | 7.05.2003 | 23:08:08 | [+] |

Of seint. Það datt upp úr einum að vinur hans væri að sérhanna bloggvefsíðu fyrir sig. Þetta er bara byrjunin á endalokum internetsins.

Hef annars oft spáð í það hvað innherjarnir eru kjörið hráefni í lokaprófsritgerð fyrir einhvern í sálarfræði. Eða PhD í metafýsískum geðlækningum.

Nr. 2 | AlanHudson | 7.05.2003 | 23:19:08 | [+] |

Alan:

Tók eftir því að hin heita Innherjagella Keops er blaut og þráir stefnumót við TC. Getur þú ekki látið þetta rætast?

Nr. 3 | Organistinn | 7.05.2003 | 23:43:43 | [+] |

Kíki stundum á vefsíðu Tóta blaðamanns, en taldi það við hæfi nú enda þóttist ég viss um að eitthvað væri rætt um Innherjavefinn. Ekki brá mér við þessar fréttir, hvort sem þær eru sannar eða lognar enda hef ég sáralítið tekið þátt í þessu spjalli seinustu daga og tel ólíklegt að ég haldi þessu mikið lengur áfram. Skrifa daglega á bloggsíðu mína og hef einnig aðra heimasíðu. Er að vinna í nýrri síðu sem mun sennilega vera með spjall og því algjör óþarfi fyrir mig að taka þátt á Innherjum eftir kosningar, ef svo verður. Annars kíkir maður alltaf á þetta þó svo kannski verði ekki alltaf skrifað. Skrifa þegar mér þykir við eiga.

SFS

PS: Kannski maður hringi í þig fljótlega Tóti, þakka þér fyrir síðasta spjall

Nr. 4 | Stefán Friðrik Stefánsson | 8.05.2003 | 0:27:12 | [+] |

Óþolandi að sjá allt þetta hamingjusama og fullnægða fólk í kringum sig sem stendur í ástríðufullum ástarsamböndum. Fyrst Alan Hudson og Keops, og nú Stebbi og Tóti. Skil vel að Tóti nenni ekki að fara á munkaklámmynd.

Nr. 5 | organistinn | 8.05.2003 | 0:36:04 | [+] |

TC? Af hverju ég? Þið notið sama tannburstann. Það er samt ekki vandamálið þitt. Þú þarft konu sem prjónar.

- um hvað ætli stebbifr og Don Tóti spjalli? Væntanleg ungliðakúpp í lýðveldinu Íslandi? Sameiningu ungra fyrrum framsóknarmanna og ungra núverandi sjálfstæðismanna? Veðrið? Verðið? Beats me!

Nr. 6 | AlanHudson | 8.05.2003 | 0:56:42 | [+] |

Hva! Eru Stebbi og Tóti orðnir perluvinir. Einu sinni voru þeir að hnakkrífast nú eru þeir eins og par í sleik eða hvað? Tóti hvað segiru um þetta

Nr. 7 | samhverfa | 8.05.2003 | 1:29:18 | [+] |

SJáiði þá ekki fyrir ykkur í vænum sleik, framsóknarplebbann Tóta og íhaldssleikjuna stebbafr. Efni í væna frétt eða hvað.

Nr. 8 | Níróinn | 8.05.2003 | 1:37:24 | [+] |

Hér er skrifuð vestfirska.

Nr. 9 | AlanHudson | 8.05.2003 | 1:42:51 | [+] |

Nei ég meina það. Er Tóti orðin eins og lóðatík á eftir Stefáni. Hefur maðurinn enga respect?

Nr. 10 | samhverfa | 8.05.2003 | 1:45:41 | [+] |

Don Tóti er vel gefinn og hefur vafalaust góðan kontról á efriárahormónatoppunum. Hann eltir engan. Hann er eltur.

Nr. 11 | AlanHudson | 8.05.2003 | 1:49:45 | [+] |

Veit ekki hvor eltir hvern. Tóti hefur mikið fjallað um Stebba í Fréttablaðinu. Hann hlýtur að hafa átt frumkvæðið að þessu spjalli. Hvað hefur gerst er hann orðinn hugfanginn af sjallanum. Ef þeir eru perluvinir þá geta allir orðið það. Þetta er upphafið að svakarómans. stebbifr og tóti badabing eru orðnir sálufélagar og kannski bara að fara að leigja sér. Ja segi bara sisona

Nr. 12 | samhverfa | 8.05.2003 | 1:55:17 | [+] |

Vonandi eru þeir ekki komnir á totterístigið. My god

Nr. 13 | Níróinn | 8.05.2003 | 1:57:22 | [+] |

Þú segir nokkuð. Kannski fer Stebbi að lesa Fréttablaðið ef hann og Tóti fara að rugla saman reitum

Nr. 14 | samhverfa | 8.05.2003 | 2:12:21 | [+] |

Sæll Stefán Friðrik:

Það er alveg sjálfsagt að hjálpa þér með heimasíðuna ef þú vilt. Ég gæti hannað hana svona eins og tvíburasíðu við Badabing. Tóti verður með ýmislegt sniðugt á sinni síðu sem gæti líka komið vel út á nýju síðunni þinni.

Bestu kveðjur,

Anna

Nr. 15 | anna-punktur-ís | 8.05.2003 | 5:39:58 | [+] |

Tóti!

Ert þú ekki á góðri leið með að taka stóru karakterana af Innherjum upp á arma þína?

tc

Nr. 16 | Tony Clifton | 8.05.2003 | 6:04:31 | [+] |

Eru þau Anna, Tóti og Stebbi komin í threesome, rosalega eru þau orðin kammó hvort við annað. Tóti spjallar við Stebba og Anna býðst til að hjálpa honum með síðuna. One big happy family!

Nr. 17 | samhverfa | 8.05.2003 | 9:01:39 | [+] |

Shoot!! Ég ætlaði að panta eina síðu eins og Stebbifr, svo er þetta bara hoax!! How low can you go??

Nr. 18 | AlanHudson | 8.05.2003 | 14:38:00 | [+] |

Nei, innlegg anna-punktur-ís, aka organistinn, hér ofar. Að ráðast svona að internetspéhræðslu og spjátrungsskap innherja er algerlega óviðunandi ;)

Nr. 19 | AlanHudson | 8.05.2003 | 15:52:10 | [+] |

Anna:

Þú ert gott sport og það er alveg rétt hjá þér að ég er góður inn við beinið. Þetta er í fyrsta skipti sem ég held framhjá Organistanum hérna á Badabing og lofa að gera það aldrei aftur. Þetta lá bara svo vel við.

Ok, ég mun bæta aðeins við handritið þitt í næstu viku. Síðan þín er bönnuð börnum, rétt?

Nr. 20 | Organistinn | 8.05.2003 | 17:45:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff