Laugardagur, 10. maí 2003
Súperblaðamennirnir Gúndi, Binni og Tóti gerðu úttekkt á kosningafylliríi ungliða flokkanna í gær. Byrjuðum hjá Framsókn í gamla Kuffélaginu þar sem heimildir okkar hermdu að þar dældu fremskridspartidýrin bjór í gesti og gangandi, óháð stjórnmálaskoðunum og aldri.
Þetta var undarleg samkoma mikið af stelpum undir aldri að hamstra bjór, tvær meintar framsóknargellur stigu villtan dans. Voru svo sem ekkert spes en flottari en Siv og Valgerður.
Þessir framsóknarkettlingar vita auðvitað ekki rassgat og ekki þótti okkur Gúnda þeir sýna okkur tilhlýðilega virðingu. Björn Ingi var þarna og gaf sig á tal við mína menn, Slaufu-Guðjón var einnig á staðnum slaufulaus. Ekkert bólaði á Halldóri Ásgrímssyni.
Fyrir utan ókeypis bjórinn var þetta morkið. djamm. Mikið af leiðinlegu fólki, hiti og ótrúlegur hellingur af skinheads sem töluðu mikið um að sprengja og skjóta allt í tættlur. 
Næst á dagskrá var Samfylkingin á einhverju sem heitir Felix eða eitthvað í þá veruna. Það er skemmst frá því að segja að Samfylkingin kolfellur algjörlega á sukkprófinu. Bjórinn seldur fullu verði! Djöfulsins aumingjar (eða alkapatar) ekki kýs ég svona nánasir. Eiríkur Bergmann var á staðnum sáttur við að kaupa ölið á ekki Evrópuverði auk þess sem efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, Jakob Frímann, var í góðum gír. Gúndi og Helgi Hjörvar plottuðu eitthvað á meðan við Binni tékkuðum á VG með Shogun sem er að hætta sem blaðamaður á fyrrum fréttamiðlinum vísi.is. Samfó fær að vísu eina stjörnu í plús og mer framsókn með
fyrir það að Ingibjörg Sólrún var á staðnum ásamt betri helmingnum. Unga fólkið umkringdi hana til að fá að faðma hana og snerta klæði hennar. Hún var hin spakasta og slúðurblaðamurinn fékk því ekkert fyrir sinn snúð.
Vinstri grænir
voru að lepja Thule í kosningamiðstöð sinni við hliðina á Ara í Ögri. Ekki fengu blaðamennirnir hlýjar móttökur þar. Jú og þó Ármann, Sverrir og Stefán Pálsson voru til í að þrasa við mig og Binna. Þeir hefðu líklega splæst á okkur bjór líka ef Álfheiður Ingadóttir og Katrín systir þeirra bræðra hefðu ekki hent okkur út. Og þá á ég ekki bara við mig og Binna heldur allt heila klappið. Þær leyfðu Múrverjunum þó að halda áfram á Ara en minntu á að vinna við kosningasigurinn átti að hefjast árla morguns.
Leðurjakkaklædda karlremban ræddi við Múrarana um gæði Fréttablaðsins og hinn dyggðum prýdda Pál Hilmarsson sem átti afmæli um daginn. Sverrir gaf mér blýant. Það var gaman.
Lítill, feitur íhaldsbolti í gamla Versló jakkanum sínum með x-D merki í velmegunarbarminum vildi endilega ræða við Ármann um heimsku sósíalismans og survival of the fittest. Það óð á manninum sem var greinilega óþolandi og aumingja frambjóðandinn kom varla orði að. Félagar hans sögðu það að vísu ekki koma að sök þar sem Ármann væri svo gáfaður að hann væri örugglega að reyna að hugsa manninn burt. Það tókst ekki og ég stakk því upp á þvi að maðurinn yrði barinn (hélt að það væri rík hefð fyrir því að kommar lemdu heimdellinga) en VG menninrir sögðu slíkt ganga þvert á grundvallarhugsjónir þeirra. Binni nennti ekki að hlusta á Friedman litla lengur og við ákváðum að kíkja á íhaldsbörnin á Hverfisbarnum (rökrétt?). Hittum mann á leiðinni sem var íhald og hann tilkynnti að bjórinn væri búinn hjá bláu höndinni (já á meðan ég man Sjálfstæðismenn bjóða upp á fordrykk á kosningavökunni sinni í kvöld. Hann er blár og heitir..... you said it baby, Bláa höndin.) Ja há, svo bregðast krosstré sem önnur enginn bjór á íhaldinu sem fær því 0 stjörnur enda fórum við ekki til þeirra. Á dauða mínum átti ég von en að framsókn sé eini flokkurinn sem gæfi mér bús. Er ekki allt í lagi?
Við rákumst á smælingjavininn, VG frambjóðandann og Matlockinn Atla Gíslason og nú verður GAR ánægður með mig þar sem ég las yfir þessum lögfræðingi Blaðamannafélagsins og skammaði hann fyrir dugleysi hvað vangoldnu launin okkar snertir. Hann tók það ekki í mál að sér væri sama um blaðamenn, tók upp veskið og spurði hvað mig vantaði mikið. Sjöhundruð og fjörutíu þúsund sirkabát. "Ekkert mál. Ég skrifa bara tékka." Kom þá ekki kona (væntanlega hans) og stoppaði hann. Enginn tékki skrifaður. Ég blankur og kosningabaráttan búin og hreðjatakið á frambjóðendum losnað. Rats.
Kosningavökurnar hristust saman á Ölstofunni. Hitti þar hinn ágæta vinstribloggara Þór Steinarsson sem er stórfínn í viðkynningu. Hann var með the upper hand þar sem hann þekkti mig í sjón en nú þekki ég hann og kíki eftir honum á djamminu næst þegar hann leggur leið sína í bæinn. Ofurframbjóðandinn Kolbeinn Proppé var á staðnum. Ég reyndi samviskusamlega að vera leiðinlegur við hann en held það hafi ekki tekist. Sagði honum að kenna hinum strákunum á Múrnum að slást fyrir hugsjónir sínar en hann tók það ekki í mál. Töffarinn á Múrnum er einnig einlægur í friðarboðskapnum. Che, hvar ertu maður?
James Bond og Steingríms Hermannssonar blandan og stórvinur Gúnda blaðamanns Dagur Eggertsson var þarna, kynþokkafullur í grænni peysu. Hann var með frúna með sér og ég fékk ekki betur heyrt en kvenfólkinu á staðnum þætti það miður.
Billi ljósmyndari lét sjá sig og lyfti þessu á æðra plan. Hann er eðalkommi að norðan, alinn upp í byltingarskóla alþýðunnar og laðaði því að sér fleiri komma sem gaman var að spjalla við.
Markaðströllið Tómas Ragnarsson dúkkaði upp og ég öskraði á hann ca. eitt og hálft Doors lag. Hann varð kjaftstopp. Aldrei séð það áður.
Þetta er orðið fáránlega langt og ég nennessieggi þannig að eitthvað krassandi stöff verður látið liggja milli hluta. Mun þó bæta við þetta ef einhverjir bömmerar ungpólitíkusa rifjast upp fyrir mér.
Anna fékk þetta SMS frá Agli bróður mínum sem tekur uppruna sinn mjög hátíðlega: Framsókn er flokkur fyrir þig. Framsókn er flokkur fyrir mig. Framsókn er besti kosturinn, svo setjið X við B á kjördaginn.
Sjálfur fékk ég þetta frá höfuðsnillingnum Jakobi Bjarnari: Góðir landsmenn. Förum að dæmi The Colorado Climber og sörgum af okkur Bláu höndina. It´s gonna be painful as hell, but it´s our only hope.
Er þetta þá ekki allt á hreinu?
Lesið Duran Duran opnuna sem ég og Biggi tróðum í Fréttablaðið í dag og bíðið spennt eftir umfjöllun minni um smáskífuboxið hér á BadaBing! Þarf auðvitað ekki að taka það fram að ég á allar þessar plötur á 12" sem ég keypti samviskusamlega hjá Halldóri í Plötubúðinni á þeim dásamlegu árum þegar karlmenn notuðu maskara og voru með sítt að aftan og kjarnorkusprengjan hékk ógnandi yfir höfðum okkar og Símaskráin sagði okkur að fara ofan í kjallara ef það spryngi atómsprengja í garðinum hjá okkur. Those were the days.
| 16:33 |