Sunnudagur, 25. maí 2003
....sagði Billi ljósmyndari í sms sem hann sendi mér eftir að það var ljóst að Tatú myndi ekki vinna Júrótrasskeppnina. Það er greinilega ekkert því til fyrirstöðu að sameina alla andskotans álfuna og gyðingakvikindin líka fyrst íbúar allra þessara landa kveða upp þennan einróma dóm og afhjúpa sig sem smekklausa tónlistarsóða og hálvita.
Ég er nú samt nokkuð sáttur þar sem Austurríkismaðurinn minn stóð sig þrusuvel og komst mjög ofarega á stigatöfluna. There´s hope yet.
Tatú stelpurnar voru sætar og stilltar. Lagið kannski ekkert spes en þær áttu að vinna. Af því bara. Ættu ekki femínistar að fara að beina sjónum sínum að þessarri fokkings keppni?
Öll löndin gerðu meira og minna út á bert hold kvenna. Sú gríska var æði; hausinn á Barböru Streisand skrúfaður á skrokkinn á Pamelu Anderson. Beið eftir að reimin sem hélt brjóstunum í skefjum slitnaði, tæknimenninrir hefðu örugglega verið lengi að skipta yfir á teipið þar sem ekkert lessuaction var í aðsigi.
Þetta Belgíska lag var viðbjóður í sinni tærustu mynd og sigurlagið frá Tyrklandi sökkaði big time. Vann það ekki bara út af þessari fáklæddu tryknesku haremstemningu?
Fokk it ég hef aldrei séð svona mikið Júróvision í einu og ætla aldrei að gera það aftur. Tilvonandi Borgarstjóri Reykjavíkur stóð sig að vísu frábærlega sem þulur. Kætin og einlægin alltaf sú sama og gullkornin hrundu af vörum hans: "Má þetta?", "koma svo, koma svo".
Gísli Marteinn: 12 stig.
Heyrði íslenska lagið í fyrsta sinn í gær. Það var alls ekki versta lagið í keppninni og ég fékk ekki betur séð en Birgitta (bláa stúlkan í hellinum, nei það var fimleikakonan hjá Ungverjunum. Algerlega misheppnuð og greinilega fengin til að glenna sig þarna til að draga athyglina frá því hversu ömurlegt lagið var) væri að gera þetta býsna vel.
Mitt gamla góða Bretland átti botninn skilið. Aldrei séð neitt jafn hræðilegt ever. UK hlýtur að hafa stefnt markivisst á tap.
Fór svo í bæinn. Það var leiðinlegt. Drakk mikið en fann lítið á mér. Það er hræðilegt. Vinna á morgun. Best að detta í´ða eða drepa sig....
| 14:11 |