Þriðjudagur, 06. maí 2003
Dyggir lesendur hafa verið að hafa samband og kvarta yfir litlu fjöri hér á BadaBing! Hinn eiturskarpi blaðamaður Binni kom með þá fáránlegu kenningu að ég væri orðinn svo hamingjusamur að ég hefði ekkert til þess að pirrast út í. Þetta er alrangt. Ég hef sjaldan verið í verra skapi enda vorið komið og nokkrir dagar í að ég kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Það eru kaldir dagar í helvíti.
Ingó alhliðasnillingur kvartaði yfir þögninni hérna en henni fylgir að hans sögn skortur á almennilegu entertainmenti á Netinu.
Hér er ekkert entertainment bara óstuð en ég neita algerlega að viðurkenna að það sé í einhverju samhengi við óhóflega drykkju síðustu vikuna.
Hélt ágætis 80´s partí fyrir blaðamenn Fbl. í höfðuðstöðvum BadaBing! á föstudaginn. Þetta er alltaf drullugóð tónlist. Einn nágranni kvartaði. Það er gott. Hafði fyrir því að tengja plötuspilarann og sótti allar DuranDuran 12" mínar niður í geymslu. Spilaði enga vegna tímaskorts.
Búinn að sjá X2. Hún er smart og flott. Wolverine er töff, Storm er sæt og Jean Gray líka. Magneto og Mystique eru ferlega skemmtileg og Nightcrawler er velkomin viðbót í fríksjóið. Byrjunaratriðið með Nightcrawler er snilld. Annars skrifar Biggi ágæta umsögn um myndina í Fbl. í dag þannig að ég nenni ekki að tjá mig frekar um hana. Hulli er líka hress með hana, þannig að þetta er allt í gúddí. 
Þetta próf er greinilega ramgallað. Dró ekkert úr perranum í mér og fæ þessa niðurstöðu. Hvernig getur Xavier fílað Dude Where´s My Car??? Djöfulsins bull.

You are Professor X!
You are a very effective teacher, and you are very
committed to those who learn from you. You put
your all into everything you do, to some extent
because you fear failure more than anything
else. You are always seeking self-improvement,
even in areas where there is nothing you can do
to improve.
Which X-Men character are you most like?
brought to you by Quizilla
| 21:21 |