»  off record  »  Hvað er að SKE?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hvað er að SKE?
Laugardagur, 24. maí 2003

The Lizard King var í fríi í gær og ég fór stilltur og prúður (The Lion King can´t do anything) á SKE tónleikana á Grandaranum með Siggs, Ingó og fleira góðu fólki. Sils kom og var líka edrú og fín. Það fer okkur Sils betur að vera full.

Anyway mátti til með að mæta þarna þar sem Gumms, hljómborðsleikari, er auðvitað í krúinu. Félagi Jakob var á staðnum og við komumst loksins að því hverjir eru tveir bestu blaðamenn (stílistar) landsins. Say no more.
Palli Svans er hugrakkur maður og mætti með Þórunni Hrefnu. Það var sniðugt. Hún er flott. Má til með að hitta hana aftur. Veit meira að segja að ég get sparað mér að leita að henni á 22.

Hitti því miður ekki Pallahsem hafði hótað því á blogginu sínu að vera þarna. Þekki kauða að vísu ekki í sjón og skimaðist því um eftir Stefáni Pálssyni (hann var pottþétt ekki þarna- örugglega enn í sveitinni). Það hefði verið gaman að setjast yfir viskýglasi með Jakob og tveimur Múrverjum . Bömmer.

Heavý Tatú action á miðju gólfi Grandarans lamaði Ingó og Magga próförk. Slísíblaðamaðurinn hagaðist ekki og gaf Þórunni Hrefnu góð ráð í brennivínskaupum á barnum. Kúba Líbre!

Var það eitthvað fleira? Já, bara for the record I´ve still got it. Þrjár (ein með hvítan koll - mér leiðast nýstúdentar á fylliríum niðri í bæ) huggulegar (beinlínis sætar) og sauðdrukknar stúlkur gáfu sig á tal við mig á leiðinni út í bíl og vildu draga mig á Felix. Ég var með Billa í símanum sem fékk að fylgjast með fádæma orðsnilli gamla flagarans í beinni. Ég fór heim en egóið var ekki dældað að þessu sinni.

Árni og Krissi Ra eru being pumped thoroughly in the de-briefing room. Djúpa laugin var víst alltaf í boði Landssímans. Báðir eru afskaplega huggulegir í viðkynningu og frekar þykir mér því fallið from grace hátt. Krissi var samt flottur í sjónvarpsfréttunum þar sem hann gekk hnarresitur án þess að hylja andlit sitt til yfirheyrslu. Það hefur alltaf verið eitthvað töff í drengnum.

Held að þetta geti orðið hið safaríkasta mál og við séum bara að sjá byrjunina. Blaðamanna gut instinctið mitt fór á fleygiferð með tengingar og samsæriskeningar sem eru það heavý að það borgar sig að þegja. En eins og Össur sagði: You ain´t seen nothing yet. Sýnist félagi Tony vera að slá á rétta strengi á innherjum vísis hvað þetta mál snertir. Tímasetningin hlýtur að vekja spurningar.

Shit. Náði nýjum og áður óþekktum hæðum í forsetafrúargreinini í Fbl. í dag. Reyndi að komast hjá því að kvitta fyrir rómönsunni og stakk m.a. upp á að signaturið yrði tota@frettabladid.is. Hafliði huggaði mig og benti á að það væri flott að sýna breidd í skrifum og það væri göfugt verk að skrifa fyrir gamlar konur. Trúlega. Amma er búin að hringja og er að fíla þetta.


| 13:21 |
komment

Ekki var hamingjuna að finna í Júróvísíjón á netinu eftir að enn eitt gatið á ríkissjóði "uppgötvaðist" í gær.

- Ísland: gerið Birgittu að sendiherra!
- Grikkland: Ljóshærður Cher klón, brjóstin of reirð saman
- Noregur: misheppnaður brittpoppari, 10 árum á eftir samtímanum
- Svíþjóð: enn eitt AB BA klónsettið. Konugreyið farið hamförum með brunkukremið á hægra lærið, sem var mun brúnna en það vinstra (horfir einhver hvort sem er á andlitið á velklæddu kvenfólki?)
- Rússland: Tatu vonbrigði - átti von á hörku þrísome, en við fengum ekki einu sinni koss!
Austurríki: fékk tölvupóst frá félaga mínum þar í miðju lagi sem hélt því fram að hann hefði náð sér í DVD mynd í kvöld og vissi ekkert af keppninni.

Restin: Boyzone-Celine Dion - Britney SPears klónar.

Svo klikkaði rússnesski kynnirinn að sjálfsögðu ekki: "we have a jury in Russia...but you can trust us!".


Diggi-loo diggi-ley
Himlen öppnade sej
....og fyllti aftur í glasið!

Nr. 1 | Tony Clifton | 24.05.2003 | 21:45:32 | [+] |

Djö missti ég af júró út af þessu vegarkantsstoppi. Þetta verður örugglega endurtekið er það ekki? Fóru þessar rússnesku úr?

Nr. 2 | AlanHudson | 25.05.2003 | 4:27:55 | [+] |

Uppáhalds ABBA-lagið mitt? Það segir sig sjálft - The winner takes it all!

Nr. 3 | Refurinn Loki | 25.05.2003 | 12:52:52 | [+] |

Tóti!

Er eitthvað verið að fylgja Símamálinu eftir í fjölmiðlum heima? Einhverjir farnir að grafa -- eða vantar menn skóflur?

tc

Nr. 4 | Tony Clifton | 25.05.2003 | 19:40:05 | [+] |

Ég held að Doninn tjái sig aldrei um ongoing storysnooping hérna.

Alan er hins vegar tilbúinn að éta skó Chaplins úr Gullæðinu uppá að:
- Ýmsir frammámenn hafa fengið 'lán' hjá símanum
- Það er ekki tilviljun að upp um þetta kemst EFTIR kosningar
- Prestssonurinn og Ra munu fá dóm, en aðrir sekir um sömu 'glæpi' sleppa

Og loks:
- Hvarf Sólveigar og Kristins úr sínum stólum á sama tíma er ekki tilviljun.

Nr. 5 | AlanHudson | 25.05.2003 | 20:13:17 | [+] |

Tóti!

Þýðir eitthvað að senda þér off-the-record hint, tc verður aldrei blaðamaður hvort sem er?

Nr. 6 | Tony Clifton | 25.05.2003 | 20:24:02 | [+] |

Tóti: Ísland er lítill heimur og margir þekkjast. Fyrir nokkrum árum þá varð einstaklingur mér afar nákominn þess persónulega aðnjótandi að upplifa vinnubrögð sem nú er gjarnt að kalla 'Bláa höndin'. Hefði BadaBingið verið komið til þá, þá hefði aldrei verið að vita nema þú hefðir fengið ákaflega fróðlegar upplýsingar til að moða úr. Þær hefðu alla vega litið eilítið öðruvísi út en sumt það sem kom frá starfsfélaga þínum á Stöð 2 á þessum tíma. Þetta er hins vegar orðið gamalt mál nú og lítil ástæða til að rifja það upp lengur. Ekki hvað síst þar sem ég á framtíð mína að nokkru undir aðilum sem þarna komu að og eru aftur, og nýbúnir, orðnir ráðherrar. Ég hef ýjað að þessu við suma hér í hirðinni þinni hér áður, þeir vita sem við er átt.

Ísland er ótrúlegt. Burtséð frá smámálum sem margir hafa uypplifað á eigin skinni, eins og því sem ég er að vísað til að ofan, hvar menn voru að bjarga sjálfum sér og vinum sínum - sumir gæðingarnir reyndar gerðir ærulausir síðar þegar þeir flæktu sig í enn dýpri skandala og ekkert til bjargar lengur - þá eru stærri atburðir í farvatninu.

Það var hlegið að Rússum hér um árið þegar þeir voru að brjótast undan kommúnistmanum, og sumir kölluðu það þjófræði sem þar ríkti. Ég held að menn ættu að hlægja minna núna. Þau mál sem við horfum á í dag eru ekkert annað en opinberun á rotnu stjórnkerfi og stjórnarstefnu þar sem menn geta nánast eignast þjóðareignir á silfurfati. Ég myndi ekki kalla þetta lýðræði.

Jæja, best að fá sér meiri bjór og lesa Jónas.

Nr. 7 | AlanHudson | 28.05.2003 | 2:26:34 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff