»  off record  »  I am the Lizard king...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
I am the Lizard king...
Miðvikudagur, 14. maí 2003

Ingó viðrar kenningu um bros Halldórs Ásgrímssonar . Hann virðist byggja á rannsóknum Pavlovs og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð fræðimanna götunnar. Annars hættum við Ingó við að fara í afmæli forsetans þar sem við töldum okkur ekki geta reiknað með miklu búsi.
Umbrotsmenn Fréttablaðsins ryðjast nú fram á bloggvöllinn; fyrst Ingó og nú Palli Svans. Skora á Siggu Liv (Siggs) að vera næst. Hún er nefnilega í með Tóts, Sils, Gumms, Biggs, Mamms, og fleirum í hinu gasalega lekkera reykkrúi, algjört mo fo dæmi. (Biggi er samt reyklaus en alveg ómissandi enda lang frægastur; eini meðlimurinn sem spurt er um í Trivial Pursuit).

BadaBing! gengið (ekki Silvio, Paulie, Chris og co. heldur Rebbi, Organistinn, TC, Alan (fjórar ólíkar IP tölur) er eitthvað að ókyrrast á kommentunum þannig að það er best að blanda sér í málið.

Tony: Takk fyrir að rifja upp dásamlega tíma læknanna í Svartaskógi og Verslókvikindanna í Golfunum sínum með sogskála Garfielda í öllum hliðargluggum. Þetta var blómaskeið sem kemur ekki aftur og RÚV er ekkert að toppa þetta núna. Blessaður vertu alveg róelgur í útlegðinni.

Hvað geislaspilarann varðar þá hefur tónlistarneysla mín verið afar ómarkviss og takmörkuð síðustu mánuði. Á góðum stundum í bílnum fer mest fyrir The Doors, Guns n´Roses, Rammstein og Duran Duran (Seven and the Ragged Tiger).
Var með 80´s partý fyrir blaðamenn um daginn og þá var tekið þétt á þessu allt frá Falco til hinna þýskættuðu Söndru og Nenu og í tilefni af útkomu CD Box með öllum 12" Duran Duran frá 1982 - 1985 gróf ég upp allt þetta dót á vinýl og er að stúdera öll remixin og B-hliðalögin fyrir væntanlega umfjöllun um þessa vanmetnustu sveit allra tíma.

Organistinn: Hvað fréttir af Buschemi og Sopranos varðar þá er þetta mikið fagnaðarefni. Las þetta á einhverjum vefnum fyrir all nokkrum vikum. skilst að hann eigi að leika Mr. Pink úr Res. Dogs. Það væri kúl. Vek annars athygli á því að hann hefur leikstýrt frábærum Sopranos þáttum á borð við þann þar sem Chris og Paulie týndust úti í skógi.

Var eitthvað fleira að angra ykkur morðhundarnir mínir?

Félagi Jakob sagði Perlusögu af sér og Stefáni Pálssyni í kommentunum og hefur fengið einhverjar sneiðar til baka. Þetta er með því skemmtilegasta sem gerst hefur hér á BadaBing! lengi enda engir sauðir á ferð. Verð samt bara svona for the record að vekja athygli á því að Jakob er góður félagsskapur á fyllirýi og því engin ástæða til að drekka sig dauðann þegar hann er með í för, allra síst ef hann skartar smóking eða kjólfötum.


| 20:12 |
komment

Fjórar mismunandi IP tölur fyrir Alan, Rebba, TC og Organistann!!!! He, he, he...Organistinn sendir inn sína dellu frá þremur mismunandi stöðum.

Nr. 1 | Organistinn | 14.05.2003 | 20:25:35 | [+] |

Það er nú gott að líf Organistans hefur öðlast nýja merkingu með fjölföldun á dellunni, eins og hann svo réttilega kemst að orði. En IP er, þrátt fyrir allt, tiltölulega staðbundið.

Nr. 2 | Refurinn Loki | 14.05.2003 | 20:43:12 | [+] |

Var að líta yfir flóann og komst að því að ég er ekki einn. Eða eins og nágranni minn segir, "There are over 20,000 polar bears living in Arctic waters (although some live in Hudson's bay). However, the number of foxes is virtually unknown. They are nocturnal and hard to locate."

TC vinnur hins vegar í sameinuðu sementsverksmiðjunni í Chicago og organistinn býr líklega nálægt General Grant.

Nr. 3 | AlanHudson | 14.05.2003 | 21:00:27 | [+] |

Það má náttúrulega leika sér að búa til prófíl af hirðfíflum Badabings. Hér ættu því allir að geta lagt eitthvað af mörkum, sjálfum sér og öðrum til ánægjuauka.

Organistinn: Lengi vel héldu allir að viðkomandi væri fangavörður á næturvakt í Hverfissteininum, sem ætti erfitt með að halda sér vakandi á næturna. Uppá síðkastið hefur þó Organistinn lýst hrifningu sinni á WalMart og LaJolla í LA., svo menn og konur geta dregið sínir ályktanir af svari Badabings á hinni einu og sönnu dr.Ruth.

TC: Það besta við TC er að hann er eins og góður blaðamaður. Fljótur að sjá kjarnann í þeim texta sem hann les og fylgja því eftir með góðu kommenti. Svona læra menn ekki, held ég, meira að þeir þrói svona stíl yfir tíma. TC getur aldrei haldið aftur af sér þegar tónlist er annars vegar og er vel að sér í þeim efnum. Líklega ekki lanskólagenginn, en skemmtilegur að skrifast á við. Líklega fæddur í kringum 1950.

Alan Hudson: Opið blað enn.

Nr. 4 | Refurinn Loki | 14.05.2003 | 21:02:27 | [+] |

Hehe. Refurinn Loki er fæddur rétt fyrir 1960. Missti af 68 byltingunni og grætur það enn. Foreldrunum seint fyrirgefinn seinagangurinn.
Reyndi að bæta sér missinn með pípureykingum og langröndóttum bláum mussum, ásamt dönskum trampskóm. Gekk ekki í foreldra Milletúlpukynslóðarinnar, svo hann fór til Danmerkur í félagsfræði. Uppgötvaði þar að trampararnir voru out, kynlífsbyltingin liðin og að hann vildi miklu frekar skrifa góðan prósa en blaða í heilaberki misklikkaðra sýkkópata.
Situr núna við skriftir og gengur vel enda yfir meðallagi pennafær.

Nr. 5 | AlanHudson | 14.05.2003 | 21:15:07 | [+] |

Refurinn er lítið fyrir að gráta það sem liðið er. Vonar bara að það besta úr fortíðinni megi vera betra en það versta í framtíðinni. Versti galli refsins er líklega að hann kann ekki að skammast, enda er það afskaplega ópraktískt, eins og danskurinn myndi líklega segja.

Nr. 6 | Refurinn Loki | 14.05.2003 | 21:39:51 | [+] |

He, he, Loki, kjáninn þinn, "LaJolla í LA". Organistinn er hræddur um að ríka snobbliðið í La Jolla gæti tekið þessu mjög illa.

En annars eruð þið Alan right on the money í prófílunum.

En er hinn pennafæri Loki published höfundur?

Nr. 7 | Organistinn | 14.05.2003 | 21:48:27 | [+] |

"...kann ekki að skammast," Þú meinar kann ekki að skammast sín?

Nr. 8 | Organistinn | 14.05.2003 | 21:50:46 | [+] |

Jebb, ég les þetta sjaldnast yfir áður en ég klikka á "Sendi". Slæmur vani.

Nr. 9 | Refurinn Loki | 14.05.2003 | 21:56:54 | [+] |

Ja, Organistinn væri nú síðasti maður til að láta smá villur bögga sig.

En segðu mér í fyllstu alvöru, hvað var þetta með greinina í Mannlíf sem ég var spurður um á Innherjum. Því miður hef ég ekki enn komist á klakann til að fletta þessu upp.

Nr. 10 | Organistinn | 14.05.2003 | 22:07:29 | [+] |

Var það ekki Organistinn sem sakaði Refinn um ritstuld? Síða 17, neðst til vinstri í októberheftinu ef ég man rétt? Maður þarf að skreppa á bókasafnið í sumar.

Nr. 11 | AlanHudson | 14.05.2003 | 22:10:50 | [+] |

Nei ef eitthvað var þá var það öfugt. Organistinn hefur aldrei í Mannlíf komist. Clifton kannski?

Loki: um hvað snýst málið?

Nr. 12 | Organistinn | 14.05.2003 | 22:15:57 | [+] |

Puuuuuhhhhhhhhhhhhhhh...........

Sannleikskornin er að finna í sjálfsævisögunum:

Sendur út sem skiptinemi á síðustu öld. Vaknaði upp 12 árum seinna sem dægurlagasöngvari í Vegas. Fer með reglulegu millibili í rehab og golf í Flórída, en er nýlega búinn að uppgötva meðferðarstöð í Santa Fe, NM. ÞAR SEM JUNIOR BROWN VERÐUR MEÐ GIGG 30. ÁGÚST NK.!! Beat this one, Mr. Hudson! Fer litlum sögum af skólagöngu.

Eiginkona: Jackie Brown (harðneitar að kalla sig Mrs. Clifton - og ég myndi í ykkar sporum ekki nota það ávarp!).

Nr. 13 | Tony Clifton | 14.05.2003 | 22:18:29 | [+] |

Organisti, þú kíkir á þetta í sumar þegar þú tekur nýbúaíslenskunámskeiðið, og rapporterar hérna. Er forvitinn um hver kennir.

Nr. 14 | AlanHudson | 14.05.2003 | 22:19:01 | [+] |

Huh, djö, þú verður að fara og sjá kallinn hafirðu ekki gert það nú þegar. Guit-steelið hans er worth the money. Kannski maður ætti að herða sig við drykkjuna til að komast til Santa Fe á kostnað tryggingarinnar. Ertu með númerið?

Ps, hvað sló þig út í 12 ár? Moonshine?

Nr. 15 | AlanHudson | 14.05.2003 | 22:22:48 | [+] |

Alan: Robbie Dhu og blæðandi magasár. Hvernig stálgítar er þetta, eitthvað í líkingu við Keb Mo?

Nr. 16 | Tony Clifton | 14.05.2003 | 22:31:52 | [+] |

Organisti: aldrei í Mannlíf. Kæri mig ekki um slík blöð. Lókúmslitteratúr sem er best geymdur í á tannlækna- og hársnyrtistofum. Er wannabe á allan hátt í ritun og hugsun.....kemmst ekki með tærnar þar sem þegar hefur fennt í spor Loka!

Nr. 17 | Tony Clifton | 14.05.2003 | 22:35:22 | [+] |

Þetta er sambyggður gítar og stálgítar. Ótrúlegt að sjá kallinn spila á þetta.


"There's usually a wide-eyed look accompanying one who witnesses Junior's unique instrumental prowess for the first time... or the second, or third, for that matter. Junior invented his own guitar, one that combines the standard 6-string guitar and the steel guitar. He calls it the "guit-steel."

"I was playing both the steel and guitar, switching back and forth a lot while I sang, and it was kind of awkward. But then I had this dream where they just kind of melted together. When I woke up, I thought 'You know, that thing would work!' They made double-neck guitars and double-neck steels, so why not one of each?"

A call was made to guitar maker Michael Stevens, whose expertise made the dream a reality, and around 1985 the guit-steel was born. Last year Junior once again enlisted the services of Stevens to make a second guit-steel, a cherry-red axe affectionately nicknamed "Big Red." "

Nr. 18 | AlanHudson | 14.05.2003 | 22:39:41 | [+] |

juniorbrown.com

Dásamlegt band að hlusta á og fylgjast með. Þú skilur það þegar þú sérð trommuleikarann.

Spurning hvort anna.is hefur ekki eitthvað með kappanum sem lag vikunnar? Highway Patrol eða Surf Medley. Nú eða Guitar Man. Hvað segirðu um það anna.is? Hlýtur að vera á Gnutella.

Nr. 19 | AlanHudson | 14.05.2003 | 22:58:23 | [+] |

Sjá trommuleikarann?

Yfirleitt eru þeir bestu ekki mikið fyrir augað.

Sá eitt sinn gigg með T-Model Ford (blús). Eldgamall....afróameríkani. Kynnirinn hélt því fram að hann hefði verið ólæs og þurft fylgd í fluginu. Og ekki var það að heyra á söngnum að karlinn væri tenntur. En mikið djöfulli spilaði hann vel á gítar, hátt á áttræðisaldrinum.

Nr. 20 | Tony Clifton | 14.05.2003 | 23:02:19 | [+] |

Já, þetta er afgamall náungi frá Nýju Mexikó. Segi ekki meir.

Nr. 21 | AlanHudson | 14.05.2003 | 23:04:52 | [+] |

Organistinn hlustaði hér áður fyrr dálítið á Reverend Horton Heath. Alan og TC, kannist þið við þá?

Nr. 22 | Organistinn | 14.05.2003 | 23:05:34 | [+] |

Organisti: segir mér eitthvað, held ég hafi séð þá, etv. ef þeir hafa spilað í Ace Ventura undir eigin nafni og sem hljómsveit í myndinni (eru á sándtrakkinu).

Nr. 23 | Tony Clifton | 14.05.2003 | 23:13:59 | [+] |

Get ekki sagt það. Hann gaf út "Spend a Night in the Box", er það rétt munað? Reyni yfirleitt að halda mig frá þeim sem kenna sig við guðspjöllin þó mig minni nú að textarnir séu alveg lausir við Guðspeki, þetta var eitthvað hórerí.

Nóg að hafa baptistana, og þessa andsk. Born Again Christians.

Nr. 24 | AlanHudson | 14.05.2003 | 23:16:24 | [+] |

Þetta er rockabilli. Ekkert með guðspjöllin að gera! Þeir voru ekki stórir; hafa spilað hér á nánast börum.

TC, maður kemur ekki að tómum kofanum hjá þér, en ég vissi ekki þetta með Ace Ventura soundtrackið.

Nr. 25 | Organistinn | 14.05.2003 | 23:33:00 | [+] |

Sá sem girnist Stebbafr þarf hjálp, bæði mikla og skjóta.

Alan styður þá kenningu að einhver verðandi ráðherra eða þingmaður muni girnast Stebba sem aðstoðarmann - sem styður ofanritað.

Nr. 26 | AlanHudson | 15.05.2003 | 16:22:39 | [+] |

Tóti!

Svo þú fílaðir ekki Golf GTI komandi æðandi upp að dælunni með gremjulegan Garfield í glugganum? Hvað þá þegar gardínugreiðslurnar í Timberlake stigu út úr pabbabílunum og hreyttu einhverju í ykkur? Frostlögur á rúðupissið? Hálfur líter af tvígengis í bensíntankinn?

Ætli Hudson, Organistinn, og Loki hafi verið í Versló?

Nr. 27 | Tony Clifton | 15.05.2003 | 22:56:22 | [+] |

TC: Nei, Organistinn fór ekki í Versló.

Annars, I am in no mood to talk. Konungur Tóti kallar okkur perra og Anna drottning -- og af þessu svíður mest -- segir okkur athyglissjúka homma með sigg í lófunum.

Það er erfitt fyrir tryggt og traust hirðfífl eins og Organistann að kyngja svona illilegum svífyrðingum.

Nr. 28 | Organistinn | 15.05.2003 | 23:19:46 | [+] |

Organisti: Hún hefur áreiðanlega meint að við værum loðnir um lófana, en orðið fótaskortur á lyklaborðinu.

En ég var dálítið hugsi yfir þessu með perrana.

Ég er af góðu fólki sem kýs Sjálfstæðisflokkinn og mætir oft í kirku um jól og jarðarfarir. Því á Doninn örugglega ekki við mig. Mér er hins vegar órótt að vita ekki við hverja ykkar er átt. Kannski er hintið að einn ykkar er Stebbi sjálfur? Don Tóti búinn að analýsa IP mynstrið og kortleggja hirðina ásamt helstu innherjageðsjúklingunum. Það væri þá helst TC sem kæmi til greina því hann stimplaði sig bæði seint og illa inn. Stebbi er hins vegar ekki karakterinn til að fá magasár og týna 12 árum, svo þetta er sennilega ekki rétt. Þá er það Refurinn Loki. Allt of vel máli farinn og meinhæðinn til að geta verið ungur sjálfstæðismaður. Organistinn? Varla. Þar er á ferðinni viðkvæmur fagurkeri sem ber hag hinna fögru lista fyrir brjósti, en sparkar samt alltaf í liggjandi mann ef sá liggur vel við sparki. Það lærði hann úr Gerplu. Svo, perrinn er sennilega Samhverfan. Utangarðsmaður sem hefur verið á togurum alla tíð, kaus Frjálslynda og reif kjaft við Davíð á fundinum fyrir vestan. Fékk svo Finnboga Hermanns til að senda ósköpin út óklippt.

En rétt skal vera rétt. Alan fór ekki í Versló. Alan nam þar sem áður var svefnherbergi Einars Benediktssonar. TC? Hann er Hamrahlíðartýpa.

Nr. 29 | AlanHudson | 15.05.2003 | 23:44:57 | [+] |

Djö, og þú eyddir þeim Anna?

Ja, kannski er Samhverfan ekki að vestan, hljómar eins og hún sé úr Smáíbúðahverfinu.

Nr. 30 | AlanHudson | 15.05.2003 | 23:46:39 | [+] |

Schnilld!

Nr. 31 | AlanHudson | 16.05.2003 | 2:15:35 | [+] |

Nei, aldrei í Versló. Ef Alan hefur rétt fyrir sér þá hlýt ég að hafa verið samferða TC í menntaskóla.

Nr. 32 | Organistinn | 16.05.2003 | 2:31:30 | [+] |

Ég er náttúrulega ekki viss um TC, finnst hann samt vera týpan. Hann gæti allt eins hafa verið í Fjölbraut, og þó. Who cares... Zetorinn er samt alltaf clue.

Nú er bara að skella innlegginu að ofan í handritið á anna.is. Tilvalið að láta gamalmennið með hundinn vera æðstatemplara í Íslandsdeild 'Prieuré de Sion', en samhverfuna gapuxa sem á að kála kellingunni til að komast yfir gralið (það er geymt í hornsteini Landsbókasafns). Samhverfan og fylgissveinar hennar nota badabing.is til að koma skilaboðum á milli, og því dregst Tóti inn í atburðarrásina með sínu illa skipulagða sjálfsmorði, því í ljós kemur að það átti að felast í lokun badabings (sem kemur auðvitað ekki til greina). Ökufanturinn er svo afvegaleiddur kjósandi Framsóknar. Anna.is hlýtur að vera hetja sögunnnar, trikkið er að láta hana bjarga Don Tóta á síðustu síðunni, um leið og samhverfan sekkur í Reykjavíkurtjörn, kyrfilega steypt ofan í blikkbala. Aukaleikarar geta svo komið og farið eftir atvikum og vindátt.

Mætti svo gefa út hjá Foxútgáfunni í haust undir titlinum 'Refur fer í orgelskóla'

Anyone?

Nr. 33 | AlanHudson | 16.05.2003 | 3:04:16 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff