»  off record  »  Letters from Hell
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Letters from Hell
Fimmtudagur, 08. maí 2003

Hékk eins og fífl yfir Silfri Egils fram eftir nóttu. Björn Ingi á greinilega framtíðina fyrir sér innan Framsóknarflokksins en flestir sem ég hef heyrt í í dag fannst hann yfirmáta leiðinlegur.
Sjálfur tók ég ekkert sérstaklega eftir því þar sem einhver Eyjólfur Ármannsson, lögfræðingur og fulltrúi Frjálslynda flokksins , yfirskyggði alla aðra með bjánalegri framkomu sinni. Þreytandi og barnaleg klöguskjóðutýpa, sí gargandi og gjammandi. Alveg ekta svona náungi sem var í málfundafélagi í grunnskóla, ræðuliðinu í framhaldsskóla og ákvað að fara í framboð eftir að hann komst ekki að í hússtjórn. Maður verður bara ofbeldishneigður af því að horfa á svona fólk í sjónvarpinu.

Bjarni Benediktsson, lögfræðingur og frambjóðandi Sjálfstæðisfloksins var kurteis og dannaður og mat stöðuna hárrétt og gerði mest af því að þegja. Ekki það að menn eigi að þegja þegar þeir mæta til Egils en stundum getur það verið betra en að tala. Ég myndi samt frekar vilja láta Bjarna verja mig ef ég verð kærður fyrir óspektir á almannafæri en frálslynda löffann sem yrði örugglega ákærður fyrir óspektir í hérðasdómi.

Atli Gíslason, lögfræðingur (hvaða lögfræðinga geðveiki er þetta. Satan sjálfur hafði þetta um þá að segja í Angel Heart sem er mögulega besta bíómynd ever: Don´t worry no one will mourn one less lawyer in the world. Sama gildir um Alþingi Íslendinga) og frambjóðandi VG, kom nokkuð sterkur inn sem nýr vinur litla mannsins. Hann mætti samt ganga vasklegar fram sem lögmaður Blaðamannafélagsins og ná þessum vangoldnu launum mínum út fyrir mig. Verð ekki mikið var við smælingjasamúðina þar.

Álitsgjafarnir hans Egils á kaffihúsinu voru miklu skemmtilegri en liðið
sem mætti og þusaði. Félagi EIR átti skemmtilegustu og flottustu pælinguna þegar hann varpaði ljósi á hræðsluna sem einkennir þjóðina. Glöggur mannlífsrýnir hann EIR.
Illugi hafði mikið til síns máls þegar hann kvartaði yfir of mikilli kurteisi íslenskra fjölmiðla og Siggi pönk átti kollgátuna þegar hann benti á að það skiptir engu máli hvaða flokkur kemst til valda þar sem þeir lagi sig allir að bákninu. (Framsókn er þó auðvitað alltaf verst - eins og njálgur sem hefur borað sig að kjötkötlunum eins og einn góður félagi minn orðar það alltaf.

Hallur Hallsson fór á kostum en var svo djúppældur að það var ekki nokkur leið að skilja hvað hann var að fara. Þusaði eitthvað um einhverja stórkostlega tilraun og ég hélt að hann ætlaði að fara að tala um Keikó, konur frá Venusi eða hver færði ostinn hans. En
hann er víst farinn að hafa skoðanir á öllu og var að tala um einhverja EB tilraun.

Ritstjórinn tilkynnti mér og Guðmundi Steingrímssyni það í dag að okkur bæri að kjósa Framsóknarflokkinn. Rökin eru tilfinningaleg en hann telur ljóst að okkar bíði 60 ára sálarangist ef við svíkjum feðraveldið og mennina sem komu okkur hingað. Hmmmmmmmmmmmmm... X-B? Shit maður.

Nældi mér í rauðan Che J. Sigfússon bol á hinni stórundarlegu kosningaskrifstofu VG við hliðina á Ara í Ögri. Þar voru eðalkverúlantar og nánast allur dómstóll götunnar mættur í vöflur og kaffi með Jón frá Pálmholti í broddi fylkingar. Þar var líka flottur róni í ullarsokkum sem er vonandi ekki málefnalegasti stuðningsmaður VG þar sem hann gargaði það á hörundsdökka íslenska stúlku í Bankastrætinu að Ísland væri fyrir Íslendinga og hananú!!! Óvenju illskeyttur miðað við að hann var nýbúinn í vöflukaffi með skáldinu frá Pálmholti. Vona að stelpugreyið hafi verið kanamella. Annars hefur blessaður maðurinn verið að éta vöflur frá vitlausum flokki.
En bolurinn er flottur þó Che sé einhvern veginn rómatískara íkon en
Sigfússon.

Lifi byltingin!

Já og bara svona for the record þá er Ingó líka vinur minn. Alveg pottþétt, þannig að þeir eru þá orðnir þrír vinir mínir.


| 20:44 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff