»  off record  »  long live the lizard king!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
long live the lizard king!
Mánudagur, 19. maí 2003

daffyHélt endilega að ég hefði dottiðíða á föstudaginn en eftir að hafa borið saman drykkjubækur mínar og Gúnda í dag komst ég að því að ég var að drekka á laugardaginn. Það kemur heim og saman við frásögn Jakobs af því að ég hafi verið býsna tætingslegur í vinnunni á sunnudag.
Jamms. Það var reunion hjá (fyrrverandi)starfsfólki vísis.is. Við Binni mættum með Auði sem var löngu tímabært að hitta aftur. Hól, bestastabesta vinkona mín frá mögrum vísismánuðunum var í banastuði og Ásgeir Friðgeirsson, nýbakaður varaþingmaður, splæsti á mig bjórum sem kom sér vel þar sem ég fór peningalaus út. Er að ná að mastera þetta Þórbergs Þórðarsonar eliment og tekst endalaust að láta fólk bjóða mér í glas í skiptum fyrir kjaftforan og yfirgegnilegan félagsskap minn. Ég er snjall.

Talandi um Þórberg. Það mikla séní. Þórunn Hrefna er byrjuð að blogga af miklum móð. Hún les BadaBing! vegna þess að "það er eitthvað við hann". Ég er rígmontinn af þessu enda Þórunn úberkúl kvensa sem hefur stúderað Þórberg. Það er alltaf kostur í fari kvenna, sko. Sjálf veit hún örugglega minnst um það að við lentum saman í hópvinnu í Miðaldabókmenntum hjá Helgu Kress fyrir margt löngu. Ég komst í gegnum 4 ár í án þess að kynnast kjafti þannig að ég get ekki sagt að ég þekki Þórunni en ég veit að hún er kúl.

Mér tókst ekki mikið að spjalla við gömlu vinnufélagana mína (engin stórskaði svo sem Tóti Leifs var ekki þarna og Hól get ég hitt hvenær sem er). Eiríkur Hjálmarsson reykti pípu virðulegur mjög og við rifjuðum upp þá góðu páska þegar við unnum Spurningakeppni fjölmiðlanna. Græddum Mont Blanc penna (Eiríkur er nýbúinnn að týna sínum penna en ég var að finna minn) og tvö fyrstu bindin af Blikktrommunni.

Kata Júl. kastaði kveðju á liðið. Líklega sætasti þingmaðurinn á næsta þingi.

Annars lenti ég í klónum á stelpunum sem ég tók viðtal við á Te&Kaffi á föstudaginn. Þeim lá mikið á hjarta og vildu að ég næði í ljósmyndarann minn (Billa) veit ekki hvort þær voru heitar fyrir honum en held frekar að þær hafi viljað að hann keypti handa þeim bjór. Þeim fannst ölið fáránlega dýrt hérna og tölðu um að bjórinn væri dýrari en budgetið á heimildarmyndinni um álfana sem þær voru að taka upp.
Ég þvertók fyrir að kaupa handa þeim í glas enda upptekinn við að drekka frá öðrum en fékk samt tækifæri til að slá um mig með Lorelei (benefits of a classical education) eins og ég geri alltaf þegar ég er fullur og hitti Þjóðverja.
Fékk póst frá annarri þeirra í dag (sem þýðir að þær hafa komist heilar á höldnu heim, en vélin þeirra var alveg að fara þegar ég hitti þær) þar sem hún rekur á eftir mér að senda sér heil 3 eintök af Fréttablaði dagsins:

My dear best-of journalist,

this is your German elf with the impatiently awaited, highly valuable and
precious datas:

I hope that you, as a poor artist, will be able to afford a stamp for the delivery of one (2,3,...) copies of the article you wrote on the film "Fairies and other Tales". Well, I am sure that, once I will have put this article on the filmacademy's wall of fame, your name will be spread around and cause you to finally get rich and famous.
So Katinka and me are curious and very much looking forward to getting your article in our hands.

Have a nice and sober beginning of the week and hopefully hear from you soon

Dörthe + Katinka (who I am quoting in realtime: "We had much fun with you that last evening before our departure")
(I agree)

Svo mörg voru þau orð. Ég er þreyttur, svangur, blankur, í vondu skapi og það er næstsíðasti Sópranós þátturinn í kvöld só fokk off.


| 19:05 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff