»  off record  »  Nýja lúkkið
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Nýja lúkkið
Þriðjudagur, 27. maí 2003

bing.gif

Konanmín hefur gert róttækar breytingar á BadaBing! Allar til bóta if U ask me en samt er best að staðhaldarinn fylgi þeim úr hlaði með nokkrum orðum.

Bloggið er allt orðið off record og er nú það eina sem birtist á forsíðu. Fjölmiðlapistla og Kvikmyndadóma þarf því að velja sérstaklega eða lesa í styttri útgáfum í Fréttablaðinu.
Hvað bíóumfjöllun varðar notaði ég þetta ágæta tækifæri til þess að taka upp FIMM stjörnu kerfi að hætti breskra vina minna. Fjögurra stjörnu kerfi er nefnilega morkið.
Liðurinn Aðrir er kominn aftur en hann var til staðar á fyrstu BadaBing! síðunni (þessari með kaffiblettunum). Þar fá góðir gestir að ganga lausir en so far er enginn inni nema Laugurinn sjálfur (leiðandi gítarleikari Brain Police) sem skrifaði þrusubíódóma fyrir mig á meðan ég stjórnaði kvikmyndasíðunni á Strik.is.
Undir liðnum Eldra er saman komið allt gamallt stöff, mest af Strik.is (en þar tók ég stundum góða spretti ekki síst á meðan minn góði vinur Hrafn Jökulsson hafði auga með mér), Prósakkpistlar, Hulduhersgreinar og sitt lítið af hverju.
Úrklippurnar eru enn á staðnum þó ekkert nýtt hafi bæst við þar, hvað sem síðar verður.
Eðalbloggarar hafa verið teknir út úr tenglasafninu og fluttir yfir í skjallbandalagið ásamt nokkrum nýliðum; Palla Svans, Ingó, Þórunni Hrefnu og thorworkssem ætti auðvitað að vera löngu kominn í þetta púkk.
Þá birtast nýjustu kommentin sérstaklega úti í kanti enda full ástæða til að trana þeim fram þar sem rjóminn af Innherjum Vísis.is (Organistinn, Loki, AlanHudson, Tony Clifton) eiga það til að fara á kostum á þessum slóðum.
Anna var mikið að spá í að hafa mynd í film noir stílnum í hausnum enda hét badabing.is einu sinni noir.is af ástæðum sem allir sem þekkja mig skilja. Niðurstaðan varð þó þessi eyðimerkurstemning við bensíndæluna sem á líka vel við mig og vísar beint í uppruna minn og árin 11 sem ég dældi bensíni hjá Esso á meðan ég þróaði þunglyndið, mannhatrið og drykkjusýkina.

Ég er einhverfur og vanafastur og er því enn að venjast breytingunni en hef ekki fengið neitt nema jákvæð viðbrögð við þessu og er hæstánægður með nýja lúkkið.


| 22:31 |
komment

Bláa höndin hefur kannski komist í spilið áður en hann náði að ýta á enter? Svo hefur ekkert heyrst síðan fjórða manninum var stungið inn, vonandi er það tilviljun.

Nr. 1 | AlanHudson | 27.05.2003 | 23:39:44 | [+] |

Tóti!

Luma ekki á köldum staðreyndum né samsæriskenningu. En tel mig vita nokkuð vel hvernig a) stjórnendur í tilsvarandi fyrirtæki erlendis tökkluðu þessar aðstæður, og b) hvernig fjölmiðlar myndu/ættu að ganga til verks.

Það eru mjög margir lausir endar í þessu máli. Var búinn að freima út nokkur atriði, en þar sem TC er óbilandi wannabe í þessum efnum þá fannst honum ekki viðeigandi að blanda sér í störf annarra.

Nr. 2 | Tony Clifton | 28.05.2003 | 19:51:41 | [+] |

Ekkert smá stórkostlega töff lúkk á síðunni. Að ekki sé talað um hvað búið er að raða öllu snyrtilega í skúffurnar. Kvikmyndadómar í sér skúffu, úrklippur í annarri o.s.frv.
Til hamingju með nýja lúkkið og fjölhæfa konu!

Nr. 3 | Harpa | 29.05.2003 | 10:19:34 | [+] |

Jamm gott fólk. Það er ljóta þarna fyrir norðan á Raufarhöfn. Ætli sólmyrkvinn sé himnasending?

Nr. 4 | AlanHudson | 29.05.2003 | 23:50:38 | [+] |

Já, Hudson, nú liggur skúbbið marflatt fyrir framan oddhvassar táneglur blaðamannastéttarinnar og hrópar "taktu mig".
Raufarhöfn er grátlegt dæmi um hörku framsýni framsóknarflokksins OG litla framsóknarflokksins. Nóg er til af skýrslum og steitments sem hægt væri að pakka saman í góðan hárbolta og reka öfugan ofan í ráðamenn.

Þorir því einvher?

Helgi Hjörvar hafði á réttu að standa; Allt að drepast úr leti. Þvær hendur sínar hreinar og setur nefnd í málið. Um að gera að bora hausnum eins langt inn í fjóshauginn áður en skynsemin kikkar inn.

Comrades - let´s watch Captain Kangaroo! (dreymdi organistann fræsa í gegnum Hlíðarnar á choppernum hans Zed).

Tóti: hafa tittir enga þekkingu á dunk dunk hljóðum í bílum?

Loki: Dreymdi moskann þinn í nótt. Númeraplatan að aftan er laus sökum þess hve oft þú tekur á hann bensín. Áttu ekki Volgu skilið?

Anna: heimasíðan verður kúlli með hverju klikkinu. Er þetta eitthvað sem þú tekur að þér að gera fyrir þá sem eiga tylft léna og góða biz hugmynd?

Bugger off...........

tc

Nr. 5 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 0:19:07 | [+] |

Raufarhafnardæmið var fyrirsjáanlegt þó menn vissu ekki endilega að Raufarhöfn yrði fyrst. En fólk fær það sem það kýs.

Hvaða pláss haldiði að verði næst? Stöðvarfjörður? Þórshöfn? Flateyri?

Vill einhver veðja?

Nr. 6 | AlanHudson | 30.05.2003 | 1:11:42 | [+] |

Bráðum kemur betri tíð, og bý ég þá í Stigahlíð... TC alltaf reiðubúinn í baráttuna að morgni. Eitt einkenni TC eru næsta púrítönsk viðhorf í áfengis-og siðgæðismálum, svo ekki svo ekki sé minnst á pólitík. Viðhorf hann tamdi sér ungur á heimavistinni á fræðslustofnun Framsóknarflokksins á Bifröst. Því miður höfum við allir ekki orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að hljóta slíkt uppeldi, og förum okkur því stundum að voða í þeim efnum. Og þar sem við reikum um, hálfblindir eins og Helgi Hjörvar, birtist okkur þessi enfant terrible íslenskra stjórnmálamanna. Maðurinn sem eitt sinn bjö í óuuphituðum bragga, reykti karton af Camel og drakk þrjá lítra af kaffi á dag, meðan hann aleinn byggði lýðveldið með berum höndunum einum....

Nr. 7 | Refurinn Loki | 30.05.2003 | 5:34:39 | [+] |

Afskaplega er Tóti hljóðlátur þessa dagana. Steig kannski upp til himna í gær? Mér skilst að það sé ákaflega huggulegt þarna. Hvernig var þetta aftur í gömlu vísunni, "... nú skal til ærlegrar veislu tjaldað og veitt, kláravín, feiti og mergur með!"

Nr. 8 | Refurinn Loki | 30.05.2003 | 13:31:56 | [+] |

Anna: kemur í hægagangi þegar kappinn er orðinn heitur, frekar óreglulegt (sennilega ekki stimplar, legur eða ventlar). Flestir veðja á tímahjólið (já, þá getið þið reiknað út hve gamall bíllinn er!). --hvað heldur þú sjálf?

Hmmm, peningar segir þú. No indecent proposals from TC!

Loki: Þú sem tuktar alla til visku og manndóms, gætir breytt framsóknarmanni í vín, átt Volgu skilið. Svarta, með hjólkoppum.

Sammála því að Tóti sé of hljóðlátur þessa dagana, sérstaklega miðað við rólegan fréttaflutning af símamálinu og Raufarhöfn.

Held annars að soft porn sé lausn á vanda Íslendinga. Þessi geiri kvikmyndaiðnaðarins á eftir að ná sér verulega á strik á komandi árum. Hef heyrt utan af mér að Loki liggi með nokkur handrit í handraðanum, m.a. "Álfabikarinn og ég" og "Lay D. Finger".

Nr. 9 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 14:49:58 | [+] |

hvar átti það nú að vera...

Nr. 10 | thors | 30.05.2003 | 16:01:31 | [+] |

Aha - og hvaða módel hefur anna.is í huga? Refurinn Loki tæki sig vel út á loðfeldinum fyrir framan arineldinn. Eggjandi augnaráðið myndi bræða hvaða hjarta sem væri.

Nr. 11 | AlanHudson | 30.05.2003 | 16:19:09 | [+] |

Anna: þetta er skuggalegt. Loki hefur rétt fyrir sér, við erum ekkert annað en póstmódernísk útgáfa af 68 kynslóðinni sem sækir sér identity og frama í kvikmyndaheiminum.


Thors: Útskýrðu málið, kallinn! Erfiður föstudagur í vinnunni?

Nr. 12 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 16:33:47 | [+] |

Anna: að hvaða leyti erum við frábrugðin 68 kynslóðinni?

Hudson: hvur andskotinn gerðist með sjálfskiptinguna þína, gleymdirðu að láta flössa hana? Kaupi sjálfur aldrei Ford aftur, hef átt tvo og tel það vera OD.

Nr. 13 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 17:07:35 | [+] |

I can't feel anything but gratitude for every single moment of my stupid little life.

Nr. 14 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 20:05:39 | [+] |

I live in Notting Hill; you live in Beverly Hills. Everyone in the world knows who you are; my mother has troubles remembering my name.

Nr. 15 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 20:29:42 | [+] |

Djö sjálfskiptingin. 'Service engine soon' ljósið kviknaði úti í eyðimörkinni þegar ég var á leið frá Vegas eftir að við höfðum kvaðst (djöfull var átfittið flott sem þú varst í þarna um kvöldið!). Ég ákvað að láta servisa þetta strax og ég kæmi heim. Hafði ekki glóru um að í þessu tilviki þýddi 'soon' 'now'. Eftir svona 200mílna akstur þá hætti hann að skipta, fór í neutral og stoppaði ákaflega skömmu síðar. Það er samt mesta furða hvað þungir bílar komast langt þegar maður skellir í N á 75mph, nægir til að strauja bæði skröltorma og gamalt fólk ef það er tiltækt. Hringdi á krana og keðjureykjandi kallinn dró mig á eitthvað verkstæði. Þar kom í ljós að skiptingin lak bigtime, enginn djús á henni. Fylltum og ég var látinn keyra, allt virtist í lagi, meira að segja hægt að reykspóla. So, ég keyrði á O'Reilly og keypti ársbirgðir af skiptivökva og fyllti upp á 40mílna fresti.
Þegar heim var komið þá lét ég kíkja á þetta. $5 pakkning milli vélar og skiptingar lak, skiptingin var í lagi en torkconverterinn ónýtur. So, $300 í varahluti og $700 í vinnu. Djöfull líður manni vel að láta rippa sig svona off. Maður sér gullið í geiflunum á þessu liði þegar kortinu er sveiflað yfir - og því síðan hafnað...

Anna - ég veit ekki hvað þú ert að tala um, mér fannst þetta bara svo góð lýsing á refnum, held að hann dreymi um að liggja fyrir framan arineldi í ellinni. Það er sérstaklega gott fyrir gigtina. Annars hefur jazzsveitin 'Láttuekkieinsoðúsértekkiðanna' gefið út glimrandi 'Refavísur' á plötu. Það er tónlist fyrir refi.

Nr. 16 | AlanHudson | 30.05.2003 | 21:03:17 | [+] |

Hudson:

Hef brætt 1200 dollara í bremsur á Eddie Bauer sem ég átti, áttagata með húðlitaðan topp og krómaða stuðara. Var á leið í ferðalag með Cliftonana og að sjálfsögðu var öllum kortum hafnað eftir viðgerðina. Nema því íslenska! Enginn trygginarvíxill að flækja málin. Láttu þá skanna það off-line ef þeir geta, það hjálpar.

Er steinhættur að kaupa bíla frá 90's.

Nr. 17 | Tony Clifton | 30.05.2003 | 21:25:13 | [+] |

Well, they don't make them as they used to... Komst að því að vatnskassinn í kerrunni er úr plasti. Eftir þá uppgötvun er gripurinn til sölu.

Vantar einhvern Ford? Hann er hvítur en að öðru leyti í góðu standi.

Nr. 18 | AlanHudson | 30.05.2003 | 21:44:53 | [+] |

AÐVÖRUN!

Ég vil vara alla sem lesa þessa síðu við lúðrablæstri umboðsmannsins TC, eins og hann titlar sig þessa dagana Margir íslenskir tónlistarmenn hafa farið flatt á því að trúa loforðum þessa útgáfukalls um frægð og frama. Allir muna hvernig fór fyrir Rannveigu & Krumma, Glámi & Skrámi, Change og Emilíönu Torrini sem öll voru á barmi heimsfrægðar að sögn TC en aldrei gerðist neitt.

Alan Hudson gerði til dæmis stóran útgáfusamning sem aldrei varð neitt úr og eyðilagði það fyrir honum búktalaraferilinn, sem hann var búinn að byggja upp hér heima. Að Alan hafi nú loksins sökksess með dansandi rækjurnar sínar í Halifax, er síst TC að þakka.

Góðar stundir!

Nr. 19 | Refurinn Loki | 30.05.2003 | 21:59:38 | [+] |

Rækjurnar voru mín hugmynd. TC vildi að ég æfði atriði með fimleikaflóm. Eftir að hafa þolað þær í vær vikur, allur útbitinn svo þykkasti maskari dugði ekki til að hylja ósköpin, þá hætti ég og fór.

Núna er ég með sömu skrifstofu og Liberace. Ég fæ engin gigg, en þeir eru búnir að lofa mér kvöldverði með goðinu í næstu viku. Ég get ekki beðið!

Nr. 20 | AlanHudson | 30.05.2003 | 22:13:43 | [+] |

Tóti minn
Blogga meira. Ég bíð og bíð

Þinn venur
ingó

Nr. 21 | ingó | 31.05.2003 | 1:06:25 | [+] |

Gott blogg er eins og gott vín. Tekur tíma að verða til, og heppnast ekki alltaf.

Taktu bara þinn tíma Tóti... þetta er spurning um gæði, ekki magn. Nefni engin nöfn í sambandi við hið síðara.

Nr. 22 | AlanHudson | 31.05.2003 | 1:23:30 | [+] |

Badabing lýsir eftir Þórarinn Þórarinssyni.

Þórarinn er á óljósum aldri, um 82 cm á hæð án gervifótana. Með yfirgreitt rautt hár og íturvaxinn mjög. Þórarinn fer allra sinna ferða í rafknúnum hjólastól. Hann er bæði sjón- og heyrnarskertur og var síðast þegar hann sást í köflöttum brúnum jakka, skærgrænum stuttbuxum og vínrauðum lakkskóm. Hann var klyfjaður plastpokum merktum ÁTVR.

Ekkert hefur heyrst til Þórarins í tæpa 3 sólarhringa. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um ferðir Þórarins síðustu sólarhringana eru beðnir um að hafa samband við samtökin Vímulaus æska.

Nr. 23 | Refurinn Loki | 1.06.2003 | 6:22:56 | [+] |

Loki!

Við skulum ekki hafa áhyggjur af innihaldi plastpokans. Mig grunar að hann hafi fallið í sömu gryfju og kollegi þinn Graddy Tripp barðist við um hríð, allt þar til hann varð ástfanginn af ungum nemenda sínum og hætti að fíra jónur á einmanna fimmtudagskvöldum.

Ég bind miklar vonir við sokkakaup föstudagsins; að Anna hafi líka keypt eitt par handa Tóta svo hann geti nú farið að líta dagsins ljós aftur. Það er ekki hægt að ætla neinum það að ganga um berrassaður á tánum í jesússandölum í allt sumar. Alternativt gætum við mætt í vesturbæinn og málað húsið, það er ótækt að hann þurfi að dreifa rökum sokkum um allt húsið til þess eins að rykbinda kofann.

Hleypið manninum út!

Þið ættuð annars að senda hann hingað út til mín; allt vaðandi í skutlum í hvítum gagnsæum hörbuxum með bera nafla, hvurs G-strengir kalla "hæ hó, hér er ég". Þær ku falla fyrir velfóðruðum pennum, Loki, note that!

Nr. 24 | Tony Clifton | 1.06.2003 | 8:06:35 | [+] |

"mætt ...og málað húsið." Jæja, tc karlinn bara orðinn mannlegur á efri árum. Svona eins og Charles Manson.

Refinn svíður enn í feldinn eftir edikið sem tc skvetti á hann í den. Eftir að tc hafði fyrst keyrt yfir hann á Zetornum. Með gaddakeðjum. Fyrir það eitt að hafað sofnað yfir fyrirlestri organistans um ástand rjúpunnar.

Nr. 25 | Refurinn Loki | 1.06.2003 | 10:15:08 | [+] |

Ein er upp til fjalla,
yli húsa fjær,
út um hamra hjalla,
hvít með loðnar tær,
brýst í bjargarleysi,
ber því hyggju gljúpa,
á sér ekkert hreysi ...

Engin ástæða til þess að troða rjúpunni um tær!

Og edik! -- þú ferð ekki fögrum orðum um landann sem ég henti í þig hér um den. Get ekkert gert af því þótt sekkurinn hafi lekið svolítið.

Sá annars mynd af Loka um daginn. Vafinn um hálsinn á fínni hefðafrú í Reykjavík sem var á charity samkomu í Íslensku Óperunni. Hann var ekki eins dauður og menn vildu halda. Hann glotti. Var orðinn innsti koppur í sósæitíinu. Var að ná sér í innblástur.

Nr. 26 | Tony Clifton | 1.06.2003 | 10:48:42 | [+] |

Anna var að blogga með eftirsjá um eldabuskur í leikskólum sem spáðu í bolla í kaffitímum. Það er því eins gott að Anna-punktur-is átti sig á að bloggin eru kaffitaumar nútímans og spákerlingarnar heita nöfnum eins og Alan Hudson, Organistinn, Refurinn Loki og Tony Clifton. Sérlega Refurinn Loki, hann er mesta kerlingin af okkur.

Sammála TC og Loka, að Tóti er kominn í mid-life kræsis. Verst hvað þetta er sorglegt rétt eftir að Anna-punktur-is hefur setið við tölvuna dag og nótt í eina viku til að búa til flottustu bloggsíðu klakans. Slíkt er meiriháttar ástarjátning. Samsvarar því að prjóna peysu, vettlinga og trefil á sinn heitelskaða, allt í stíl með munstri. En Tóti getur samt ekkert gert nema spá í brennivín og annað kvenfólk.

Organistinn getur þó glatt Önnu á því að þessi augnagot hins íslenska Soprano í aðrar áttir eru fádæma klaufaleg:

“Var það eitthvað fleira? Já, bara for the record I´ve still got it. Þrjár (ein með hvítan koll - mér leiðast nýstúdentar á fylliríum niðri í bæ) huggulegar (beinlínis sætar) og sauðdrukknar stúlkur gáfu sig á tal við mig á leiðinni út í bíl og vildu draga mig á Felix. Ég var með Billa í símanum sem fékk að fylgjast með fádæma orðsnilli gamla flagarans í beinni. Ég fór heim en egóið var ekki dældað að þessu sinni.”

Það er hægt að sjá aðra og betri lýsingu á þessu á vefnum -- á bloggsíðu sem er kölluð Pæjublogg:

“Ég, Gunna Sig og Sigga Magg fórum á Ske tónleikana á Grandaranum. Geggjað fjör. Ætluðum svo að fara á Felix, en áttum ekki fyrir taxa. Reyndum að plata einhvern kall af Fréttablaðinu til að koma með okkur til að borga bílinn, en það gekk ekki svo við löbbuðum bara. Tókst sem betur fer að losa okkur við sköllótta kallinn… say no more!”

En þetta er dálítið alvarlegra með snjalla bókmenntabloggarann, hana Þórunni Hrefnu. Aumingja Tóti, intróvertinn, horfði löngunaraugum á Þórunni í fjögur ár í HÍ og gat aldrei talað í sig nægan kjark til að kynna sig eða reyna við hana:

“Sjálf veit hún örugglega minnst um það að við lentum saman í hópvinnu í Miðaldabókmenntum hjá Helgu Kress fyrir margt löngu. Ég komst í gegnum 4 ár í HÍ án þess að kynnast kjafti þannig að ég get ekki sagt að ég þekki Þórunni en ég veit að hún er kúl.”

En nú, í skjóli bloggsins, hefur hetjan Tóti Soprano skyndilega öðlast hugrekki, og ástarjátningarnar brjótast fram eins og stórfljót:

“Talandi um Þórberg. Það mikla séní. Þórunn Hrefna er byrjuð að blogga af miklum móð. Hún les BadaBing! vegna þess að "það er eitthvað við hann". Ég er rígmontinn af þessu enda Þórunn úberkúl kvensa sem hefur stúderað Þórberg. Það er alltaf kostur í fari kvenna, sko.”

Og Þórunn Hrefna gefur undir fótinn:

“Margir hafa sagt fallega hluti um mitt nýstofnaða blogg og eitt orð stendur uppúr: Úberkúl.”

Þá kemur enn einn ástríðufossinn frá Tóta:

“Palli Svans er hugrakkur maður og mætti með Þórunni Hrefnu. Það var sniðugt. Hún er flott. Má til með að hitta hana aftur. Veit meira að segja að ég get sparað mér að leita að henni á 22.”

En ætli hinum seinheppna Tóta sé ekki líka að yfirsjást eitthvað hérna. Þórunn er ekki bara femínisti; hún er femínisti sem nýtur þess að umgangast aðra femínista:

“Var á Verufundi í kvöld og sem fyrr jafnaðist hann á við svaðalegt djamm. Það er svo óhuggulega skemmtilegt að tala við fólk sem skilur mann. Við ræddum um aðalefni næsta blaðs og auðvitað er það leyndarmál en mjög spennandi. Sem betur fer er ritnefndin skipuð ákaflega meðvituðum, klárum og skemmtilegum konum.”

Organistanum er því ljóst að ef Tóti litli Soprano, giftur maðurinn, reynir eitthvað við femínistann, þá mun Þórunn Hrefna bíta af honum typpið. Tóti öskrandi úr sársauka með smá skeinu að neðan. Þórunn Hrefna með litla kokteilpylsu í munninum, útötuð “tómatsósu”. Fyrirsögn EIR í fréttablaðinu yrði væntanlega:

FEMÍNISTI BÍTUR GETNAÐARLIM AF KARLMANNI – KYNGIR EKKI.

Loki, passaðu þig, Ken er á leiðinni yfir þig.

Nr. 27 | organistinn | 1.06.2003 | 10:50:38 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff