»  off record  »  Ömurleg þjóð
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ömurleg þjóð
Sunnudagur, 11. maí 2003

Sverrir Stormsker draugfylllti rithöfundinn Sigurð A. Magnússon einu sinni í útvarpsviðtali fyrir stöð sem er örugglega farin á hausinn eða búin að skipta um nafn - Steríó, kannski?
Nóg um það Sigurður argaðist út í Davíð Oddsson, frjálshyggjuna og Hannes Hólmstein og hrópaði reglulega upp yfir sig MAMMA MÍA! Hann rakti langvarandi stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins til þess eins að íslenska þjóðin sé ömurleg og eigi það skilið sem hún kýs yfir sig. Það sannaðist eina ferðina enn í nótt að hin íslenska þjóð er ömurleg og á það vissulega skilið sem hún kýs yfir sig þó ýmis þroskamerki hafi komið í ljós. MAMMA MÍA!

Jónas Kristjánsson er með þetta allt á hreinu:
Ekkert gerðist í alþingiskosningunum í gær.Allt verður eins og áður var. Flestir bjöllusauðir skiluðu sér heim á stekk. Niðurstöður kosninganna voru í fyrsta lagi, að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði, en ríkisstjórn hans hélt velli, og í öðru lagi að Samfylkingin vann, en náði ekki að velta ríkisstjórninni. Flestir fengu eitthvað út úr kosningunum, en ekki það, sem þeir vildu helzt. Stjórnarflokkarnir halda áfram samstarfinu og munu stjórna með svipuðum hætti og verið hefur. Kjósendur fá þá ríkisstjórn, sem þeir eiga skilið.


Önnu fannst að Páll Magnússon, gamall skólafélagi okkar hefði átt að komast á þing. Hann er hins vegar úti og mér finnst það gott. Hefur ekkert með hann persónulega að gera en framsóknarmenn eiga ekkert erindi inn á Alþingi Íslendinga.


| 14:37 |
komment

Dude, you're getting a profit!

Búinn að pússa spákúluna, miljónir bíða Tóta. Besti skortari landsins er jú þekktur skákmaður (MP), svo hæg ættu heimatökin að vera.

Nr. 1 | Refurinn Loki | 11.05.2003 | 16:34:46 | [+] |

Kjósendur eru orðnir að neytendum.

Geta ekki tekið afstöðu. Láta auglýsingar hugsa fyrir sig. Og eru til sölu fyrir áherslupenna merkta X-B, klapp á öxlina, og innihaldslaus loforð.

Lífið er tík!

tc

Nr. 2 | Tony Clifton | 11.05.2003 | 16:49:54 | [+] |

TC!

Við veljum og höfnum. Svo einfalt er það. BigBrother Davíð eða BigSister Sólrún. Herra Reykjavík eða Jakob Frímann. Sinalco eða Bud.

Við kjósum ekki af því að lífssafkoma okkar veltur á því. Auglýsingastofan benti bara Halldóri Ásgrímssyni á, að kosningar eru bara eins og hver önnur vara. Neysluvenjur og atkvæði fylgja sama munstrinu. Seldi svo ímyndina af Framsókn sem sígildu mainstream.

Á Íslandi reyndi maður einhvern tíma að setja fólk í bás eftir stéttarstöðu og menntun. Atli Heimir var einhvern veginn aldrei hott hjá Dagsbrún. Eða Sinfónían og golf. Nei, verkamenn áttu að keyra á bíl frá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum, fara í sólina við Svartahafið og drekka Hvannrót. Einhvern tíma sagði veralýðshreyfingin að allir hefðu hlutverki að gegna í samfélaginu. Í dag er nóg að vera bara maður sjálfur og skapa sinn eiginn tilgang. Það er næstum það eina sem við getum líklega verið sammála um. Svo stéttarvitundin er horfinn, þó Keops vinur okkar reyni enn að ríghalda í hana. Stjórnmálaflokkar geta ekki lengur sagt fólki hvað það eigi að gera eða hugsa (stebbi vinur okkar er að vísu undantekningin sem sannar regluna).

Nr. 3 | Refurinn Loki | 11.05.2003 | 18:43:08 | [+] |

Loki!

Það er ekki lengur í höndum okkar að velja og hafna. Það er gert fyrir okkur.

Flugfreyjurnar báðu um sokkabuxur - en aldrei húðlitaðar.

Við kaupum Cosmo sem segir okkur með reglulegu millibili hvernig við eigum að líta út og hvað sé gott kynlíf. Við förum hjá okkur þegar hársnyrtirinn hnikkir mjöðmunum og hælir hárinu okkar. Verst, hann á kærasta. Við getum ekki skipt um lit á eldhúsinu án þess að ráða til þess arkitekt.

Við erum hrædd við manndómsálitið; getum réttlætt mistökin ef aðrir hafa lagt á ráðin fyrir okkur.

"Ég hugsa, því er ég kjósandi" er skipt út með "mig langar, því er ég neytandi".

101-Marketing og Framsóknarmenn eru sjálfskipaðar þjóðhetjur fyrir það að hafa ekki verið teknar af pólitísku lífi. Veitum þeim markaðsverðlaun.

Nr. 4 | Tony Clifton | 11.05.2003 | 19:22:33 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff