»  off record  »  Shit maður...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Shit maður...
Fimmtudagur, 01. maí 2003

bara allir að lesa Fréttablaðið. Spurning um að fara að vanda sig í vinnunni. Það var haldið upp á sigurinn á Mogganum með stæl á Einari Ben. í gær. Guðmundur sló eina ferðina enn í gegn með nikkunni, sem hann er að fara með á Hróarskeldu, og spilaði m.a. Lick it up fyrir Moggann. Það var fallegt.
Eigendur Fréttablaðsins ætla víst að stíga fram í dagsljósið á þessum tímamótum. Sé ekki ástæðu til þess að upplýsa það hér hverjir þeir eru enda vita það allir. Annars hefur það sýnt sig að það er alveg hægt að gefa út blað með eigendur í skápnum, enda hefur eignarhaldið ekkert með fréttaflutninginn að gera eins og sjálfur Björn Bjarnason bendir réttilega á:

Í stjórnmálaumræðum í áratugi hefur aldrei verið sótt að mér vegna fyrirsagnar á frétt í Morgunblaðinu með vísan til þess, að ég eigi hlut í Árvakri hf., sem gefur út blaðið. Á að skilja þetta á þann veg, að borgarstjóri telji hluthafa blaðsins ákveða fyrirsagnir þess? Hvaða álit hefur hann á ritstjórnarlegu sjálfstæði innan Morgunblaðsins? Borgarstjóri virðist telja sig hafa stöðu til að segja okkur borgarfulltrúum fyrir verkum og til að vanda um við okkur, ef við tölum ekki eins og honum líkar. Allt er þetta mikill misskilningur og virðingarleysi við störf og umboð kjörinna fulltrúa eins og ummæli hans um Morgunblaðið eru óvirðing við ritstjórn þess.

Gott að vita þetta.

Frétti það á Einari Ben. að 15 manns, ég endurtek 15 manns, lesi BadaBing! reglulega. Þetta er gríðarleg aukning frá síðustu óformlegu könnun en þá lásu aðeins þrír vefinn einu sinni í viku eða oftar, þeir AlanHudson, Organistinn og RefurinnLoki. Þessi tíðindi eru okkur mikil hvatning til að gera betur og vegna fjölda áskoranna (1) ætlum við að endurtaka grunnskólanám okkar í íslensku til að misbjóða lesendum ekki frekar með óþarfa beygingar- og stafsetningarvillum.

Eitthvað bögg var að sjálfsögðu í gangi en það er ástæðulaust að fara út í það hér en mafíósinn Þórir Steingrímsson ætti þó að hafa hægt um sig ef hann verður á vegi okkar Billa ljósmyndara á næstunni. Skondnir menn sem rífa kjaft og hafa í hótunum og láta mann svo fá nafnspjaldið sitt.


| 11:14 |
komment

Varla er verið að setja útá íslensku Tóta sem er impeccable?

Íslenska Organistans er önnur saga. Hann neitar þó algerlega frekari menntun. Organistinn tekur líka undir með Refinum sem sagðist vera jafn sama íslenskt málfar og skítinn undir iljunum. Íslenska yfirstéttin og menntaelítan hafa löngum notað athugasemdir um málfar og stafsetningu til að kúga og halda niðri ómenntuðum öreigum eins og Organistanum.

Ef stafsetningar- og málvillur eru vandamál fyrir Badabing þá má alltaf breyta yfir í ensku. Það er ekki ólíklegt að allir 15 lesendur þínir séu íslenskir útlagar.

Ertu búinn að sjá nýjustu snilldina um blogg og annað á Múrnum. Sé ekki betur en að þessu sé beint m.a. að blaðamönnum Fbl.

Nr. 1 | Organistinn | 1.05.2003 | 20:51:04 | [+] |

Þú ert nú ekki svo slappur. Ég þarf auðvitað ekki að taka það fram að það sveið ekki undan þessari drukknu og órökstuddu gagnrýni. Best af öllu var svo vitaskuld að dyggur lesandi bbing blandaði sér í málið og þvertók fyrir þessa þvælu.

Ekki var ég búinn að sjá þennan bloggbarlóm í Sverri Jakobssyni en er búinn að því núna. Eitthvað af þessu er greinilega beint gegn blaðamönnum og ekkert nema gott um það að segja. Verra þykir mér að sjá að hann er orðinn svo þjakaður af fyrirtíðarspennu að hann er byrjaður að veitast að hinum heimskunna bloggara og félaga sínum Stefáni Pálssyni. Skil annars ekkert hvað hann er að amast við þessu smáefni í blöðunum. Þetta gerir engum mein og einhverjir hafa víst gaman að því að lesa þetta. Þessi stöðuga aukning á lestri Fréttablaðsins væri til dæmis ekki staðreynd ef það væri skrifað fyrir þennan annars ágæta mann sem er svo mjúkur undir hörðum kommakjarnanum að hann fílar Eternal Flame. Fallegt.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 1.05.2003 | 21:07:08 | [+] |

Sýnist SJ mest veitast að ákveðnum þætti bloggs þarna, sem hann svo gefur sína persónulegu skoðun á. Þegar hann byrjaði á "Nú er vinur minn fallinn í þá gryfju..." fór ég í Armanifötin og þurrkaði rykið af BB plakatinu mínu á veggnum.

Annars hlýtur bloggið og blöðin að renna meir saman í framtíðinni en í dag. Það er ákveðinn kraftur og útbreiðsla í blogginu, sem fjölmiðlarnir gætu haft hagnað af að nýta sér. Á þessum síðum er oft að finna fróðleik, afþreyingu og oftast nær ferskari umfjöllun en í misgömlum fréttum blaðanna.

Nr. 3 | Refurinn Loki | 1.05.2003 | 21:40:03 | [+] |

15 mann ma'r! Þetta er exponentíalt, þú verður kominn frammúr mogganum (og Fréttablaðinu) um næstu mánaðarmót.

Mér finnst organistinn og refurinn tala óvarlega um málfar. Það er ekkert eins hvimleitt þegar maður er að lesa frjóann texta og þegar höfundurinn rennur til á yfsilónreglum, nn og öðru góðgæti sem var barið inn í hausinn á manni í árdaga. Það er eins og éta pylsu með köldu rauðkáli norpandi á Ráðhústorginu, vonandi að Amaró fari nú að opna aftur. Don Tóti kann hins vegar bæði yfsilónreglurnar, stíllinn er flottur og hugmyndaflugið fyrirtak. Þess vegna er BadaBing á uppleið. Markið er 30 nýir lesendur fyrir helgi!

Merkilegt annars hvað máltilfinningin daprast hratt hjá fólki þegar Íslenskan verður tungumál #2.

Nr. 4 | AlanHudson | 1.05.2003 | 22:01:38 | [+] |

Við nánari íhugun þá eru þessir 15 sennilega gróft ofmat og því enginn sjéns að skáka Mogganum eða Fréttablaðinu. Sorrý. Svona hleypur ímyndunaraflið með mann þegar búsið er búið á heimilinu. Ég held t.d. að organistinn og Refurinn Loki séu sami karakterinn, og reyndar Stebbifr líka. Allt eitt djöfullegt plott ofanúr Valhöll til að "rugla og afmennta þjóðina"!*

*Þekktur fyrrverandi þingmaður sagði. Hver er maðurinn?
Í fyrstu verðlaun er sigling um vötnin miklu með Portland sement og þvottabala í lestinni. Önnur verðlaun eru sjúss á Kaffibarnum handa Don Tóta.

Nr. 5 | AlanHudson | 1.05.2003 | 22:39:18 | [+] |

Alan, starf er opið: prófarkalesari Badbing.

Þegar íslenskan er orðin #2 þá tapar maður örlítið máltilfinningunni eins og Allan segir. Ekki bara málfarinu, heldur líka að maður festist í ritmáli sem enginn talar. Þess vegna eru laugardagseftirmiðdagar á skrifstofinni einn af hápunktum vikunnar hjá Organistanum. Þá fer ég inná Ruv og hlusta á Heiðu næturvörð til að fá sinn skammt af venjulegri íslensku með skoum og öllu. Organistinn saknar venjulegrar íslensku.

Kvöldverðarsamtal á heimili Organistans:

Organistinn: Væri ekki skemmtilegt að hafa kynlíf í kvöld?
Organistafrúin: Jú, þakka þér kærlega fyrir, það væri spennandi að sleppa Letterman í kvöld og taka þess í stað þátt í kynlífi.

Nr. 6 | Organistinn | 1.05.2003 | 23:26:08 | [+] |

Svo kona organistans er til í kynlíf eftir kvöldmatinn. Þeim er misskipt mannanna gæðum. Kona AlansHudsons er hrifnust af prjónaskap á síðkvöldum.

Vísbending #2: Þingmaðurinn hvarf til annarra starfa á kjörtímabilinu.

Nr. 7 | AlanHudson | 2.05.2003 | 1:44:24 | [+] |

Comrades!

16 lesendur, ekki 15!

Biturleiki verkamannsins, baráttan við arrógant kúnna sem hreyta ónotum í kakíklæddan bensínafgreiðslumann (apropos Armani -- það hefur enginn haldið því fram að brúni og seinna mykjugræni liturinn á outfitti bíldælingsins hafi ekki örvandi áhrif á.......tja.......) framkallar aðlaðandi stíl sem erfitt er að fylgjast ekki með á vefnum. Það ornar útlaga eins og TC á góðum en alltof þurrum degi í eyðimörkinni.

Hef hinsvegar áhyggjur af því að vefurinn líði brátt undir lok. Las nýlega að Tóti sé genginn á hönd framsóknarflokksins. Hvað næst? Svartur loðinn kasmír í stað leðurjakkans? Forsíðumynd í Fréttablaðinu þar sem hann handsalar eitthvert ríkisfyrirtækið úr lúkum ráðherra? Maður réttir þeim litla puttann og........Þori að veðja að mafían hafi þegar boðið honum gláfægðan Chevrolet Monza m. samlitum stuðurum sem þeir ku geyma í þúsundatali í upphituðum hellum norður af Þorlákshöfn.

Hver á Sorpu á Íslandi?

Skál!

tc

Nr. 8 | tc | 2.05.2003 | 4:52:33 | [+] |

Djöfull vissi ég að þú værir þarna. Það fer að verða fundarfært fyrir vestan.

Þriðja vísbending. Hann aðstoðar Rauða krossinn á milli þess sem hann höndlar með bedda.

Nr. 9 | AlanHudson | 2.05.2003 | 6:08:45 | [+] |

Er þetta svona getraun? Hvað er í verðlaun? Kvöldstund með Sighvati B. þar sem hann les uppúr stefnuskrá Frjálslyndra og Vinstri manna? Kannski koma bræðurnir Jón B. og Arnór og segja kraftaverkasöguna frá Litháen. Bara best að fela búsið fyrst. Karvel var hress í kjaftinum, en Refurinn Loki hefur aldrei verið hrifinn af þessari yfirdrifnu umhyggju flokksins fyrir lítilmagnanum.

Nr. 10 | Refurinn Loki | 2.05.2003 | 9:15:22 | [+] |

Verðlaunin eru ekki af lakara taginu. Kíktu ofar. Því miður þá eru fyrstu verðlaunin nú frátekin fyrir TC.

Nr. 11 | AlanHudson | 2.05.2003 | 14:58:16 | [+] |

Alan:

Ekkert er meira sexí en þegar kona prjónar peysu fyrir mann. Jú kannski þegar þær byrja að færa manni mat. (Note to Tóti: þegar stelpan í vinnunni hættir að stela namminu og fer að færa þér nammi eða kökur, þá veistu að hún er tilbúinn.)

En segðu mér Allan, seríal nikkist, hvað ertu með mörg nikk í gangi um þessar mundir á Innherjum?

Og b.t.w. hver á JonasK nikkið? Loki?

Nr. 12 | Organistinn | 2.05.2003 | 18:12:01 | [+] |

Ja, þetta með matinn gildir eiginlega bara í tilhugalífinu og svo seinna í tengslum við extracurricular activity.

En prjónareglan gildir alltaf. Anna, þú verður að fara á námskeið! Græna peysu fyrir Tóta, takk.

Nr. 13 | Organistinn | 2.05.2003 | 18:48:15 | [+] |

Jú trefill er fínn og virkar vel sem afródísíak, en ekki jafn lengi og peysa. Organistinn var bara búinn að gleyma þessu norðlæga fyrirbæri, treflinum -- eins og íslensku stafsetningunni.

Nr. 14 | Organistinn | 2.05.2003 | 19:13:11 | [+] |

Grænn trefill. Ég átti einusinni gráa vettlinga sérhannaða fyrir örkumlaða öryrkja. Annar var þremur númerum of stór miðað við hinn, eða öfugt eftir því hvor passað. Því miður leyfir rýmið hérna á spássíunni ekki að segja þá sögu alla. Það er synd, því margt morkið yrði upplýst ef saga gráu vettlinganna kæmi upp á yfirborðið.

Það eru bara sykkópatar sem hafa tíma til að skrifa undir mörgum nikkum þarna - JonasK er andskoti líkur náunganum sem skrifar undir Hor-Finns og Kristmannsnikkinu.

Hvernig líst ykkur á njalla?

Nr. 15 | AlanHudson | 2.05.2003 | 20:07:58 | [+] |

Grænn trefill, hvað?

Er það ekki einfeldni að halda að mafían skaffi kragalausa kasmíra? Andskotans kjaftæði.

Allan: "Ég byggði mér hús við hafið, og hafið sagði ó key, hér er ég
og heiti...."

-- ertu farinn að stela sements og balahugmyndinni frá Rakarakvartettnum? Ættir að sækja fyrst um inngöngu!


Puhhhhh.................!

tc

ps. grænir treflar lengjast mest, grænir treflar endast best..........tra la la la la

Nr. 16 | tc | 2.05.2003 | 20:50:19 | [+] |

Þetta fer nú að verða soldið langsótt. Organistinn hlýtur að geta lagt saman tvo plús tvo. Annars er bara að spyrja Tóta um IP-töluna.

Góðar stundir.

Nr. 17 | Refurinn Loki | 2.05.2003 | 21:12:30 | [+] |

Huh, það er ekki hægt að sigla um vötnin eftir að ísa leysir, nema með nóg af sementi í lestinni. Balarnir tilheyra útgerðinni.

Rakarakvintettinn hefur alltaf ráðið því sem hann vill á bak við tjöldin.

"Are you with, or against us?"

Nr. 18 | AlanHudson | 2.05.2003 | 21:15:21 | [+] |

Hvað meinar þú Loki, tvo plús tvo?

Nr. 19 | Organistinn | 2.05.2003 | 21:27:21 | [+] |

Organisti, það er til að ná fram réttu IP tölunni. Hlustaðu á næsta Talnaspekiþátt á Útvarpi Sögu, og þú skilur.

Nr. 20 | AlanHudson | 2.05.2003 | 21:34:12 | [+] |

Anna: Vá, há leðurstígvél og kúrekahattur -- það er ofsalega sexí. En líka mjög amerískt. Efa það mjög að Blöndal eða Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hafi nokkurn tíma fengið slíka meðferð.

Anna og Tóti fæddust í vitlausu landi. (hvar í US varstu Au Pair?)

Allan: Hef aldrei náð því að hlusta á Útvarp Sögu. Er eitthvað vit í þessu hjá þeim? Ertu þarna sjálfur með þátt?

Nr. 21 | Organistinn | 2.05.2003 | 22:16:31 | [+] |

Manton! Þú varst nágranni Tony Clifton í US!

Lífinu þarna er mjög vel lýst í The Good Girl. Sú mynd höfðaði til mín enda hef ég farið á midnight madness sale á Retail Rodeo (aka Kmart).

Nr. 22 | Organistinn | 2.05.2003 | 23:09:39 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff