»  off record  »  Skítapakk
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Skítapakk
Fimmtudagur, 22. maí 2003

Einhver drulludeli, leyndur aðdáandi eða Daffy Duck fanatic hefur stolið precious Daffymuginu mínu af skrifborðinu mínu.
Eins og alþjóð veit hefur þessi kaffikanna fylgt mér allan blaðamannsferilinn og í gegnum svona eins og rekstrarþrot a.m.k. þriggja fjölmiðla. Það hefur að vísu bara verið pennastatíf eftir að það byrjaði að leka í vetur en ég gat ekki hugsað mér að segja skilið við það þó það héldi ekki lengur kaffi. Og nú er það farið. Ég kem til með að segja starfi mínu lausu ef bollinn skilar sér ekki aftur á borðið mitt enda vitagalið að vera blaðamaður ef maður er ekki með Daffybolla.

Til að bíta höfuðið af skömminni var X-B Framsókn með réttu áherslurnar áherslutússinu mínu stolið um leið (enda var það í bollanum). Ekki það að ég sé með eitthvert framsóknarfetish en mér fannst þetta fyndið (in a sick way) og þar fyrir utan gaf Guðmundur Steingrímsson Hermannsonar mér þetta túss sem gerir það auðvitað enn merkingarhlaðnara. Viljiði ekki bara stela Lord Byron paperweightinu mínu líka? Skítapakk.

AA náði engan veginn að læsa klónum í krúmemberinn. Fynnst alltaf jafn gaman að tala við drykkjufólk um þessi "þakka þér fyrir fundinn" faðmlög. Þetta er nú ljótu kellingarnar alltaf hreint.

Hitti Hugleik myndasöguvitring á Austurvelli í dag. Hann er enn að melta Matrix Reloaded en eins og þegar hefur komið fram er hún eitthvað boginn. Vorum sammála um að þetta sé þó bara í raun hálf mynd og ekki sé rétt að dæma hana fyrr en sagan er öll.

Prósakkið kláraðist fyrir tveimur dögum og ég hef ekki efni á meiru. Það er einn bjór eftir í ísskapnum og ég hef ekki efni á meiru. Ætlaði þessi fokking ríkisstjórn ekki að redda þessu öllu. Fuck it. Áfram með þunglyndið....


| 23:22 |
komment

Black hole sun wont... thad sest bara ekki til solar hja Tota bladamanni. Thetta er nu farid ad vera alvarlegt. Getur hirdin gert eitthvad til ad kaeta konginn?

Var thad Toti sem fagnadi sumri i Fbl med thvi ad skrifa grein um leidin i kirkjugardinum?

Nr. 1 | Organistinn | 23.05.2003 | 7:23:51 | [+] |

Tóti minn, ekki örvænta!
Ég er 99% sjúr á því að þú finnur draslið niðri í eldhúsi, ef ekki í uppþvottavélinni, þá uppi í skáp.
Kær kveðja
Ingólfur

Nr. 2 | Ingólfur | 23.05.2003 | 12:49:58 | [+] |

Rólegir!

Refurinn Loki nældi sér í koppinn, vantaði inspírasjón, og hefur nú stillt kvikindinu upp á tölvuskjáinn skrifandi nýjustu smásöguna "Næturgagn Framsóknarmanns".

Nr. 3 | Tony Clifton | 23.05.2003 | 14:08:03 | [+] |

Reyndar á ég "Lonney Tunes" bolla einhvers staðar hérna í draslinu. Með Taz, skepnu fárra orða og frjálsra athafna.

Nr. 4 | Refurinn Loki | 23.05.2003 | 15:07:40 | [+] |

Sit nú og stari inn í tómt bjórglasið (rauðvínsglas). Fékk nágranna minn óvænt í heimsókn og........SKál, það er föstudagur.

tc

Nr. 5 | Tony Clifton | 23.05.2003 | 15:32:49 | [+] |

Waht the fuck....gleymdi að skrifa skilaboðin:

Anyone?

tc

Nr. 6 | Tony Clifton | 23.05.2003 | 15:41:48 | [+] |

Stopp í vegarkanti, hitinn 45 stig, loftkælingin biluð, sjálfskiptingin farin, batteríið í símanum dapurt og tripple-ei kellingin talar helst spensku (=spænska+enska).

Og þið fárist yfir bollahvarfi?

Nr. 7 | AlanHudson | 25.05.2003 | 4:18:47 | [+] |

Hudson: og framhjá þér ekur ekki þessi litla skutla á 1967 Pontiac GTO. Býður þér far og....................

Nr. 8 | Tony Clifton | 25.05.2003 | 7:23:26 | [+] |

Er ekki VW Bjalla best fyrir svona póstmóderníska retróflippara eins og ykkur? Kannski vandræði að fá með bjórvömbina inní eitthvað annað en Lincoln Continental eða Kádiljálk? Og hvenær fáum við Eurovision Clifton Contest? La Islande, deux poëng!

Nr. 9 | Refurinn Loki | 25.05.2003 | 10:17:10 | [+] |

Varst það þú TC? Gralið er KONA?!

Nr. 10 | AlanHudson | 25.05.2003 | 14:52:31 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff