Miðvikudagur, 04. júní 2003
Góðhjartað fólk, bæði í net- og kjötheimum, hefur nokkrar áhyggjur af mér. Þórunn Hrefna sendir mér til dæmis tóninn og heimtar að ég taki mér tak. Er mikið að spá í það og fór í dag og hitti meðferðarfulltrúa á Teigum.
Okkur greindi nokkuð á um hversu háskaleg áfengisneysla mín væri. Faglegt mat hennar var í stuttu máli að Tóti þyrfti að fá geggjaða meðferð og bauð mig velkominn. Tóti tittur fær raflost o.s.frv. Ég reyndi að malda á móinn og benda henni á að blaðamenn ættu alltaf að vera fullir en það er víst ekki haldbær afsökun og ég mun því vera alki (úff, ljótt orð notum fyllibytta frekar).
fair enough! Ég fer létt með að vera edrú auk þess sem ég verð víst líka betri maður og litla Sópranós fjölskyldan mín hefur sjálfsagt fengið að líða nóg fyrir djöfulskapinn í The Lizard King sem verður eftir nokkrar vikur bara The Lion King; mjúkur, blíður, kelinn og góður.
Palli Svans er á bömmer vegna blammeringanna sem hann fékk frá Tótu sem vill koma honum aftur á geðlyf. Mér finnst hann nú bara hafa sloppið vel miðað við mína yfirhalningu en hvað um það. Geðlyf eru góð fyrir þunglynda a.m.k.
Ég hef heyrt þessa þjóðsögu um að það megi drekka ofan í Ephexor - gott ef krúmember Sils kom þessu ekki af stað.
Geðlæknirinn minn vildi nú aldrei banna mér að drekka ofan í Serólið en mælti þó heldur alls ekki með því. Mín reynsla var nú að bjór og Bacardi var OK en rauðvín var ávísun á blakkát og sturlun. Slíkt verður frekar leiðinlegt til lengdar. En rauðvín er gott.
Skil heldur ekkert í Palla að vera að barma sér yfir því að hafa enst dögum saman í samförum á meðan hann át geðlyfin. Slíkt þykir kostur where I come from.
Ég var á sínum tíma varaður við því að kynhvötin ætti það til að hverfa með lyfjunum en það kæmi sjaldnast að sök þar sem þunglyndissjúklingar væru yfirleitt ekki mikið að hugsa um kynlíf. Varð aldrei var við neitt en entist bara þessar hefðbundnu fimm mínútur.
EIR sagði mér svo frá manni sem kúkaði billijardkúlum eftir að hann byrjaði á lyfjum. Vondar aukaverkanir og í sjálfu sér ávísun á þunglyndi enda sýndist mér það nú þegar ég skoðaði listann yfir aukaverkanirnar fyrst að ef maður fengi þær allar væri maður betur settur með helvítis þunglyndið en harðlífi, kyndeyfð, ógleði, munnþurrk og kláða út um allan líkamann.
Þetta er fáránlegt líf.
Já, meðan ég man: Fyrir þá sem fá ekki Fréttablaðið er rétt að benda á nýjan fjölmiðlapistil.