Föstudagur, 13. júní 2003
Dagurinn í dag er svakalega sögulegur. Í fyrsta lagi féll Viðreisnarstjórnin þann 13. júní 1971 og Tóti blaðamaður kom í heiminn og er því 32 ára í dag. Hann er þunglyndur að vanda en það hefur ekkert með aldurinn að gera enda strákslegur mjög.
Biggi Mausari segir að það fari mér afskaplega vel að eiga afmæli á Friday the 13th svona svartklæddur og morbid eins og ég er. Annars er það ekki síður í frásögur færandi að Biggi var að koma með nýju Mausplötuna í hús og stendur sveittur við að árita fyrir ákafa vinnufélagana sem hafa fylgst spenntir með meðgöngunni í á annað ár. Til hamingju Biggs!
Var að sjá það að enginn þótti nógu góður til að hljóta Bókmenntaverðlaun Laxness þetta árið. Alveg fann ég það á mér í vor að minn tími væri kominn (samkeppnin greinilega engin) en ég klikkaði á að senda sögu/smásagnasafn inn og hence engin verðlaun í ár.
Ég er eiginlega alveg klár á því að ég hafi verið að vinna með barnaklámsmanninum á bensínstöð fyrir ca. 15 árum. Nafnið stemmir og þessi var líka lítill og stórundarlegur í útliti og háttum og hékk öllum lausum stundum í sumarbúðum og lagðist einu sinni svo lágt að klaga mig fyrir að sof a yfir mog og opna ekki stöðina á réttum tíma. Túlkaði svo yfirsvefn minn sem frí og fór í Vatnaskóg og lét mig sitja uppi með undirmannaða stöð. Greinilega maður sem er til alls líklegur og ef hér er um einn og sama manninn að ræða bætist hann í fyrrverandi vinnufélagagallerí mitt úr bensíninu sem inniheldur nú þegar dæmdan barnaníðing, morðingja og dópdílera í hrönnum. Mesta furða að maður er ekki skemmdari en maður er.
Tveir stærstu fjölmiðlar landsins hafa bundist þagnarbandalagi. Þetta myndi hljóma fáránlega ef ekki væri um Ísland, RÚV og Morgunblaðið að ræða. En mér finnst samt ótrúlega lásí að miðlar sem kenna sig við "fjöl" skuli taka höndum saman um að þegja yfir frétt. Vill ekki einhver leka innihaldi bréfsins í mig?
Tvær nýjar bíóumfjallanir. Þetta er alltaf að versna.
| 14:24 |