»  off record  »  Ljóðahornið
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ljóðahornið
Mánudagur, 02. júní 2003

Cancel my subscription to the Resurrection
Send my credentials to the House of Detention
I got some friends inside

The face in the mirror won't stop
The girl in the window won't drop
A feast of friends
Alive! she cried
Waitin' for me
Outside!

Before I sink
Into the big sleep
I want to hear
I want to hear
The scream of the butterfly


| 22:09 |
komment

Sun, sun, sun
Burn, burn, burn
Soon, soon, soon
Moon, moon, moon
I will get you
Soon!
Soon!
Soon!

Nr. 1 | Jim | 3.06.2003 | 0:59:25 | [+] |

Eitthvað dauft yfir leiðtoga vorum þessa dagana. Kannski Gunnar Smári hafi neytt Tóta til að skrifa jákvæða gagnrýni um Stellu Blómkvist? Villtist sjálfur inná heimasíðu Blámanns litla Blöndal í Þórunnarstræti. Hann og Tóti með sama góða ljóðasmekkinn:

Eternal spirit of the chainless mind! Brightest in dungeouns, Liberty! thou art.
Þú frelsisást, sem fjötur engan ber, um fangans múr þinn ljómi bjartast skín.

Svo er bara að drifa sig í jogginggallann, henda pulsum á grillið og ná í dósabjór að hætti TC.

Nr. 2 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 6:39:06 | [+] |

Ja, and more to the point (lika hja mini Blondal):

Þú getur haft mig fyrir því, að frelsi er meira vert en lofthæðin í bænum.
- Halldór Laxness rithöfundur. Sjálfstætt fólk - Bjartur

Nr. 3 | organistinn | 3.06.2003 | 7:18:12 | [+] |

Organisti

Varst þú ekki með einhverja teoríu um hföund Stellu? Tóti fór engum silkihönskum um bækurnar á Strikinu.is

Og by the way. Er þetta varanleg búseta þarna ytra hjá ykkur? Á grænu korti?

Nr. 4 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 7:40:52 | [+] |

Nei það var Tóti. Hans besta uppástunga var Jón Ó-tar. Það eru þó vandamál við þá kenningu því Jóni ætti að vera nákvæmlega sama. En er Loki búinn að leysa gátuna?

Já grænt kort og orðinn hálfgerður Amríkani. Maður veit þó aldrei því Organistafrúin er alltaf homesick. Þegar Organistinn kemur heim í Suður-Kaliforníusumrinu og biskup Íslands er með jólamessu á fóninum þá veit ég að erfið kvöldstund er fram undan. Undanfari jólmessunnnar eru venjulega nokkrir dagar af Ellí&Vilhjálmi og Álftagerðisbræðrum, spilað í tandem.

En hvað með Loka. Ertu fluttur út for good, eða tímabundið?

Annars held ég að við hirðfíflin höfum algerlega klúðrað starfi okkar því konungshjónin eru afskaplega óhamingjusöm. Ég veit bara ekkert hvað hægt er að gera í því.

Nr. 5 | organistinn | 3.06.2003 | 8:07:35 | [+] |

Afskaplega eru Álftagerðisbræður vinsælir þarna ytra. Er organistinn farinn að rugla hlutverkum í leikritinu sínu?

For good eða tímabundið? Skrapp í svona sumarferð með Albaníuvinafélaginu fyrir tuttugu árum, einhver misskilningur á hótelinu síðasta daginn og ég missti af rútunni, þegar hópúrinn fór út á flugvöll. Karlinn í mótökunni, sem heitir Keops, segjir alltaf að það komi ný rúta á morgunn, en mér er farið að líða eins og okkar manni í Havanna.

Nr. 6 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 8:23:54 | [+] |

Nei, enginn ruglingur hér. Við eigum a.m.k. tvo ef ekki þrjá diska með þeim. Þið þarna í Skandinavíu eruð svo nálægt Íslandi að það er engin ástæða til að hlusta á Álftagerðisbræðurna.

Hljómar eins og við höfum verið fjarverandi í álíka langan tíma. Ég hætti þó að fylgjast með rútunum heim fyrir ca. 7 til 8 árum. En ber að skilja þetta þannig að Loki vilji flytja heim?

Nr. 7 | organistinn | 3.06.2003 | 8:39:47 | [+] |

Hef bara ekki leitt hugann að því nýverið. Lítil ástæða, enda nóg í gangi hérna eins og er.

Nr. 8 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 9:23:39 | [+] |

Já markaðurinn er allur að taka við sér! Bara spurning hvenær líftækni-blaðran springur aftur.

Nr. 9 | organistinn | 3.06.2003 | 9:29:35 | [+] |

Markaðurinn fyrir söng Álftagerðisbræðra? Þeir komnir á Billboardlistann eða með nýtt myndband í MTV? Soldið erfitt að fylgjast með alþjóðastraumum hérna í Tirana, bara tveggja ára gömul NYT sem amrískir túristar hafa skilið eftir, og bara einhver tyrknesk stöð alltaf í svart/hvíta sjónvarpinu.

Nr. 10 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 10:51:25 | [+] |

Loki -- er það "heja Norge", sænskur sósíaldemókrati eða Dani með ölmaga? Eða kannski kiiiiippiiiiss í finnsku gufubaði?

Og ef það bara væri gamli góði krumpugallinn sem væri enn til! Öppgreitaði fatalagerinn um daginn. Taldi mér í trú um að ég sé unglingur á hjólabretti. Fór í bæinn og keypti mér víðar hip-hop buxur með klofið á milli hnjánna, rósóttar sumarskyrtu og himinbláa hip-hop skó. Merkið er "Path" að mig minnir, sölumaðurinn hélt því fram að bróðir þess Run DMC meðlims sem var skotinn fyrr í vor framleiði þetta (saumar þetta sjálfsagt í höndunum á einhverju götuhorninu í suðurhluta L.A.). TC er últimatívur í þessu, þekkist ekki á meðal starfsbræðra sinna.

Organisti: tók mig nú til og henti gamalli spólu með jólamessu úr Langholtskirkju frá 1976 (að mig minnir) til þess að slökkva í homesick þorstanum. Annars er það nú ekki kirkjan né "undir dalanna sól...." sem togar heim til Íslands. Frekar lögleysan og öll götin á ríkissjóði. Mig langar líka að vera memm!

Svo bíður Zetorinn líka eftir mér - ekki lumið þið á svona eins og einu galloni af Essolube HDX-30, ég vil helst ekki setja fjölþykktarolíu á garminn?

Nr. 11 | Tony Clifton | 3.06.2003 | 15:31:45 | [+] |

Velti því fyrir mér hvort TC væri yfirleitt í transi þegar þegar hann verslaði á sig föt. TC hélt víst uppi Vinnufatabúðinni á velmektardögum sínum sem vörubílstjóri hjá HSÞ. Auðþekktur á slitnum, bláum Wranglers, hangandi niðri á miðjar rasskinnar.

Nr. 12 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 16:35:39 | [+] |

Loki!

Þetta eru vinnufatabúðir nútímans. Missti af Wranglerkynslóðinni, en heyri að Loki talar af reynslu. Ef ekki til annars, þá sem neytandi grænna hermannajakka úr vinnufatabúðinni með öfugan rennilás. Hlemmur. Lím í hárið. Rokk í Reykjavík. Reykelsi og ilmkrem í Jasmín á Barónsstígnum. Heyrir kynslóðinni til. ´

Hef ekið í mörg ár í draumum mínum á grænum Man hjá KÞH!

HSÞ hlýtur að vera Héraðssamband Þingeyinga með Loka sem heiðursfélaga og lukkutröll. Loki nýtur athygli og umhyggju norðanmanna svo um munar.

Nr. 13 | Tony Clifton | 3.06.2003 | 16:56:43 | [+] |

Spilafífl með "Talandi höfuð", var það ekki svona "One hit wonder" eins og Kaninn kallar það? Vonbrigði góðir með "Ó,Reykjavík", þétt lag.

Undra mig á þessum áhuga TC á íslenskum stjórnmálum Allt við það sama þar, mér sýnist hlutir breytast minna núna á 16 árum en gerðist á 16 mánuðum þegar við vorum yngri.

Líklega er þetta ágætt fyrir þá sem lægstu launin hafa, þrátt fyrir allt sem skrifað er. Besta kjarabótin fyrir þá er reyndar lægra vöruverð.

Nr. 14 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 18:01:47 | [+] |

Ég sé að þið eruð komnir á kaf í Álftagerðisbræðranostalgíuna. tonlist.is er með Álftagerðisbræðrastraum. Hudson hjónin tóku sig til eina kvöldstund og vistuðu allt prógrammið svo nú hjómar yndisfríður karlasöngur öll kvöld meðan Hudsonarnir láta sig dreyma um svalan blæinn í Skagafirðinum.

Vilji menn endurtaka glæp Hudson hjónanna, þá má benda á forritið "Total Recorder" til þess arna.

Ég deili áhyggjum organistans af aðalsfólkinu okkar hérna. Hirðfífl geta lítið gert þegar hart er í ári. Nema náttúrulega benda á að framtíðin er miklu skemmtilegri en fortíðin. Miklu fleiri möguleikar að breyta hlutunum þið skiljið.

Hvernig ganga ritstörfin hjá refnum í Danaveldi? Ólíkt betri bjór þar en á ýmsum öðrum stöðum, ætti að ýta undir sköpunargáfuna og sjálfseyðingarhvötina.

Nr. 15 | alanhudson | 3.06.2003 | 21:31:15 | [+] |

Gengur ágætlega, þakka þér fyrir. Dálítið langir dagar síðustu tvær vikur að vísu. Ekkert með long drink á Hótel Tindastól heldur. Í formála hendir maður víst gjarnan inn nokkkrum þakkarorðum, ætli væri ekki viðeigandi að slengja inn nöfnunum á US-genginu organistanum, tc og Alan Hudson...

Nr. 16 | Refurinn Loki | 3.06.2003 | 21:48:18 | [+] |

Sló til og keypti gamla bílinn hans TC. AMC Gremlin, árgerð 1974. Að vísu meira Bondo en málmur í honum. En kjarakaup: $34,995.

Nr. 17 | Refurinn Loki | 4.06.2003 | 7:23:33 | [+] |

Já er verið að flytja þessa glæsikerru yfir hafið fyrir þig? Kannski í skiptum fyrir þann rússneska. Það kæmi mér ekki á óvart ef þinn væri meira virði í Hollywood en AMC Gremlin.

Svo maður verður að kom við í Mál og Menningu fyrir jólin og kíkja í formála að öllum jólabókum eða er Loki með þetta out of phase?

Helvíti er Tóti orðin desperat; farinn að taka viðtöl við class of 1939 úr MR. Það er víst engin hætta á að þessar gellur bíti af honum typpið.

Og hvernig er þetta með Pétur Blöndal? Er hann á leiðinni í kynskiptingu, eða á að bjóða honum meðferð við þessari brjóstastækkun?

Nr. 18 | organistinn | 4.06.2003 | 7:53:21 | [+] |

Er þetta eitthvað persónulegt með Blöndal og Co.? Já, eða sjallana yfirleitt ? Hlýtur að hafa afskaplega lítið að segja þarna vestra. Sama fjarlægð á Skerið og stendur á mílumælinum á Gremlinum.

Nei, auðvitað kemur ekki til að standa "organisti" þarna. Þessi skorpa með "Refurinn Loki", "organisti" etc. er eiginlega búinn að keyra sitt spor á enda. Þetta hefur tilhneygingu til lokast í vissum, föstum römmum, svona endurtekningar og skírskotanir. Sama fléttan. Dálítið einhæft til lengdar. En það eru víst einhverjir hagsmunir í þessu með nafnleyndina, skilst mér á US-genginu.

Nr. 19 | Refurinn Loki | 4.06.2003 | 9:00:35 | [+] |

Nei, nei alls ekkert persónulegt með Sjallana og Blöndal. Þeir eru bara öllu hlægilegri en restin.

Ég held að rápið á vefsíðum sé í og með einhver Íslands nostalgía og ef maður byggi á Íslandi væri eflaust engin þörf fyrir þetta. Kommentin koma svona í staðinn fyrir að fara út í kaffistofu til að þvæla um ekki neitt og klípa í stelpurnar. Þannig var þetta í frystihúsinu þegar Organistinn var að alast upp. Hér í USA er þetta meira business og Organistinn passar sig á að kítla engar stelpur á kaffistofunni, og að loka aldrei skrifstofunni þegar kvenmaður mætir honum.

Það er rúmlega 10 ára tímabil sem Organistinn missti algerlega úr íslensku þjóðlífi og vissi ekki baun í bala um eitt né neitt. Með email og netinu gjörbreyttist þetta og nú fylgist maður efalust allt of vel með. Því eins og þú segir þá skipta þeir Blöndal og Stebbi litlu máli í stærra samhengi. En ég hef "hitt" bæði skemmtilegt og furðulegt fólk á þennan hátt, s.br. konungshjónin, þig, TC og Alan.

En hvað með Loka. What is his story?

Með nafnleyndina. Ef Loki gerir sér ferð um Suður Kaliforníu, þá láttu mig vita með email og við getum aflétt henni yfir bjór við Kyrrahafið.

Nr. 20 | organistinn | 4.06.2003 | 9:59:36 | [+] |

Comrades!

Emlumst -- er viss um að ég á eftir að rekast á Loka á næstu vikum í Skandinavíu, ætla m.a. að sjá Little Steve og The Boss og fara í finnskt gufubað.

tc

Nr. 21 | Tony Clifton | 4.06.2003 | 15:03:30 | [+] |

Keypti "Born to Run" i uppáhaldsverslun TC. Faco. Þeir götuðu umslagið, enda skífan útsölu. Kraftur í þessu, angurvær saxófónn og nettar útsetningar. En það er eins og Bruce sé fastur í þessari highway-stemningu, alltaf í Chevíinum sínum með ófríska táningskærsustu við hlið sér. Balanserar fínt á milli white trash, redneck og blue collar. Já, svona crossover, eins þeir segja þarna vestra. Alltaf afskaplega almennilegur kall. Eins og Bubbi.

Þarft ekki að fara yfir pollinn til að fara á tónleika með honum, styttra að fara til Philly eða NJ seinna í sumar. Refurinn ætlar hins vegar að sjá TC hita upp fyrir Southside Johnny & the Ashbury Dukes.

Nr. 22 | Refurinn Loki | 4.06.2003 | 17:23:58 | [+] |

Organisti - Hudsonarnir hafa verið að spá í að flytja í næsta nágrenni við suður Kalifórníu í byrjun næsta árs. Áttu bjór þá?

Nr. 23 | alanhudson | 4.06.2003 | 18:41:54 | [+] |

Já pottþétt, en ég efa það þó að Organistinn geti haldið í við Alan í bjórdrykkjunni.

Sendu mér skeyti áður en þú flytur til Hollywood.

Nr. 24 | Organistinn | 4.06.2003 | 18:59:55 | [+] |

tonyclifton_x@yahoo.com

Þá höfum við það.

Nr. 25 | Tony Clifton | 4.06.2003 | 20:22:18 | [+] |

Kveðjustund? Allir góðir dagar taka endi, eins og Davíð komst að þegar þau Guðný hittust. Honum varð svo mikið um að úr varð mediocre bók.

En stundir Alans við tölvuna munu verða færri í sumar en undanfarið. Ef þið verðið farnir úr þessum kima netheims þegar haustar að ný og tölvunotkun verður reglulegri, þá bið ég bara að heilsa.

Og bíð eftir metsólubókinni.

Ps, organisti, mér finnst beiskur evrópskur bjór betri en þessi sæti væmni bandaríski.

Nr. 26 | alanhudson | 4.06.2003 | 20:27:08 | [+] |

Hreðjar Ástvaldsson er fjölhæfur. Á tímabili tröllreið hann öllu með Litgreiningarnámskeiðum á Skerinu. "Ertu greind(ur)?" sagði auglýsingin eða eitthvað í þeim dúr. Mundu eftir þotuskónum, tangó er jú hvergi vinsælli en í Suomi.

Nr. 27 | Refurinn Loki | 4.06.2003 | 20:27:33 | [+] |

Loki: var í Suomi fyrir nokkrum árum. Í vinnunni. Einn. Rölti inn á barinn "Zetor" í miðri Helsinki eitt föstudagskvöld. Gæsapartý. Allir með skíðahúfur í 30 stiga hita á ágústkvöldi. Drakk kolsvartan bjór sem heitir "Tractor Oil", og sat á beislinu á gömlum Zetor og spjallaði við heimamenn. Þetta er menning.

Sendi ykkur línu á þær emlur sem þið gefið upp. Svona í kveðjuskyni. Nú er farið að hitna í veðri, hvítvín, súkkulaði og jarðaber kalla meira en netið.

tc

Nr. 28 | Tony Clifton | 4.06.2003 | 20:39:35 | [+] |

Hirðfíflin ættu kannski að gera sitt til að lappa upp á líf Donsins. Alan heimsótti einusinni geðlækni til að læra slökun. Það tókst ágætlega. Geðlækninum þótti að vísu ekki nóg að gert, og gaf þessum upprennandi sjúklingi lyfseðil upp á meðalapótek af slökunar-, geð- og svefnlyfjum. Þau voru auðvitað öll innleyst (geðlyf eru billeg, þökk sé sjúkrasamlaginu) og standa nú tilbúin til notkunar í baðherbergisskáp Hudsonhjónanna. Það er hins vegar fyrirsjáanlegt að þessi lyfjaskammtur verður ekki notaður til annars en horfa á hann. Það mætti kannski renna nokkrum bleikum yfir til Tóta?

Eruði aflögufærir um eitthvað?

Nr. 29 | alanhudson | 4.06.2003 | 20:44:26 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff