»  off record  »  Lokað vegna geðveiki
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Lokað vegna geðveiki
Þriðjudagur, 03. júní 2003

Þetta er stytt og endurbætt útgáfa af bloggi gærdagsins sem var fullt af dólgshætti og leiðindum sem særðu Önnu mína. Kennir manni að þunglyndar fyllibyttur eiga ekki að úttala sig um of á Netinu En rausið verður að halda áfram eins og Freddy söng áður en hann dó.

Hvað er að þessu helvítis, djöfulsins, andskotans Akureyringahyski? Hver segir að KA (hvað í veröldinni sem það stendur fyrir) megi gera "sér lítið fyrir og sigra Íslandsmeistara KR, 3:0, á sannfærandi hátt í úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Akureyrarvelli í kvöld"? (heimild: mbl.is). Þetta er fyrir neðan allar hellur. Getur þessi skríll aldrei sýnt sér betra fólki að sunnan lágmarksvirðingu?

Well, fuck it. Hef hvort eð er ekki farið á völlinn í 12 ár og held með KR af skyldurækni. Farinn að lesa SKATTKLYFJARNAR - HVERNIG GETUR ALÞÝÐAN VELT ÞEIM AF SÉR? Lítið kver útgefið af Kommúnistaflokki Íslands 1931. Hrafn gaukaði þessu að mér um daginn og sagði mér að lausn allra minna vandamála leyndist í einni setningu þarna. Verst að ég verð að finna hana sjálfur.


| 21:58 |
komment

Tóti!
Helvítið þitt!
Þú velur daginn til að vera geðveikur!
Þú lofaðir að taka pabbafylliríið með mér!
Konan mín fæddi klukkan sjö!
Hringdu strax í 663 4060!
Ég er einn!
Ekki láta mig vera einan á kojufylliríi!
I NEED YOU!
Ingó

PS: Ég get lánað þér geðlyf

Nr. 1 | Ingólfur | 4.06.2003 | 0:08:31 | [+] |

Æ, ég sem hélt að þetta væri búið. Láttu öll skotvopn eiga sig og ekki, EKKI undir neinum kringumstæðum fara á fyllerí með Ingó.

Nr. 2 | Tóta pönk | 4.06.2003 | 1:56:21 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff