»  off record  »  Sturlaður maður í guðlausum heimi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sturlaður maður í guðlausum heimi
Mánudagur, 23. júní 2003

Fólk hefur verið að gefa sig á tal við mig í dag og spyrja hvort ég hafi virkilega skrifað þennan pistil í Fréttablaðið í dag. Í kjölfar játningar minnar hefur svo undantekningarlaust verið lýst yfir miklum áhyggjum að andlegu ástandi mínu og fylking þeirra sem eru alfarið á móti því að ég hætti að drekka fer stöðugt stækkandi.

Ég viðurkenni það fúslega að það er auðvitað firra að taka tjaldferðir, göngutúra og fótboltaleikifram yfir sjónvarpsgláp. Það er líka alveg ofsalega ólíkt mér að stunda svona plebbalega iðju. Það er þó óþarfi að hafa þungar áhyggjur. Ég er að vísu hættur að horfa á sjónvarp og blogga en þetta með útivistina var haugalygi. Datt bara ekkert annað í hug.

nennesseggi... farinn í sund.


| 17:21 |
komment

Tóti!

Það er andlegt ástand lýðsins sem við eigum að hafa áhyggjur af -- hann er leiddur áfram í nafni lýðskrums og kaupmennsku; vinsælir 24 tímar, Safnkort, Happaþrennur, fellihýsi og krumpugalli í Skaftafelli, helgarblað DV orðið tilhlökkunarefni. Allt þetta og meira til stýrir atferli nútímamannsins.

Þá er veröld hátalarans betri.............
Just 19 and sucker's dream I guess I thought you had the flavour
Just 19 and dream obscene with six months off for bad behaviour

tc

Nr. 1 | Tony Clifton | 24.06.2003 | 18:27:09 | [+] |

Blogga meira tóti, blogga meira

Nr. 2 | Ingólfur | 26.06.2003 | 10:58:43 | [+] |

Hvað hefurðu að segja um forsíðufréttina neðst í Fréttablaðinu í dag?

Nr. 3 | Ingólfur | 26.06.2003 | 11:00:42 | [+] |

Tóts minn, Ég vil að þú hættir að drekka. Þá getum við farið á AA fundi. Það er bara að viðurkenna vanmátt okkar á áfengi og okkur er orðið um megn að stjórna egin lífi. I. sporið. Gaman saman í meðferð!!!!

Nr. 4 | Sils | 27.06.2003 | 18:26:24 | [+] |

Minn elskulegi Tóts; hvers vegna skirfar þú ekki meira; Liitla dúfan mín benti mér á þessa síðu þina sem ég fer inn á á hverju kvöldi og...það heyrir til tíðinda ef þú hefur bætt í frá því síðast. Hvurs vegna skrifarðu ekki meira strákur? Best tekst þer upp í pistlum þar sem þú færð að leika lausum hala.
Tóts; hvernig liist þér á að ég færi að blogga líka...væri það ekki bara hvlv...gott. Þá gætuð þið fylgst með hvað er að brjótast um í fimmtugum kolli svona dags daglega. Verst með mig ég er svo fjári opinská...þið væruð komin með heimilislífið á hreint eftir nokkra daga. Hvað bóndinn væri að gera og drotningarnar mínar og litli gaurinn...ég tala nú ekki um mig sjálfa.
Þetta var hugmynd. Aldrei að vita hvað ég geri. Maður fær aldrei að skrifa um neitt nema stóla og borð. Sjúkrahús og lækna eða jafnvel skæri og hunda.
Láttu nú gleði þina flæða hér um síður elsku kallinn. Vont getur ekki versnað...það getur bara batnað.
Þín mamms

Nr. 5 | Mamms | 30.06.2003 | 23:27:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff