Sunnudagur, 01. júní 2003
Ég sé að innherjarnir mínir eru farnir að sakna mín og jafnvel auglýsa eftir mér þannig að mér er það óljúft og skylt að láta vita af mér. Ég er búinn að vera að safna skeggi í brennivínsþokunni og sé ekki enn til sólar og á það greinilega sameiginlegt með Tóný frænda mínum og Skjás eins strákunum að ég er Mídas konungur í bakkgír; allt sem ég snerti breytist í skít.
Bý á götunni sem stendur og þar sem þar eru engar nettengingar veit ég ekki hvenær ég læt heyra frá mér næst.
Umbreyttist eina ferðina enn í The Lizard King í nótt og lenti í áflögum við geðsjúka lessu í Hróa hattar búningi og orðaskaki við tvo leiðinlega friðarsinna. Það leit á tímabili út fyrir að þær disskúsjsónir enduðu í slagsmálum enda fylgir sjaldnast hugur máli hjá fullum íslenskum friðarsinnum sem elska ófriðin þegar upp er staðið. Mér er greinilega farið að förlast þar sem ég hjólaði ekki í þá. Kannksi er ég bara að verða svona skynsamur með aldrinum þar sem það var fullljóst að ég átti ekki séns í þá. Þar fyrir utan var ég ekki í leðurjakkanum og var því rúinn öllu sjálfstrausti og fékk enga athygli frá kvenfólki (ef frá er talin óða lessan).
Var það eitthvað fleira? Örugglega. But who the fuck cares.
| 15:22 |