Sunnudagur, 06. júlí 2003
Listræni ljósmyndarinn minn hann Billi tók þessa rebelmynd af mér. Okkur báðum finnst hún helvíti góð en aðrir eru minna hrifnir. Anna skammaði mig til dæmis fyrir það að vera alltaf eins og unglingur og hélt því fram að ég væri að stæla katrin.is. Ekki í fyrsta skipti sem misskilningur verður á milli okkar hjóna.
I am the Lizard King and I can do anything! Ábyrgðarsjóður launa gafst upp á fimmtudaginn og mokaði hundraðþúsundköllum inn á debetkortið mitt á föstudaginn. Loksins eftir öll þessi ár hefur það borgað sig fyrir mig að standa á meiningu minni. Ábyrgðarsjóðurinn hefur nefnilega þráast við að greiða blaðamönnum sem starfa á Fréttablaðinu launakröfurnar og lögfræðingur Blaðamannafélagsins og raunar sá saumaklúbbur allur hefur staðið sig geðveikislega illa í því að sækja þessa peninga fyrir okkur. Láta hreinlega eins og það sé okkur sjálfum að kenna að við unnum fyrir Eyjólf Sveinsson.
Þeir sem hættu við farsælt gjaldþrot Fréttablaðsins eru löngu búnir að fá greitt en hinir ekki og fá aldrei. Ég var í þessum hópi þangað til ég fattaði það að ég þáði ekki ráðningu hjá Frétt ehf. fyrr en einum og hálfum mánuði eftir að fyrirtækið hóf útgáfu Fbl. að nýju og eftir tveggja mánað stapp og símtöl féllst stjórn sjóðsins á að ég væri sérstakt tilfelli og þess vegna á ég nýjar buxur og skó og skulda engum neitt í dag (nema bankanum, LÍN og Glitni). Það borgaði sig sem sagt að segja "nei, ómögulega takk" þegar mér bauðst að halda áfram. Ég stóð að vísu ekki við þessa sanfæringu mína nema í rétt rúman mánuð og var í suarfríi á atvinnuleysisbótum á meðan. Ég get því ekki verið annað en sáttur við þessi málalok og er alvarlega að hugsa um að byrja aftur að vera hugsjónamaður, finna mér sannfæringu og standa við hana. Að minnsta kosti svo lengi sem það borgar sig.
Ég er farinn í meðferð og frí þannig að ég skrifa ekki fleiri sjónvarpspistla í Fréttablaðið í bili sem er gott þar sem ég er útbrunninn. Síðasti pistillinn er kominn á BadaBing! en FH varnarjaxlinn og fyrirsætan Freyr Bjarnason mun leysa mig af á meðan ég er á snúrunni.
| 19:35 |