»  off record  »  Back to basics
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Back to basics
Laugardagur, 26. júlí 2003

Samferðarfólk mitt í meðferðinni er almennt á þeirri skoðun að hrokinn muni helst standa mér fyrir þrifum í edrúlífinu. Það má vel vera en það er nú hægara sagt en gert fyrir mann sem tilheyrir sjálfhverfustu stétt sem sögur fara af að temja sér auðmýkt og almenna kurteisi. Right?

Ráðgjafinn minn (sem er flottur náungi) er ekkert sérstaklega hress með neysludýrkunina hjá mér og það hversu ég hef byggt sjálfsmynd mína markvisst á eðalfyllibyttum og fordæmdum persónum úr bókmenntasögunni og afþreyingarmenningunni.
Helstu fyrirmyndirnar hafa í gegnum tíðina verið Humphrey Bogart (fullur alla daga en sjaldan til vandræða), Jim Morrison (fullur, dópaður, þunglyndur og geðveikur alla daga og oftast til vandræða), Mickey Rourke (alvöru töffari með sömu persónuleikabresti og Morrison og alltaf til vandræða), Philip Marlowe (réttsýnn og góður einkaspæjari, alvöru hetja en svoldið einmana og frekar drykkfelldur enda) skapaður af Raymond Chandler (uppáhaldsrithöfundinum mínum en hann var eins og Dashiell Hammett vonlaus fyllibytta).
Ráðgjafanum líst ekkert á þessa gaura og er ekki að fíla bókmenntalegt neysludýrkunarrunkið hjá mér og lét mig fá það aukaverkefni um helgina; að lesa Litlu gulu hænuna og koma niður á jörðina.

Hver ætlar að lesa Don Juan í kvöld? Ekki ég.
Hver ætlar að lesa The Big Sleep í kvöld? Ekki ég.
Hver ætlar að horfa á Angel Heart í kvöld? Ekki ég.
Hver ætlar að detta íða og syngja The End í kvöld? Ekki ég.

Held að þetta sé lærdómurinn, nema ég sé of grunnur eða Litla gula hænan og djúp. Who knows?


| 12:41 |
komment

Ekki er afengid sopid tho i tollinn se komid

Nr. 1 | ingo | 27.07.2003 | 10:41:08 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff