Sunnudagur, 06. júlí 2003
Síðasta fylliríið var skemmtilegt en samt einhvern veginn þannig að ég fer nú ekkert grátandi í meðferð. En það er samt djöfull gaman að drekka með blaðamönnum Fréttablaðsins. Við enduðum á Ölstofunni (sem gefur tilefni til neimdropps dauðans en ég ætla að stilla þessu í hóf til að æra ekki óstöðugan Þór sem gengur illa á blóðsuguveiðum fyrir Austan) sem Samfylkingin hefur greinilega hertekið. Kremlverjarnir Eiríkur Bergmann og Hreinn voru þarna helvíti sprækir.
Minnir að annar hvor þeirra hafi boðið mér að gerast Kremlarpenni. Vona að ég hafi afþakkað það.
Dóra Takefusa var langflottust á svæðinu eins og hennar er von og vísa. Það er óumdeilanlega toppurinn á ferli mínum þegar Strikið flutti inn á SkjáEinn og ég fékk borð í horninu hjá Dóru. Betra verður það varla. Er samt alltaf voða feiminn við hana og þorði ekki að heilsa upp á hana í þessum svæsna hópi kvennskörunga sem hún sat til borðs með.
Kata Júl. var einnig á staðnum kjút as ever og varaþingmaðurinn og fyrrum vinnuveitandi minn, Ásgeir Friðgeirsson, var í góðum gír. Gott að hafa aðgang að þingmanni og vera með gsm númeirð hans í minninu þegar
komplexaðir dyraverðir henda manni út. Þá hringir maður bara í þingmanninn sinn og hann kemur í dyrnar, talar dyravörðinn til og tekur ábyrgð á hegðun manns. Ég hef vitaskuld aldrei brugðist Ásgeiri og hegðaði mér (þannig lagað)skikkanlega það sem eftir lifði nætur.
Hjálmar Blöndal tjáði mér að Sigurði Boga væri ekki skemmt yfir skrifum mínum en aðalritstjórinn hans hefur víst sagt honum að hafa engar áhyggjur og að þetta sé ekki svaravert. Það er gott þó ég hafi að vísu verið að gera mér vonir um að mér yrði sendur tóninn í sprenghlægilegu súluriti að hætti snillinganna á DV. Palli Svans hefur líka blandað sér í málið og innlegg hans er vitaskuld gott enda maðurinn gjörkunnugur flestum hnútum á DV eftir erfiða dvöl hjá blaðinu.
Hitti líka Kolbein Marteinsson Evrópusinna. Þekki hann nú svo sem ekkert en við sátum sömu félagsfræðitímana í jafnversta framhaldsskóla landsins fyrir margt löngu. Þá áttum við báðir leðurjakka og bikerboots og vorum svalir. Annars eigum við að ég held fátt sameiginlegt annað er heilbrigða andúð á hægri öflunum. Skemmtilegur gaur. Þetta var sem sagt bara fínt í það heila en ég er samt drullufeginn að þurfa aldrei að gera þetta aftur. Sendi nokkur ruddaleg SMS á vini og kunningja á leiðinni heim og hringdi í þá allra óheppnustu. Þetta er fólkið sem fagnar hæst þegar ég fer á skurðarborðið og læt fjarlægja The Lizard King úr mér.
| 19:59 |