»  off record  »  EIRFORM
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
EIRFORM
Laugardagur, 12. júlí 2003

Ég er búinn að synda á hverjum degi frá því ég ákvað að hætta að drekka. Það er rosalega gott en það eina sem böggar mig er að ég vildi að ég hefði byrjað að synda á meðan ég var fyllibytta þar sem það er fátt jafn gott í þynnkunni og að taka nokkrar ferðir í Vesturbæjarlauginni.

Hvað um það. Eiríkur Jónsson, kollegi minn og heimspekingur, var búinn að vera að skamma mig fyrir það mánuðum saman að synda ekki á hverjum degi - ekki síst þar sem ég er nánast með Vesturbæjarlaugina í bakgarðinum. Það trúa því kannski ekki margir en Eiríkur er ekki bara líkamsræktarfrömuður, heldur líka andansræktarfrömuður og er mjög ráðgefandi einstaklingur. Hann er nefnilega búinn að hugsa í svo mörg ár og hefur nú komist að niðurstöðu og er allur af vilja gerður til að stytta mér leið í gegnum hremmingar lífsins og miðla af reynslu sinni.
Hann bauð mér þess vegna á gratis Lífsleikninámskeið. Ég er að vísu fyrsti skjólstæðingurinn en ef allt fer vel hjá mér er EIR tilbúinn með bækur, myndbönd og mánaðarkúrs sem kostar bara 70.000 krónur. Einhverjum kann að þykja það skjóta skökku við að Eiríkur sé orðinn Lífsleiknimeistari en þegar haft er í huga að Björn Bjarnason innleiddi Lífsleikni í grunnskólum landsins verður þetta einhvern veginn sjálfsagt.
Ég er sem sagt hættur að drekka, syndi daglega og til þess að toppa þetta allt er ég byrjaður í líkamsræktarprógramminu EIRFORM. Saga EIRFORMsins er um ársgömul en í fyrra skrifaði Eiríkur Bakþankann Einn í formi á baksíðu Fréttablaðsins. Þar sagði hann frá því þegar hann, sem líkt og ég hafði aldrei á ævinni stigið inn á líkamsræktarstöð, frá því þegar hann uppgötvaði tækjaherbergið í Vesturbæjarlauginni:

Var þá bent á líkamsræktarherbergi í einni af sundlaugum borgarinnar; eiginlega sérhannað fyrir einfara. Þar er sjaldan sála en þó tæki af ýmsum gerðum og stærðum. Og allt ókeypis ef þú borgar 200 krónur fyrir sundið. Ódýrara ef þú kaupir kort. Settist niður og hugsaði mitt ráð. Bjó til kerfi. Reiknaði allt út.

Byrjaði á því að ganga á bretti líkt og skíðagöngumaður. Þar til lungun ætluðu upp úr mér. Brá mér þá yfir á eins konar róðrabát og reri allt hvað af tók. Hundrað viðstöðulaus áratog. Fann hvernig maginn herptist og rassinn styrktist. Eiginlega jafnóðum. Lyfti svo smálóðum frá öxlum og upp í loft þar til handleggirni gáfu sig. Hengdi svo sjálfan mig upp á rimla og hékk þar til líkaminn hafi náð jafnvægi á ný. Svo út í heita pottinn.

Í raun tók þetta ekki nema 12 mínútur. Eftir þriggja mánaða daglega þjálfun var ég komin niður í 7 mínútur með sama árangri. Fátt minnti á kókflösku þar sem ég stóð á bakkanum og leit til veðurs. Ekki laust við að örlaði á þríhyrningi í línunum væru þær skoðaðar með jákvæðu hugarfari. Og best af öllu; þetta var hægt að gera einn og ókeypis.

Árangurinn spurðist út og EIR er "kominn með lærisveina sem fara í einu og öllu eftir prógramminu sem ég skapaði sjálfur og er að hugsa um að sækja um einkaleyfi á." Myndbandið sem hann ætlar að gefa út heitir "EIRFORM - fjórar æfingar sem breyta lífi þínu" en hann heldur því fram að þær geti breytt líkama sem er að verða eins og kókflaska í laginu í gyltan þríhyrning. Veit ekki með þríhyrninginn en handleggirnir eru allir að stælast og sixpackið er að koma aftur.

Það er undarlegt þetta edrúlíf


| 22:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff