Mánudagur, 14. júlí 2003
Rúmlega vika búin af meðferðinni. Ætlaði að hætta strax á fyrsta degi.
Ég sagði þeim að ég væri gestur að ég væri á leiðinni heim. Þær skelltu mér með látum í gólfið sögðu svo: þú ert einn af þeim.
Þannig er það nú og nú er ég að leita að æðri mætti.
Það er ekki svo galið að fara í svona meðferð, í það minnsta ekki þegar maður er orðinn áskrifandi að blakkátum. Fékk staðfestingu á þessu þegar Laugurinn sjálfur hringdi í dag:
Laugurinn sjálfur: Blessaður. Ertu kominn aftur.
Tóti sjálfur: Kominn hvaðan?
Laugurinn sjálfur: Varstu ekki að fara í meðferð?
Tóti sjálfur: Ha, jú. Hvernig vissir þú það.
Laugurinn sjálfur: Þú hringdir í mig um daginn og sagðir að þú værir að fara í meðferð.
Löng þögn.
Tóti sjálfur: Var ég fullur þegar ég hringdi?
Laugurinn sjálfur: Jáh! Mannstu ekki eftir þessu? Góður. Hehehe. Þú sagðir að þú værir á síðasta fyllirínu fyrir meðferð og það væru síðustu forvöð að detta íða með þér.
Það þarf ekki að rekja þetta frekar en mér skilst að ég komi til með að fá fleiri upprifjanir á þessu síðasta kvöldi sem The Lizard King lifði á götum Reykjavíkur þegar ég heyri í öðrum sem eru í minninu á gemsanum mínum. Gemsinn man þetta semsagt en ég kem af fjöllum. Spurning um að hætta að
drekka?
Það er samt ekki mjög bloggvænt að vera í meðferð. Þar sem mestu fráhvörfin hafa verið frá vinnunni hef ég sett mig í allsherjar frétta- og fjölmiðlabann og veit ekkert hvað er að gerast fyrir utan Teig og allt sem fer fram þar inni er off record (bókstaflega).
Það, sem þú sérð og heyrir hér geymir þú með sjálfum þér.
Ég er með þennan boðskap fyrir augunum öllum stundum þessa dagana, meira að segja í reykskúrnum og verð því bara að þegja. Þar fyrir utan gæti það stórskaðað ímynd mína sem andhetja og fyllibytta ef ég færi að kjafta öllu sem ég er að uppgötva um sjálfan mig hér.
Það eru fimm vikur eftir af meðferðinni og ef ég verð orðin eins og öll hin útiloka ég ekki að ég loki BadaBing! fyrir fullt og allt enda er bannað að vera neikvæður og með hroka þegar maður er búinn að fá raflost og daginn sem mér fer að líða vel á sálinni og verð æðrulaus er bæði sjálfhætt hér og í blaðamennskunni almennt.
Nei. Djók. Þetta er óábyrgt tal og ég er í bullandi afneitun með varnirnar í botni. Þetta verður æðislegt.
Annars er það helst að frétta að EIRFORMIÐ er að svínvirka. Einn ástkærasti vinnufélagi minn, fyrr og síðar, Helga Ólafs, ritstjóri Matartímans (allir út í Hagkaup að kaupa blaðið), fór með mér í EIRFORMIÐ í dag og líst vel á "EIR kúrinn". Ég hljóp þarna eiginlega yfir 11 spor og fór beint í það 12ta þ.e. ég er byrjaður að nýta þekkingu mína og reynslu til að hjálpa öðrum. Það held ég að Eiríkur verði kátur þegar hann heyrir að þessi klassakona sé komin í hópinn.
Einhverra hluta vegna hef ég ekki nennt að skrifa um bíómyndir undanfarið en get látið það fylgja með hér að ég var að fíla Charlie´s Angels í botn. Þeir sem eru ekki að fatta snilldina eru eitthvað að misskilja og svo er Biggi ekki að ýkja neitt mikið í umfjöllun sinni um Hulk í Fréttablaðinu. Það er drullugóð og virkilega athyglisverð mynd.
Well, má ekki vera að þessu þarf að skrifa neyslusöguna og lesa í AA bókinni.
| 21:03 |