Góðan daginn. Tóti heiti ég og er alkóhólisti
Mánudagur, 14. júlí 2003
Ég var nú búinn að lofa totil.com hátíðlega að ég myndi aldrei alkablogga framar en þetta próf er svo skemmtilegt að ég get ekki stillt mig.
Þetta próf er í verkefnabókinni minni og ég held að það sé óhætt að ég hafi ekki fallið jafn harkalega á nokkru prófi frá því ég floppaði í íslensku máli að fornu í HÍ:
Nota ég stundum alkóhól eða lyf í meira magni, en ákveðið var? KEMUR EITTHVAÐ ANNAÐ TIL GREINA?
Nota ég stundum alkóhól eða lyf í lengri tíma, en ákveðið var? TIME FLIES WHEN YOU DON´T KNOW WHAT THE FUCK YOU´RE DOING
Hefur mig einhvern tíma langað til að minnka eða stjórna neyslunni?
JÁ ÞAÐ SEGIR SIG SJÁLFT
Hef ég einhvern tíma reynt að minnka eða stjórna neyslunni?
JÁ EINN BJÓR ER OF LÍTIÐ, TVEIR ER PASSLEGT ÞRÍR ER OF MIKIÐ. HVAÐAN KOM ÞESSI FJÓRÐI ÞÁ?
Fer meiri tími en skildi í undirbúning, í neyslu, eða að ná sér eftir neyslu?
JÁ ÞAÐ TEKUR ALLT OF LANGAN TÍMA AÐ VINNA FYRIR KIPPUNNI
Hef ég frestað eða ekki tekið þátt í mikilvægum viðburði vegna neyslu?
NEI ENDA TENGJAST FLESTIR MIKILVÆGIR VIÐBURÐIR NEYSLU
Hef ég gefist upp á vinnu, félagsstörf. eða áhugamálum, vegna neyslu?
NEI MÉR LEIÐAST FÉLAGSSTÖRF OG ÁHUGAMÁL ERU FYRIR ANNAÐ FÓLK
Hefur neyslan skapað eða aukið líkaml., andlega eða félagsl. vanda?
JÁ ÞAÐ ER EINS OG ÁKVEÐNUM AÐILUM LÍKI ILLA AÐ ÉG DREKKI
Hætti ég ekki neyslu, þó líkamleg, andleg eða félagsleg vandamál versni?
EKKI AÐ RÆÐA ÞAÐ
Hefur þol mitt (áfengis eða lyfja) aukist greinilega eftir að neysla hófst?
JAMM ÉG GET DRUKKIÐ EINS OG BENSÍNKALL
Hef ég fundið til líkamlegra óþæginda eða orðið veikur eftir neyslu?
TELST ÞYNNKA MEÐ. OK NEI.
Hef ég notað alkóhól eða lyf, til að lækna fráhvörf?
NEI. AFHVERJU ÆTTI ÉG AÐ GERA ÞAÐ ÞEGAR FEITUR HAMBORGARI GERIR SAMA GAGN
Ef þremur spurningum er svarað játandi, er viðkomandi sennilega alkóhólisti. Ef sex spurningum, eða fleirum, er svarað játandi er viðkomandi
greinilega alkóhólisti. Ef níu spurningum eða fleirum er svarað játandi, er viðkomandi á seinni stigum alkóhólisma.
Átta JÁ. ÁTTA!! Hjúkket. Eins gott að maður er kominn inn á Teig.
Ef þú svaraðir tveimur eða færri spurningum játandi ert þú líklega að kíkja inn á BadaBing.is í fyrsta skipti og ert eitthvað að villast á Netinu.
| 20:47 |