»  off record  »  Lifi Byltingin!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Lifi Byltingin!
Miðvikudagur, 02. júlí 2003

Fuck YouÞað er hárrétt athugað hjá BD að sjónvarpsrýnar dagblaðanna eru hundleiðinlegir og sjálfur gengst ég hiklaust við því að vera með leiðinlegri mönnum. Ég hef líka spanderað svona eins og 60 dálksentimetrum, síðustu vikurnar, í að tuða yfir því hversu léleg sjónvarpsdagskráin er á sumrin en þykist svo hafa komist að þeirri niðurstöðu að hún eigi að vera léleg svo fólk hangi frekar úti (framsóknarmiðstýringarkomplexinn deyr seint og illa) en endaði þó með að játa það fyrir gestum BadaBing! að allt var þetta lygi og að pistlarnir eru ekki einu sinni byggðir á glápi og því hreinn skáldskapur þar sem ég hætti að horfa á sjónvarp um leið og ég hætti að drekka, blogga og flutti að heiman.

Nú er ég sem betur fer byrjaður að glápa á ný og datt blessunarlega inn í fyrri Castró þáttinn á meðan ég var að horfa á saksóknara reyna að fá barnanauðgara dæmdan í Law&Order:SVU. Fídel er flottur.
Amma fylgdist einu sinni með honum halda eina af sínum endalausu ræðum. (Kann líka góða sögu af ömmu og Krúsjéff en hún bíður betra tilefnis). Held að það hafi verið þegar hún var á einhverju þingi með afa. Hún skildi ekki orð af því sem hann sagði en hafði aldrei séð þokkafyllri mann í ræðustól, eða bara yfir höfuð.
Jamm, það var sko stíll yfir fólkinu og lífinu í gamla daga. Fídel hittir fullan og sætan Che í partíi í Mexíkó og úr verður bylting. Það myndi ekkert gerast í dag eft Steingrímur J. rækist á Michael Moore í gleðskap á Grillinu.
Annars finnst mér Castró alltaf flottastur vegna þess að þrátt fyrir að vera kommi drakk hann alltaf Kók, í lítilli flösku að sjálfsögðu.
Kúba Líbre!

Eitthvað nýlegt hefur verið að reytast inn í bíó og hér eru ekki einn heldur tveir leiðinlegir fjölmiðlapistlar sem BD getur skoðað ef hann hefur ekki fengið blaðið undanfarið.

Flott mynd hjá zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz af Fídel.


| 17:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff