Miðvikudagur, 23. júlí 2003
"Við fórum að trúa því að æðri kraftur máttugri okkar eigin vilja gæti gert okkur heilbrigð að nýju."
Þetta er annað reynsluspor AA-samtakanna og ekki beint fýsilegt fyrir mann sem er meðlimur í Ásatrúarfélaginu og las ungur yfir sig af Nietzsche að stíga það.
Mér hefur semsagt verið uppálagt að finna æðri mátt til þess að halda mér edrú. Annars er fall mitt í trúleysi mínu falið.
Þetta var krísa. Ég trúi engu og get ekki farið að gera það á gamals aldri. Ekki einu sinni í plati.
Ég fór því upp á fjallið og öskraði: "Guð hvernig geturðu yfirgefið mig þegar þú ert ekki til?" Ég held að hann hafi ekki svarað. Og þó? Þarna á fjallinu fékk ég what alcholics refer to as a moment of clarity og fattaði að auðvitað trúi ég á mátt mér æðri og hef alltaf gert það. Þetta segir sig auðvitað sjálft. Mátturinn, maður, The Force.
Jamm, þarna kom nördisminn mér eina ferðina enn til bjargar en allir sem þekkja nördafræðin vita að "the Force is what gives a Jedi his power. It's an energy field created by all living things. It surrounds us and penetrates us. It binds the galaxy together."
Svo mörg voru þau orð hjá honum Obi-Wan. Ég leitaði mikið að Mættinum upp úr 1980 og taldi mig meira að segja hafa fundið hann 10 árum síðar. Var bara búinn að gleyma því en þetta hentar mér vel núna og mér er borgið enda alltaf verið Jedi.
Yoda væri alveg fyrirtaks sponsor: "You must unlearn what you have learned." Það er einmitt það sem ég er að gera og það segir sig sjálft ef maður skoðar alkóhólismann í þessari heimsmynd minni að Dýógenes er Sith.
Ég get alveg séð mig fyrir mér hangandi á barnum, með brugðinn geislabrand grátandi "YOU DON´T KNOW THE POWER OF THE DARKSIDE!!!" á meðan Bacardi flaskan segir "join me and we can rule the galaxy together." Þá segir minns eins og Luke gerði í annarri stjörnuþoku lang, langt í burtu: "NEVER!!" og hleypur á AA-fund.
May the Force be with you.
Bíórýnirinn Tóti er að fikra sig út út brennivínsþokunni og hefur að beðini ritstjórnar BadaBing! skrifað dóm um Termintor 3.
| 20:31 |