»  off record  »  Töffarar og kellingar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Töffarar og kellingar
Miðvikudagur, 16. júlí 2003

Ég var búinn að heyra eitthvað um það að Vera væri með bloggumfjöllun í nýjasta blaði og tékkaði á herlegheitunum í Eymundsson í gærkvöld. Náði nú ekki að lesa alla viskuna þar sem ég kom rétt fyrir lokun. Sá samt að það var birtur kafli úr geðveikisröflinu hennar Önnu. Það ber vott um nokkra smekkvísi þar sem þessi tilvonandi fyrrverandi eiginkona mín er með þeim allra skemmtilegustu og líflegustu sem tjá sig á blogginu.

Það eina sem er til ama á síðunni hennar eru fíflin sem leggja kommentin hjá henni alltaf undir sig, ekki síst bjáninn í Danmörku sem er að rembast við að ná barnapíu djobbinu mínu þegar það er svo sorglega áberandi að Anna er way way out of his league (síðasti séns til að dissa áður en æruleysið tekur við). Best verður þessi litla þjóðarsálargeðdeild aftur á móti hjá Önnu þegar BadaBing gengið; Organistinn, Loki og Tony blanda sér í umræðuna hjá henni. Það eru menn sem hafa nákvæmlega ekkert að segja, vita af því og gera það vel. Mínir menn.
Ég átti nú svo sem ekki von á því að kvenverurnar færu að gera karlbloggurum hátt undir höfði og var því ekkert geðveikt abbó út í Önnu en sá svo að við Tóti Leifs komum við sögu í einni greininni. Það er vissulega rétt sem þar kemur fram að við erum töffarar sem látum allt flakka án þess að pæla í hvað öðrum finnst um það. Ég er hins vegar ekki viss um að það sé rétt að nota okkur sem dæmi um karlbloggara þar sem við erum svo miklu, miklu betri en megnið af þessum leppalúðum sem eru að þenja sig á netinu.
Alkabloggin okkar voru notuð sem dæmi um þroskaðan díalóg meðal karla á blogginu og það er svo sem gott og vel en ef við hefðum átt að njóta sannmælis hefði mátt velja flottari rispur frá okkur til birtingar. Og hvaða fallusarfælni er það að birta ekki slóðirnar á bloggin okkar? Þeir lesendur Veru sem þekkja ekki vel til bloggsins hafa vitaskuld ofsalega gott af því að lesa öll þau kerlingablogg sem eru talin upp á síðum blaðsins en það er ekki sanngjarnt gagnvart þeim að þagga þá karla sem eru að gera það gott á þessum vígvelli. Það má vel verja það að kvenverum fynnist best að geyma töffara á jaðrinum en þetta er nú full langt gengið.
Þar fyrir utan skilst mér að það komi fram einhvers staðar þarna að karlar bloggi aldrei um útlit sitt og líkama. Þetta er alrangt. Totil hefur gert holdafar sitt að umtalsefni og ég er handviss (án þess að ég nenni að fletta því upp) að ég hafi skrifað um ístruna mína, ömurlegt vaxtarlagið og reðurkomplexinn hræðilega (þú sérð það Tóta pönk að þú þarft ekkert að óttast í Vesturbæjarlauginni og ferð nú ekki að láta blammeringar frá EIR eyðileggja ánægjuna - skelltu þér bara með okkur í FORMIÐ). Hafi ég ekki gert það mun ég örugglega drífa í því áður en Bleikt&Blátt gerir klámfræðilega úttekt á bloggi.

Totil er voða sætur í sér í dag og heldur áfram að bakka mig upp í alkóhólismanum. Þessi hlýju orð hans og loforð um að ég megi halda í hrokann munu halda mér gangandi út vikuna í það minnsta. Kaninku Palli hugsar greinilega líka til mín í útlegðinni og þessi fallega mynd tekur af öll tvímæli um að það eru góð hjörtu sem slá vinstra megin.


| 21:37 |
komment

Ég hef hvorki lesið um magann á þér né tippið á þér á blogginu. Af hverju missi ég alltaf af öllu?

Nr. 1 | Tóta P. | 17.07.2003 | 17:49:22 | [+] |

Hudsonarnir keyrðu Gjábakkaveg aka Lyngdalsheiði í dag og komust að því að nú hafa þeir bætt við eins og 1km af olíumöl. Af hverju klára þessir náungar nú ekki eins og einn veg og hætta þessum bútasaumi?

PS, Hudsonarnir elska þig allir Tóti.

Nr. 2 | alanhudson | 18.07.2003 | 0:08:33 | [+] |

Ég get barasta ekki komið saman setningu sem ekki er þér samboðin Tóta.... eða Tóti... þið eruð svo rosalega skemmtileg bæði tvö... ó já... ég sagði það...

Nr. 3 | pallih | 18.07.2003 | 0:10:44 | [+] |

Var þetta íronía?

Nr. 4 | Tóta Pönk | 18.07.2003 | 22:19:41 | [+] |

Yo
Hvað er annars að frétta?
Kíktu í kaffi og kleinur við tækifæri tóti

Nr. 5 | ingo | 21.07.2003 | 20:42:03 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff