»  off record  »  Watch out here I come...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Watch out here I come...
Þriðjudagur, 01. júlí 2003

Fyrirsögnin átti nú að vera Wanted: Dead or Alive en þessi vísun í texta hljómsveitar Pete Burns er flottari enda er ég að gera comeback og kann undrinu Sigurði Boga Sævarssyni bestu þakkir fyrir þessi orð sem rifu mig upp úr öskustónni sem ég hef legið í frá því ég hætti að gutla í brennivíni og byrjaði að synda í Vesturbæjarlauginni:

Var að fleta Fréttablaðinu. Finnst skorta allan karkater í þetta blað; efnið er hræðilega niðursoðið. Engin tilþrif hvað varðar stíl, myndir, umbrot en þó fyrst og síðast hugsun. Fyrir hvað stendur þetta blað; hver er hugmyndafræðin önnur en að blaðið er ókeypis og segir fréttir.

Þetta hefur svar X-kynslóðarinnar við Halldóri Blöndal og blaðamaður á tilvistarkrepptasta dagblaði landsins að segja um Fréttablaðið. Ef Fréttablaðið skortir hugsun hvað má þá segja um DV sem gerir sér forsíðumat úr því að kjánalegasti blaðamaður þess fór sér að voða úti í mýri og var bjargað af frönskum ferðamanni?

Ég verð að gefa mér það að SBS hafi ekki náð að stauta sig yfir í aftari hluta Fréttablaðsins þar sem ég geng laus á þeim síðum og eins og alþjóð veit er ég einn stílfimasti blaðamaður sem sögur fara af. Viðurkenni þó fúslega að ég er hófstilltari í blaðinu en ég á að mér að vera en það er bara vegna eðlis blaðsins. Alvöru pennar geta nefnilega brugðið fyrir sig mörgum stíltegundum. Skil ekki (takið eftir að persónufornafn vantar í upphafi setningarinnar) hvað SBS er að þenja sig þar sem stíll hans er flatur, sveitalegur, geldur og ber þess greinileg merki að hann langar að geta skrifað eins og Eiríkur Jónsson en á þó ekkert sameiginlegt með EIR nema það að hann rembist við að nota ekki persónufornöfn þegar hann byrjar setningar. SBS á semsagt ekki persónulegan stíl en hann kann að skrifa flatan texta. Það verður ekki af honum tekið. Þá megum við ekki gleyma því að SBS nýtur þess vafasama heiðurs að hann á ekki í neinum vandræðum með að skrifa vandræðalegri og leiðinlegri fjölmiðlapistla en Jón Birgir Pétursson og þá er alveg svakalega mikið sagt.
Maður skrifast auðvitað ekki á við svona menn. Maður lemur þá bara í frímínútum en það er önnur saga.


| 12:50 |
komment

Gleður mitt hjarta að sjá þig upprisinn á ný. Farðu nú að tjá þig hérna svo maður káli sér ekki úr eintómum leiðindum í þessari gúrku. Það yrði mikill skaði fyrir mannkyn, believe me (svo ekki sé minnst á konu og börn).

Nr. 1 | alanhudson | 1.07.2003 | 18:11:27 | [+] |

Tóti er með þennan Lazarus eiginleika, no doubt about it.

Eins og hudson segir; Þetta er gúrkutíð.
Jeps, allt er skárra en Víkurblaðið á Húsavík, sérstaklega eftir að tc byrjaði að skrifa þar um dráttarvélar í undir nafninu Doktor Deutz. Hudson skrifar svo víst í Feykir á Sauðárkróki um eyðibýli og auðnir á milli eyranna á Skagfirðingum. Organistinn hefur samt náð lengst, skrifar nú um tómatarækt í Gálgás á Neskaupstað.

Nr. 2 | Refurinn Loki | 1.07.2003 | 19:33:52 | [+] |

Verð að viðurkenna það, að dráttarvéladálkurinn er orðinn ansi þunnur svona í byrjun nýrrar aldar. Er að hugsa um að snúa mér að skrifum um hágæða bíla. Er að bæta einum í bílaflotann á morgun. Þá lækkar meðalaldur hans niður í 26,5 ár.

tc

Nr. 3 | Tony Clifton | 1.07.2003 | 20:30:18 | [+] |

Þú ert sumsé að svissa úr Cord í hvað, '67 Thunderbird? Hvaða litur er þetta? Mundu að hvítir bílar geta orðið dýrkeyptir.

Nr. 4 | alanhudson | 1.07.2003 | 20:53:42 | [+] |

Frést hefur að Tóti haldi til í koju með andlitið undir koddanum. Helsærður skjögri hann þó af og til inná Fréttablað til að hespa af blogginu sem hann kallar blaðamennsku. Stundum sér maður blóðug fótspor Tóta þar:

"Harðhausinn Bruce Willis segist..."
"Sykurandlitið John Cusack hefur..."
"Glyspopparinn Adam Ant..."
"Vitleysingjastjarnan Ashton Kutcher..."
"Snillingurinn Bjartmar átti afmæli..."
"Óskarsverðlaunafljóðið Gwyneth Paltrow ætlar..."
"Hjólastólaofurmennið Christopher Reeves er að fara..."
"Tveir vitleysingjar í Kaliforníu komu..."

Er ekki kominn tími til að það sjái til sólar hjá þunglyndisbloggarunum Tóta.

Nr. 5 | Organistinn | 2.07.2003 | 1:43:05 | [+] |

Jæja, þá er víst von á tc á Skerið. Ætlar að þræða afdali, gamlar hlöður og bragga í leit að gömlum amrískum köggum, sem hann ætlar að shæna upp. Sýnist líka vera ágætur aur í þessu, eftir síðustu verðlistum að dæma (sjá neðar). Organistinn er loksins búinn að flytja tómataspírurnar úr eggjabökkunum yfir í afskorna mjólkurfernur og hefur stungið niður bambusprikum plöntunum til stuðnings. Svo er bara að muna að vökva daglega, tómatar drekka víst meir en tc á góðum degi.


Model Value

1970 Plymouth Superbird 426 Hemi $84,000
1970 Chevrolet Chevelle SS 454 LS6 Convertible $83,725
1969 Dodge Daytona 426 Hemi $79,500
1968 Ford Mustang Shelby GT500KR Convertible $69,100
1969-1970 Ford Mustang Shelby GT500 Convertible $65,650
1968 Ford Mustang Shelby GT500 Convertible $62,175
1965 Ford Mustang Shelby GT350 Fastback
$61,275
1970 Chevrolet Chevelle SS 454 Convertible
$53,625
1969 Chevrolet Camaro Yenko 427 $50,000

Nr. 6 | Refurinn Loki | 2.07.2003 | 6:36:12 | [+] |

Loksins eitthvað farið að bæra á Tóta aftur. Gott mál.

Þakkir til Loka fyrir yfirlitið. Veit hann er með þetta tattóverað á vinstri upphandlegginn. Felur andlitið á bakvið speglaðan Ray Ban, og hleypur út á bílastæðið um leið og TC rennir í hlað á bílasölunni. Fánarnir flökta í sunnangolunni.

Nýr kúnni í sjoppunni.

Loki reynir að halda aftur af sér. Tyggur rólega á eldspýtu eins og ýtustjóri á Holtavörðuheiðinni sem er nýbúinn að hitta eina verkmennta........ TC spyr hvort hægt sé að treida vaninum inn; nýjar bremsur, nýbúið að flössa sjálfskiptinguna og smog testið hjá DMV segir mótorinn geta drifið 15 heyblásara í einu án þess að blása úr nös.

TC gjóar augunum að silfurgráum Chevelle SS yst á bílastæðinu.

Tæp 54 kíló segir Loki, fettir upp á nefið og vippar efri hluta Ray Bansins upp undir loðnar augnabrýrnar, sem mynda einskonar sólskyggni.

TC hummar. Jammar. Will Hunting átti góða vini að. Þeir hreinlega gáfu honum Chevelle. Hvort það var SS eður ei fylgir ekki sögunni.

Það er heitt í bænum.

Fimm rútur fullar af Kúbudönsurum komu í bæinn í gær. Og einn lítill 12 manna bus með linum kúbverjum. Ekkert Viagra handa þeim.

En hvað um það, Loki spyr til ætta TC. Segist hafa millilent á Íslandi ágúst '86 og lent í svaka veislu þar sem hrokkinnhærður maður með borða yfir magann hafi veitt vel. Hafi kallað sjálfan sig "mayor mayor" allt kvöldið.

Loki er búinn að tengja. Hann er sölumaður. Segist hafa sömu áhugamál og TC.

35 kíló á borðið og TC ekur SS'inum heim.

Nr. 7 | Tony Clifton | 2.07.2003 | 8:22:24 | [+] |

Helvítið þitt Loki. Fyrst Buena Vista Social Club og nú tómatarnir. Í alvöru, ertu með myndavél á mér? Hvaðan færðu þessar upplýsingar?

Síðasti laugardagseftirmiðdagur fór einmitt í það að setja niður prik til að binda upp tómatplönturnar sem voru farnar að skríða yfir og kæfa blóm frúarinnar. Og basilið mitt var líka komið í vandræði út af þessu.

Það er víst langt síðan Loki hefur fengið almennilegan tómat. Þetta súra drasl úr gróðurhúsum á Íslandi er ekki étandi.

Kannski maður geti fengið Tóta úr koju með því að hóta að fara að birta uppskriftir á Badabing.

Nr. 8 | organistinn | 2.07.2003 | 8:22:40 | [+] |

Óttalegur lúði ertu Tóti.

Sárnaði þér kannski í hvert skipti sem Olís auglýsti kraft bensín? Fórstu á rúntinn með vinunumog sagði þeim að auðvitað væri ekkert til sem héti kraft bensín? Og að Esso væri best og það væru eintómir aumingjar þarna á DV... ég meina Olís?

Nr. 9 | Wilson | 2.07.2003 | 10:10:24 | [+] |

Organisti!

Hef grun um að hirðin hans Tóta sé skyggn, alveg eins og hún leggur sig.

Hudson - dunno how - vissi af einhverjum orsökum að TC bíður í ofvæni eftir stífbónuðum hvítum eðalvagni.

Leiðist annars garðrækt. Er með dúndrandi harðsperrur eftir helgarrask í garðinum. Það var pjakkað og potað og sjálfsagt í haust, þegar fer að rétta á Íslandi, á maður von á maískólfum, papriku og squash í stríðum straumum. Hefur þó hingað til einungis tekist að halda lífi í rabarbaranum.

tc

Nr. 10 | Tony Clifton | 2.07.2003 | 10:15:00 | [+] |

"Það lá sko í því hversu vel því var dælt, ídjót."

Hér talar Tóti af reynslu.

Ekki eftir að hafa afgreitt einmanna heildsalakerlingar á nýjum Golf, heldur eftir stefnumótið við leigubílstjórann á dælu 5. Kremlitaður Peugeot 505, dísill, þriggja stafa Err númer. Nýbónaður.

Rennir létt upp að dælunni, hægra megin að sjálfsögðu. "Huhh, ert þú nýr hérna?" spyr hálfsextug ístra. "Er nú Olíufélagið farið að ráða börn í vinnu?, huhh". Hann tinar og horfir beint í augun á Tóta. "Fyllt´ann vinur og EKKI sulla útfyrir eins og hinir aumingjarnir sem vinna hjá ykkur".

Tóti segir ekki orð, en fyllir bílinn. Tæmir reyndar dreggjarnar úr nokkrum tómum brúsum af sjálfskiptivökva í tankinn. "Gott fyrir olíuverkið" hummar hann og sér fyrir sér rauðbláan reykinn ósa úr bílnum vestur Kársnesbrautina.

Er nú farinn að skilja hvað Tóti leggur í hugtakið "vinur". Þetta er leigubílstjórasyndrómið.

Gaman að sjá þig aftur, Tóti!

tc

Nr. 11 | Tony Clifton | 2.07.2003 | 11:19:19 | [+] |

Tóti sjálfur:

Auðvitað er ég bjáni elsku Tóti minn.

Nr. 12 | Wilson | 2.07.2003 | 13:25:59 | [+] |

Tóti sjálfur:

Auðvitað er ég bjáni elsku Tóti minn.

Nr. 13 | Wilson | 2.07.2003 | 13:26:29 | [+] |

Það vermir mína teflonsál að lesa allt þetta "Welcome-back-Toti-hjal". Nú vantar bara stebbafr. ræðu með svona Tóti er bestur og maður fær gamla, góða "Norður-Kórea-er-best fílinginn" aftur. Í staðinn fyrir að hæla sjálfum sér er alltaf best að láta aðra um það. Tóti er ágætur. Hann er ekki fullkominn en hann er ekki djöfullinn sjálfur.

Annars er enn eitt viðskiftaævintýri að byrja hjá mér núna. Að ráði tc opnaði ég bílasölu í sjálfri Havana þann 1.maí sl. Hlustaði ekki einu sinni á Nallann sem allir göluðu. Í mínu höfði er Nallinn gömul dráttarvél.

Nr. 14 | Refurinn Loki | 2.07.2003 | 19:39:33 | [+] |

Vænkast nú hagur útlaganna í hirð Tóta. Þetta er úr Mogganum í dag:

"Framfarafélag Dalvíkurbyggðar, undir forystu Stefáns Friðriks Stefánssonar, undirbýr stofnun nokkurs konar sumarskóla fyrir íslensk börn búsett erlendis. Myndu þau dvelja á sveitaheimilum í Svarfaðardal og á Árskógsströnd. "Það er stór hópur sem dvelur erlendis, sem myndi gjarna vilja senda börnin sín hingað til sumardvalar til að viðhalda tungunni og tengslum við íslenska menningarhefð," segir Ragnar Stefánsson, formaður samtakanna Landsbyggðin lifi.

Kannski Tóti geti fengið jobb hjá Stebbafr sem youth counsellor. Ekki veitir af að kenna íslensku útlendingabörnum þróttmikið mál, svartsýni, depurð og kuldalegt íslenskt viðmót.

Nr. 15 | organistinn | 4.07.2003 | 7:35:54 | [+] |

Langt landfræðilegt stökkið hjá Loka, þó svo að mentalt sé stökkið úr sænskum sjósíaldemókratískum smábæ til Kúbu ekki stórt. Sjálfsagt jafn gott og fyrsta hlandbunan á morgnana að losna við Saab og Volvo og vera kominn 40 ár aftur í tímann hvað bílaflotann varðar. Finnst reyndar Chevellurnar vera í ansi háum kúrs hjá Castró og Loka.

Fékk annars gæsahúð við skilaboð Organistans.
Cliftonarnir verða ekki sendir í heilaþvott norður í land! Né í eitt eða neitt annað sem við kemur aumingjarækt!

Tóti - nú ER ég farinn í frí (tóna þessa setningu með samnefndu lagi sem sjálfsagt er mjálmað í útvarpinu með reglulegu millibili á íslenskum sumrum). Who the fuck is Tóti Tvistur? Bóntvistur eða vélatvistur?

Puuuuuuuuuuhhhhhhhhhhh...............til ykkar allra - og skál!!!

tc

Nr. 16 | Tony Clifton | 4.07.2003 | 23:52:56 | [+] |

Í draumnum birtist allt í einu Chevelle ´71 auðum þjóðvegi í miðri eyðimörk. Á skiltinu við veginn stóð "Las Vegas 23 miles". Sá sem keyrði var með kúrekahatt, kúbuvindil og í kúrekastígvélum úr snákaskinni. Hinn var með Panamahatt og sólgleraugu, reykjandi sígarettu í munnstykki. Hvorugur virtist upptekinn af því að bifreiðinn var á röngum vegarhelming á 180 mílna hraða.... Ótti og andstyggð í Las Vegas framundan. TC treður upp sem Elvis eftirlíking meðan Tóti líður í gegnum fríið á free drinks.

Nr. 17 | Refurinn Loki | 9.07.2003 | 11:38:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff