» off record » ágúst 2003 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
| 15:04 | föst tilvísun
| komment
(2) |
|
|
![]() |
|
Stúlkan sem stelur nammninu mínu sendi mér tölvupóst í gær og það er greinilegt að bati minn er farinn að hafa truflandi áhrif á draumfarir hennar. Gefum henni orðið:
En nú skal ég segja þér - heldurðu að mig hafi ekki dreymt þig í nótt, þú varst í bleikri peysu og ljósbláum gallabuxum og orðinn soldið þéttari og rjóðari í kinnum og varst svona eitthvað svo væminn.
Heldurðaðsé . . .
Vonandi er hún ekki berdreymin en ef þetta er það sem koma skal þá er Boltonbatinn orðinn eftirsóknarverður og ákjósanlegur. Allt annað en bleikt.
Annars er það að frétta af alkanum að ég kláraði meðferðina í dag (allra síðasta alkabloggið mun því birtast á morgun en dyggir lesendur Badabing! geta huggað sig við að eftir það mun gamla kaldhæðnin og skítkastið byrja aftur þó með þeirri undarlegu breytingu að það verður ekki rætið lengur) og mæti ferskur í svörtum palíettukjól á bleiku skýi til vinnu á mánudaginn. Ég er nú ekkert viss um að endurkoma mín vekji neina sérstaka lukku nema þá hjá Steingrími Sævarri Ólafssyni, ritstjóra Frétta.com. Hann er að eipa á Fréttablaðinu fyrir að stela öllum skúbbunum hans um fyrrum vinnufélaga sína á Stöð 2 en Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður, hefur ætíð lagt sig fram um að geta Denna og Frétta.com þegar hann hefur fundið sig knúinn til að vitna í kauða.
|
| 16:41 | föst tilvísun
| komment
(0) |
|
|
![]() |
|
Við vorum að ræða það, alkarnir, úti í reyk í gær hvernig karlkynsalkar eiga að bera sig að í edrúmennskunni og þá aðallega með tilliti til þeirrar krísu sem karlmenn komast í þegar þeir hætta að vera töff.
Okkur bar flestum saman um það að menn sem hafa verið öflugir í sukkinu, fastir í þráhyggjum og þeirri sjálfselsku fullvissu um að þeir sjálfir séu merkingarmiðja tilverunnar verði hálf aulalegir þegar þeir fara að praktísera mjúku gildin; hættir að rífa kjaft, slást og æla á götum úti og byrjaðir að faðma börnin sín og tala endalaust um tilfinningar.
Eftir nokkrar málalengingar sættumst við þó á það að það væri svo mikið afrek að snúa baki við fyrra líferni og vera edrú að það gæti bara ekki verið annað en töff. Þetta gengur þó ekki upp nema við viðurkennum það og horfumst í augu við að við vorum aldrei töff í neyslunni heldur bara gramir og komplexaðir aumingjar.
Það er þó hægt, rétt eins og í neyslunni, að ganga of langt í batanum - fara yfir strikið ef svo má að orði komast. Þetta heitir víst að vera í Boltonbata ef marka má einn helsta reynsluboltann í hópnum. Karlar sem ná Boltonbata komast í of náið samband við kerlinguna í sér og skipta The Doors og annarri neyslutónlist út fyrir Michael Bolton. Þetta er skerí og mér er ekki um sel. Ég er búinn að parkera leðurjakkanum, við Díógenes erum skildir að skiptum og ég er hættur að vera The Lizard King. Er meira að segja að spá í að fara að stunda skíði og gerast The Blizard King) en þetta með Boltoninn er way too much og nú þarf ég ekki bara að fá mér trúnaðarmann heldur einnig semja við Óla um að skjóta af mér hausinn með haglaranum þegar ég fer í permó og geng um með sítt að aftan gólandi eins og geldingur.
|
| 17:32 | föst tilvísun
| komment
(3) |
|
|
![]() |
|
Hundurinn er samkvæmt kenningunni besti vinur mannsins. Hundar eru líka ekki jafn fláráðir og kettir og annað fólk og því alls ekki galið að setja allt sitt traust á þá. Það er allt of langt mál að fara að telja upp alla þá kosti sem hundurinn hefur fram yfir fólk þegar það kemur að mannlegum samskiptum en hann hefur löngum reynst blindum betri en enginn og gefið félagslega fötluðum einstaklingum og uppakvikindum tækifæri til að fá útrás fyrir tilfinningar sínar.
Þá eru dýrin þefnæm með eindæmum og eru sum hver þjálfuð sérstaklega til að finna eiturlyf. Þeir hundar nefnast hasshundar og hafa í þjónustu lögreglunnar gert mörgum fíklinum lífið leitt. Ég er nú búinn að finna nýtt djobb fyrir uppgjafahasshunda; þeir geta nefnilega gagnast fíklum í bata sem svokallaðir Alkahundar. Þeir eru þá forriaðir til að fylgja óvirka alkanum hvert sem hann fer og standa vörð um heimili hans. Hundurinn glefsar þannig í alla gamla neyslufélaga sem ætla að mæta í heimsókn á ókristilegum tíma, skellir á skeið ef sjúklingurinn gengur í áttina að vínbúð og dregur hann eftir götunni til sponsorsins. Hundinn mætti einnig fá til að gelta að póstinum, stefnuvottum og öðru hyski sem er líklegt til að dúkka upp með alls kyns neyslusyndir og ógna batanum. Schaeffer eða Doberman, panódíl og AA-bókin. Þetta getur ekki klikkað.
|
| 17:29 | föst tilvísun
| komment
(0) |
|
|
![]() |
|
Næst besti og næst frægasti bloggari í heimi stakk upp á því um daginn að ég tranaði mér fram sem stjörnuspámaður Fréttablaðsins. Þetta er alls ekki svo galið hjá honum; í fyrsta lagi er ég latur og metnaðarlaus og það er miklu auðveldara að gerast stjörnuspámaður en stjörnublaðamaður og svo hef ég reynslu af þessu þar sem ég fékk það mikilvæga verkefni þegar ég vann á vísi.is fyrir margt löngu að dæla stjörnuspám inn í lúppu sem birtist í gsm símum hjá einhverjum fávitum með VIT þjónustu Landssímans og voru nógu lasnir á sálinni til þess að vilja fá pikk-öpp línur og stjörnuspádóma senda í símann sinn.
Þetta copy/paste bull varð fljótt þreytandi þannig að ég byrjaði bara að semja þetta á staðnum og varð fljótt Hemingway stjörnuspádómanna þar sem hver spá mátti aðeins vera 150 slög ef ég man rétt. Bestur var ég þegar ég hugsaði um fólk sem mér var illa við og skrifaði spádómana með það í huga. Það var fyrir vikið svolítið mikið um dauðsföll, örkuml og að fólk ætti á hættu að fá píanó í hausinn ef það hætti sér út fyrir hússins dyr þann og þann daginn en hvað um það hrútar standa margir á tímamótum í dag.
Hrúturinn (21.mars - 19. apríl)
Ef þú ferð á völlinn er viðbúið að liðið þitt tapi (2:1) og vilji svo ólíklega til að þú styðjir Safamýrarlúserana er þetta dagurinn til að segja skilið við fávisku æskuáranna og fara að halda með alvöru knattspyrnuliði. Þér á eftir að líða miklu betur.
Ekki fara í sund á morgun það er stuttbuxnadagur í heitu pottunum og allt morandi af Heimdellingum sem gera fátt annað en að missa sápuna í sturtu.
Og hvað ykkur tvö varðar, Jóhanna og Lárus, þá er skilnaður eina svarið. Tveir hrútar geta ekki búið saman.
|
| 22:31 | föst tilvísun
| komment
(0) |
|
|
![]() |
|
Þrátt fyrir að vefstjóri BadaBing! sé einn helsti spam (ekki dósamatur heldur rafrænn ruslpóstur) hatari sem sögur fara af rignir endalausu drasli yfir mig; auglýsingum um allt frá forritum sem vernda mig fyrir pop-up gluggum og spammi til vergjarna húsmæðra í Vermont sem vilja endilega hitta mig í kvöld.
Látum það svo sem liggja milli hluta en nú fyrst er mér alvarlega misboðið enda gyðingar farnir að ofsækja mig og telja BadaBing! ákjósanlegan auglýsingavettvang fyrir blóm, ávexti og vín frá Ísrael.
Shalom,
My name is eyal, and I'm the marketing manager of Israeli's leading flowers,wines,gifts and fruits delivery site.(url : www.israel-gifts-flowers.com)
We are looking for new sites to advertise in and I would be happy to receive your statistics and prices for such cooperation.
We also offer to Jewish sites, an affiliation program, please contact me for more details.
If you have an Index,Links Page, or any database option, I would be grateful if you could add us to your site.
Thanks in advance, warm regards from Israel.
Eyal Gaisler
Manager
www.israel-gifts-flowers.com
Ekki hefur nú þessi Eyal unnið heimavinnuna sína þar sem ég er yfirlýstur antísemítisti og óvirkur alkóhólisti og fer því ekki að plögga júðadjönk og áfengi (Bacardi Breezer - Betri en bjór) á síðunni minni.
Shalom my ass þetta hlýtur að vera vírus
|
| 21:49 | föst tilvísun
| komment
(0) |
|
|
![]() |
|
þó maður dömpi leðurjakkanum, hætti að drekka og kíki í Nexus tvisvar í mánuði þá er þetta nú full langt gengið.

What lesser-known Simpsons character are you?
Brought to you by the good folks at sacwriters.com
|
| 21:35 | föst tilvísun
| komment
(0) |
|
|
![]() |
|
og þá aðallega í Vesturbæjarlauginni. Þar voru kallarnir í sturtunni að þrasa um Árna Johnsen (hvað annað?) og fannst greinilega geggjað nöldurbréfið sem tónskáldið sendi með þyrlunni til Eyja alveg fyrir neðan allar hellur.
Einhver sýndi því þó skilning að menn gætu orðið spældir ef þeir yrðu settir í fangelsi á meðan annar benti á að Árni væri eins og fangarnir í hinni ágætu bíómynd The Shawshank Redemption en eins og flestir muna töldu allir fangarnir í því ágæta fanglesi sig alsaklausa, fyrir utan Morgan Freeman sem lék eina seka manninn í Shawshank. Ágætis punktur og þessi mannlífsrýnir í sturtunni hefur kannski áttað sig á snertifletir Árna við þessa sögu Stephen Kings eru fleiri en aðalpersónan Andy Dufrense, sem Tim Robbins lék, sat blásaklaus bak við lás og slá og safnaði steinum - rétt eins og Árni sem stal að vísu sínum steinum.
Annars ætlaði ég nú ekki að vera að skrifa meira um kartöflubóndann fingralanga enda sé ég í fljótu bragði að ég hef eytt allt of miklu púðri í hann en hann bjargaði síðasta sumri, skrifaði áramótaskaup fyrir Hallgrím Helgason, komst á bögglistann minn (þarna var ég greinilega ekki í bata) og brilleraði í Kastljósinu.
Árni er eiginlega búinn að vera svo duglegur að skemmta landsmönnum síðustu misserin að það er hreinlega frekja af þessu eyjaliði að heimta að hann fái frí frá fangavist sinni til að klóra gítarstrengi fyrir örlagafyllibyttur í Herjólfsdal. En frekjan í Eyjamönnum hefur auðvitað alltaf verið yfirgengileg og á akureyrískum nótum. Árni sjálfur er svo engu betri eins og þyrlubréfið sannar en þar kemur fram að "menn sem fyrirlíta fólk og gera allt sem þeir geta til þess að gera lífið leiðinlegt" hafi sett steina í götu sína. Einhverjir gætu þó lagt þann skilning í lög, reglur og fanglesi að þeir sem þeir stjórnuðu þeim hefðu það hlutverk að halda aftur af fólki sem hefur gert lítið úr tilverurétti samborgara sinna. Þannig mætti gefa sér að lögunum væri ætlað að auðvelda sómakæru fólki að lifa skemmtielgu lífi í friði fyrir glæpamönnum.
Æi, þetta er tómt kjaftæði og ekki orðum í þetta eyðandi og dr. Gunni er búinn að súmma þetta upp og segja allt sem segja þarf í 2 setningum: "Ef einhver hefur efast um að Árni Jónsson sé fyrirlitlegur vitleysingur hlýtur sá sami að vera hættur því núna eftir þetta subbulega bréf hans við brekkusönginn. Þú ert í FANGELSI fíflið þitt."
Þetta var langur útúrdúr. Skellum okkur aftur út í laug. Samræðurnar í sturtunni voru auðvitað bara upphitum fyrir aðalhasarinn sem var að venju í heita pottinum. Þar afgreiddu spekingarnir Þórólf, Ingibjörgu Sólrúnu, Kolkrabbann, íhaldið og framsókn á innan við kortéri. Mér leið eins og Fox Mulder þegar ég heyrði sannfærandi rök fyrir því að ráðandi öfl stjórnuðu öllu fréttastreymi og fjölmiðlaumfjöllun. Sannleikurinn er einhvers staðar þarna og ég kaupi samsærið. Hvernig má annars verja það að allar stórfréttir sleppa lausar yfir hásumarið þegar þjóðin er upptekin við að grilla og vera full af rauðvíni? Viljalaust almenningsálitið er með 3 vikna minni og þannig er allt gleymt að hausti. Olíusamráðið er óþægilega mál þessa sumars sem týnist í nöldri um siðferði borgarstjórans (fáránlegt þar sem hann var markaðsmaður og hefur því verið hafinn yfir slíkt bull á meðan hann átti að vita um meint svínarí olíufélaganna. Olíufélögin eru nefnilega fyrir löngu komin handan góðs og ills og eru laus undan oki siðmenningar) og hvalveiðidrauminn sem er að rætast. Þetta breytir engu um það að það má vera ljóst að svínaríið hafi verið á vitorði manna á æðstu stöðum fyrir kosningar, rétt eins og draumurinn um að vera með dáta sem varð að engu áður en almúginn flykktist að kjörkössunum.
Jamm. Þetta er ljótt og einhvers staðar í skugganum leynist hrukkudýr sem reykir Morley´s og stjórnar þessu öllu. Ég sagði ekki neitt og stakk hausnum í kaf enda voru pottormarnir búnir að garga það yfir allt að blaðamenn kynnu ekki að spyrja spurninga.
|
| 22:02 | föst tilvísun
| komment
(1) |
|
|
![]() |
|
![]() |
![]() |
First Aid
Mjölfiðlar
Bloggar
shit and stuff
|